8.Mars 2010
8 mars var glærusýningu dagur. Við erum að læra um Þjórsárver, vistkerfi og í þessa átt. Ég ætla að fara yfir glærunar sem við gerðum eða seigja það sem mér finnst mikilvægast. Vistkerfi er heild yfir ákveðið svæði þar sem bæði lífverur og umhverfi er tekið með. Allir hlutir sem eru í vistkerfi eru lifandi, lífvana og starfa yfirleit mjög vel samman. Í vistkefi þurfa allar lífverur orku til að lifa og lífverur og lífvana þættir skipt niður í þrjá hópa:Frumuframleiðendur, neytendur og sundrendur. Frumuframleiðendur lifa á sjálfum sér og efla sér eigin fæðu og búa til súrefni í leiðinni. Neytendur lifa á öðrum t.d. með að éta hvort annað. Sundrendur eru rotverur(bakteríur og sveppir) sem eru ófrumbjarga lífverur. Svo fórum við að læra um fæðukeðjur og fæðuvefi.Fæðuvefur er þegar fæðukeðjur skarast. Þjórsárver kom þar á eftir. Þjórsárver búið að vera friðland síðan 1981. Þar er stærsta varpstöð heiðargæsar í heimi og er Ísland eina evrópu landið sem heiðargæs verpar.Þar er rosalegur staður þar sem fullt af lífverum búa. Þá sýndi Gyða kennari okkur fæðuvef sem hún bjó til. Þá var tíminn búinn.