vikan 19-22 okt
Ég gat ekki blogað fyrir vikuna 12-16 okt því bloggsíðan hrundi. En Mánudaginn 19.okt var ég í náttúrufræðitíma og við byrjuðum tíman á því að husta á Gyðu um hvernig á að gera ritgerð sem við erum búinn að vera vinna í. Eftir það fóru við í það að skrifa litlan uppdrát úr grein sem við völdum okkur úr Lifandi Vísindi. ég valdi grein um hvernig risaeðlur eru á litinn. Með Þessari grein fékk ég að vita að líklegast er að þær voru grænar og brúnar á litinn eða bara eins og umhverfið þeirra var. Miðvikudaginn 21.okt vorum við að kryfja rottu. Það voru 4 og 4 saman í hóp og ég var með Rakel, Guðrúnu og sylvíu í hóp og ég, Sylvía og guðrún vorum að skera rotuna meðan Rakel var út í horni því henni fannst þetta ógeðslegt. Við byrjuðum á því að afhúða rotuna. Svo skoðuðum við muninn á framfótavöðvum og afturfótavöðvum. Afturfótavöðvinn var miklu stærri. Svo skárum við lengra inn og fundum fullt af lífærum og það var barist hart um hver fengi að gera hvað. Við tíndum fullt af lífærum út og þetta er nokkur af þeim, hjarta, lungur og nýra. Á fimmtudeiginum 22.okt vorum við í tölvum og þar var ég þegar ég skrifaði þetta. En við vorum líka að skila ritgerð sem við áttum að vera búinn með og ég skilaði henni. Hún var um dýr og ég valdi mér slöngur. Þetta var vikan 19 okt til 22. okt
Vikan okt.5 til okt.10.okt
Mánudaginn 5.okt fórum við yfir glósur. í glósunum vorum við tildæmis að læra um frumur og muninn á dýrafrumur og plöntufrumur, plöntufrumur hafa safabólu, frumuvegg og grænukorn og allt þetta er ekki í dýrafrumum. Við lærðum líka um kjarna litninga og meiósa og mítósa. við enduðum tíman á því á að fá út úr náttúrufræði prófi og sígarettutilrauninni. Á fimtudaginn var stöðvavinna og það voru 2 og 2 saman í hóp. Ég var með Sylvíu í hóp og við gerðum 5 stöðvar. á enni stöð vorum við að skoða síðu á netinu um börn líkast foreldrum sínum og gen eru í pörum. Svo var líka önnur tölvustöð um meiósa og mítósa. Eini stöðinni var verið að útskýra muninn á meiósa og mítósa. Mítósa verða tvær nákvæmlega eins frumur en í meiósa verða 4 frumur, 2 eru eins og helmingurinn af frumunni og 2 eins og hinn helmingurinn. svo fórum við á aðra stöð og þar lásum við Lifandi Vísindi. svo fórum við á seinustu stöðina og þar var verkefni sem heitur dýrsfruma og plöntufruma. þar voru fullt af spurningum en ég gett ekki sægt þér frá þeim því ég get ekki náð í mynd fyrir það. Fimtudaginn vorum við í tölvum og þar þurftum við að ákveða hvaða dýr við ætluðum að seigja frá í 1000 orða ritgreð. þetta var vikan 5. okt til 10 okt
Lifandi Vísindi
Mér finnst goðafræði skemmtileg þannig að ég skelti þessari grein inn á síðunna
Hvaðan þekkja menn norræna goðafræði?
Þekking manna á norrænni goðafræði kemur fyrst og fremst úr Eddunum tveimur, Eddukvæðum og Snorra-Eddu, þar sem Snorri Sturluson skrifaði m.a. sagnir af goðunum. Höfundar kvæðanna í eldri Eddunni eru óþekktir, en í þessari bók er bæði að finna goðakvæði og hetjukvæði. Þekktust goðakvæðanna eru Hávamál og Völuspá þar sem segir af sköpun heimsins, endalokum hans og endurreisn. Óðinn, sem er æðstur hinna norrænu goða, kemur mjög við sögu í flestum goðakvæðunum. Óvíst er hvenær Eddukvæðin voru skrifuð niður, en svo mikið er víst að þau hafa mörg lifað alllengi í munnlegri geymd áður en að því kom. Snorri Sturluson skrifaði sína Eddu snemma á 13. öld. Hér er að finna nákvæmustu frásagnir af guðunum sem varðveist hafa, en það leynir sér þó ekki að höfundurinn var kristinn.
Vikan 28 sept-2 okt
Á mánudaginn var foreldaviðtal þanig það var enginn skóli.Miðvikudaginn voru við í stöðvavinnu.Ég var með Rakeli Lind í hóp og við gerðum 3 stöðvar. Á eini stöðinni lærðum við um frumeind. Ég svaraði fullt af spurningum og komst að því að allir hlutir eru gerðir úr frumeindum. Það eru þrjár agnir sem ég þarf að [...]