Síðasta blogið

Posted by thormundur on maí 9, 2010 with No Comments
in Uncategorized

Nú er komið að endalokum á mínu æðislega blogi þetta ár. ég ætla að halda upp á það með að benda á skemtilega linka og seigja smá frá vikuni. á mánudaginn 3.maí vorum við inni að fara yfir glærur um sveppi og svona. Miðvikudaginn vorum við fyrst inni að dunda okkur við að skoða hit og þetta enn seinni vorum við útti að setja skordýra gildru og svo fórum við í vínk vínk í pottinn. á fimmtudaginn vorum við líka úti og greindum 4 tré og fórum svo í vínk vínk í pottinn.

Hér er nokkrar skemmtilegar fréttir:

Danni sem er geimfari

Bandaríkin í vandamálum

Súkkulaði og þunglyndi

Eldgos ,Eldingar og Flúor

Posted by thormundur on apríl 20, 2010 with No Comments
in Uncategorized

Ég ætla núna að blogga um eldgos, eldingar og hvernig áhrif flúor getur haft á mann.

  1. Eldgos er þeger bergkvika brýtur sér leið úr jarðskorpunni, en gosið getur komið í tvenns konar formi: hrauns og ösku. Bæði forminn eru hættuleg og geta haft gríðaleg áhrif og geta eyðilagt helling af landi. Eldgos hefur alveg hræðileg áhrif á dýr og  veldur mörgum dýr oft dauða alveg sama hvort þau kafna eða verða fyrir hrauni eða svelta vegna að askan eða hraunið hafa eyðilagt grasið og heyið.  Hérna er alveg hræðileg frétt fyrir vestmanneyjar.
  2. Eldingar verða til vegna stöðurafmagns. ég skildi hvernig eldingar verða til þegar ég skoðaði þetta og skoðaði þá sérstaklega neðri myndina
  3. ef of mikil Flúor er tekin gerist þetta við tennurnar á þér!!!!!!!!!!!!

Síðast en ekki síst er fyndinn frétt!!!!!!!!

Mánudagurinn 12.Apríl

Posted by thormundur on apríl 20, 2010 with No Comments
in Uncategorized

Mánudaginn 12.Apríl var náttúrufræði tímu en var sá fyrsti eftir páskafrí því Gyða kennari var ekkert vikuna á undan. Gyða sagði að núna væri nausynlegt að blogga fyrir miðikudaginn en mér langar að seigja þér það að ég er í veislu og tók pássu til að skrifa þetta því netið virkar ekki heima hjá mér. En á mánudaginn var nýr hlekkur að byrja og er hann númer 10. Við byrjuðum að gera hugtakakort um varma og tókst mér að teyngja margt við það. T.d. sól, hiti, orka, hreyfiorka, sólarorka, sumar, stöðuorka, kraftur, eldgos og margt fleirra. Eftir það fórum við í glærunar sem Gyða var búinn að gera fyrir okkur. Við byrjuðum að fjalla um hvað vísindi og er það staðreynd, ráðgáta, tigáta, tilraun, kenning, lögmál og eðlisvísindi. svo fjöluðum við um hvað eðli orkunar er og hvernig orka getur birtist á marga vegu. Þessir veigir eru Hreyfiorka, Stöðuorka, Varmorku, Efnaorku, Rafsegulorku og Kjarnorku og ég held að það séu nokkrir en en þorri ekki að fara með. Hreyfiorka er þegar einhvað hreyfir sig. Stöðuorku fer alveg eftir hvar hluturinn er og ef hann er niðri þá er hann með lága stöðuorku og ef hann er t.d. upp á þaki er hann með hærri stöðuorku. Þegar hluturinn hreyfist fer hann úr stöðuorku í hreyfiorku. við komumst ekkert mikið lengra í tímanm þannig að þetta var mánudagurinn 12.Apríl.

Hér er skemmtileg frétt um flugvél sem gengur fyrir sólarorku.

8.Mars 2010

Posted by thormundur on mars 10, 2010 with No Comments
in Uncategorized

8 mars var glærusýningu dagur. Við erum að læra um Þjórsárver, vistkerfi og í þessa átt. Ég ætla að fara yfir glærunar sem við gerðum eða seigja það sem mér finnst mikilvægast. Vistkerfi er heild yfir ákveðið svæði þar sem bæði lífverur og umhverfi er tekið með. Allir hlutir sem eru í vistkerfi eru lifandi, lífvana og starfa yfirleit mjög vel samman. Í vistkefi þurfa allar lífverur orku til að lifa og lífverur og lífvana þættir skipt niður í þrjá hópa:Frumuframleiðendur, neytendur og sundrendur. Frumuframleiðendur lifa á sjálfum sér og efla sér eigin fæðu og búa til súrefni í leiðinni. Neytendur lifa á öðrum t.d. með að éta hvort annað. Sundrendur eru rotverur(bakteríur og sveppir) sem eru ófrumbjarga lífverur. Svo fórum við að læra um fæðukeðjur og fæðuvefi.Fæðuvefur er þegar fæðukeðjur skarast. Þjórsárver kom þar á eftir. Þjórsárver búið að vera friðland síðan 1981. Þar er stærsta varpstöð heiðargæsar í heimi og er Ísland eina evrópu landið sem heiðargæs verpar.Þar er rosalegur staður þar sem fullt af lífverum búa. Þá sýndi Gyða kennari okkur fæðuvef sem hún bjó til. Þá var tíminn búinn.

Þjórsá

Posted by thormundur on mars 2, 2010 with No Comments
in Uncategorized

Ég ætla ný að prófa að blogga öðruvísi en ég hef gert og í staðinn fyrir að seigja þér hvað ég gerði um vikuna ætla ég bara að tala um námsefnið. þema vikunar 1.mars-5.mars er þjórsá. Þjórsá er lengsta á landsins og er jökulá. Þótt að hún er jökulá er hún ólík öðrum jökulám því hún er með svo margar ár sem eru ekki jökulár sem rena í hana.  Þjórsá rennur líka ekki eftir þjórsárdal eins og maður myndi halda. hún rennur hliðin á þjórsárdal því hún þurfti eins sinni að rífa sig í gengn um aðra leið þegar eitt sinn kom eldgos. Það er líka virkjun í þjórsá.

Þetta er svona mest allt sem ég veit um þjórsá.

hérna er frétt sem mér finnst fúlt fyrir fyrirtækið.

Vikan 8.feb-13.feb

Posted by thormundur on feb. 15, 2010 with No Comments
in Uncategorized

Mánudaginn 8.feb vorum við að fara yfir glósur. Við vorum að læra um flokkun lífvera. Við byrjuðum að tala um sögu flokkunarfræði lifvera. Að líverum er skipt í hópa og að hver kom með fyrstu flokkunarkerfið og það  var Aristóteles og það voru 2 hópar. Fyrsti var plöntur og annar er dýr og dýrin skiptast niður í þrjá hópa dýr sem fljúga, dýr sem synda og dýr sem ganga. Við fórum svo í tvínafnakerfið. Það er kerfi eftir Carl von Linné. Það er kerfi sem byggist  upp á því að hver lífvera fær tvö heiti. Svo fórum við í núverandi flokkunarfræði lífvera og það er þróunarkenning Charles Darwins og tækniframfarir. Miðvikudaginn 10.feb var Gyða ekki þannig að við vorum að gera verkefni í bókinni. Það var spurningar um þetta sem ég er búin að vera að tala um. Á fimmtudaginn kláruðum við glærunar. Þar verið að tala um ríkin fimm sem lífverur skipta sér í. Þetta var fín vika.

Ég  setti þetta myndaband því mér finnst þetta ótrúlegt hvað konan gerði allt rétt.

Vikan 25-29jan

Posted by thormundur on feb. 3, 2010 with No Comments
in Uncategorized

25.jan var foreldratími þannig að það var enginn skóli. Á miðvikudagnum vorum við að byrja á nýum hlekk, hlekk7. þar vorum við að læra um bylgjur og hvernig þær virka, hvað þær eru margar gerðir. þær skiptast aðalega í 2 hópa langsbylgur og rafsegulbylgjur. á fimmtudagnum skrifaði ég þetta. ég var þá að skoða síður og sá þetta geðveikt töff myndband.

http://www.youtube.com/watch?v=QX04ySm4TTk

Fallhlíf

Posted by thormundur on jan. 19, 2010 with No Comments
in Uncategorized

Fallhlíf er aðallega til þess að draga úr lóðréttum fallhraða. Fallhlíf er tæki sem hægir á falli hlutar í andrúmsloftinu með því að búa til viðnám. Fallhlífin er yfirleitt gerð úr léttu efni eins og silki eða næloni og er fest við þann hlut sem hún á að verja falli með böndum eða vírum. Fallhlífin er brotin saman á sérstakan hátt inni í poka og opnast í fallinu.

18.jan-22.jan

Posted by thormundur on jan. 18, 2010 with No Comments
in Uncategorized

Mánudaginn 18.jan fórum við að vinna í hópunum sem okkur var skipt í seinustu viku. Ég var með Rakel, Guðrúnu og Sylvíu í hóp eins og ég sagði í seinasta hóp. Okkur var sagt að að byrja á plakatinu sem við áttum að vinna í um Newton. Ég ætlaað vera heiðarlegur og seigja að ég gerði mjög lítið kom bara með smá hugmyndir. Á miðvikudagnum var Gyða kennari ekki og við vorum þá að vinna í plakatinu og í bæklingnum. Við skiptum okkur í 2 hópa í hópnum okkar. Sylvía og
Guðrún í plakatinu og ég og Rakel í tölvum. Rakel var rosalega dugleg og kláraði næstum bæklinginn. Guðrún og Sylvía kláruðu plakatið á meðan. Á fimmtudagnum gerði ég ekki neitt því við þurftum bara aðeins að lagfara og prenta út. Þetta var róleg og góð vika.

Vikan 4.jan-8.jan

Posted by thormundur on jan. 12, 2010 with No Comments
in Uncategorized

Mánudagurinn 4.jan var mjög rólegur dagur. Gyða kennari leifði okkur bara að horfa á myndur af dýrum og hlutum í náttúrunni. Þar var fullt af góðum myndum. Við völdum svo með verjum við mundum lenta í hóp með í náttúrufræði. Ég skrifaði á miða sem við fengum sem við áttum að skrifa 2 nöfn á og ég skrifaði Guðrún og Rakel. Á miðvikudaginn var okkur skipt í hópa af bestu gæðum eftir miðunum. Ég lenti í hóp  með Rakel, Guðrúnu og Sylvíu. Við áttum að velja okkur frægan vísindamann og við völdum Newton. Þetta er síða sem hægt er að skoða hver lögmál Newtons eru þarna: http://www.visindavefur.is/svar.asp?id=1620 . Ég var í leyfi á fimmtudagnum þannig ég veit ekkert hvernig hann fór.