2010 ;)
by sylviaanna on jan..13, 2010, under Uncategorized
Okei já ég gleymdi að blogga í síðustu viku, og ætla þess vegna að blogga núna. Það sem við höfum verið að gera frá því við komum úr jólafríinu, er að við erum að gera bæklinga, ég er með guðrúnu, þórmundi og rakel l í hópi og við erum með Newton. En allavega fyrsta mánudaginn eftir jólafríið, var Gyða bara að sýna okkur voða flottar myndir og fengum við svo miða sem við áttum að skrifa nöfn á þeim sem við vildum vera með í hóp. Svo á miðvikudaginn í seinustu vorum við í hópunum og áttum að fara á stöðvar, ein stöðin var að byrja að gera bæklingin, svo átti maður að gera verkefni og þurfti maður þá að reika svolítið mikið og svo var ein stöðin þá áttum við að lesa bækur og reyna að finna eitthvað um mennina sem við vorum með. Á fimmtudaginn vorum við svo í tölvum og vorum við að gera bæklingana. Mánudaginn 11 janúar var ég ekki. En í dag voru Rakel og Þórmundur að gera bæklingin og ég og Guðrún að gera plakkatið og við náðum að klára það. En á morgun vonumst við til að fá tíma í tölvum til að klára bæklingin um Newton.
http://mbl.is/mm/frettir/taekni/2010/01/11/fundu_skipsflak_fra_timum_seinna_strids/
Jólafrí!
by sylviaanna on des..18, 2009, under Uncategorized
Jæja þá er maður komin í jólafrí, og þetta mun vera mitt seinasta blogg á þessu ári!
Á mánudaginn þá vorum við að hlusta á hina krakkana kynna glærusýninguna sína, á miðvikudaginn þá var ég ekki, en krakkarnir voru að gera það sama, hlusta á hina krakkana og svo gerðum við það líka á fimmtudaginn þá kláruðum við það.
Umm það er nú ekki mikið meira að segja, nema Gleðileg Jól!
11.des
by sylviaanna on des..11, 2009, under Uncategorized
Já, á mánudaginn þá var bara fyrirlestra tími og vorum við að glósa. Svo á miðvikudaginn fórum við svo í þrjá náttúrufræðatíma út af því að Alma Jenný var ekki. Og vorum við þá að hlusta á nokkra krakka í bekknum segja frá sínu power point verkefni, áttum við svo að meta það hvernig okkur fannst þetta hjá þeim. Svo vorum við að svara spurningum og horfðum á mynd. Svo á fimmtudaginn þá átti ég að kynna mína glærusýningu, ég var reyndar voða stressuð fyrir það! En þetta skilaði sér, og ég er fegin að vera búin að sýna það! Ég hef eiginlega ekkert mikið meira að segja.
2 desember.
by sylviaanna on des..02, 2009, under Uncategorized
Það er orðið svolítið langt síðan ég bloggaði seinast. En allavega það er komin ný önn og við erum í 5 hlekk, sem er stjörnufræði. Við erum í bók sem heitir Sól, tungl og stjörnur og erum búin að svara fjölvarpsspurningum, eyðufyllingar og rétt eða rangt úr fyrsta kafla held ég. Svo tókum við svona smá próf og áttum við að segja ósatt eða satt, það gekk bara ágætlega. Við erum líka mjög mikið að fylgjast bara með stjörnunum heima og gá hvort að við sjáum Óríon og fleiri stjörnur. Við fengum svo glósuverkefni hjá Gyðu. Þar er verið að segja okkur allt t.d. fjölstirni og það er þegar sól er ekki stök eins og okkar sól, heldur tvær eða fleiri. Alfa heitir næsta stjörnukerfi við okkur og það er 4,3 ljósár frá okkur. glósurnar fjalla líka um stjörnuþyrpingu, vetrarbrautir, lífhvolf, miklahvell og margt fleira.
En akkurat fyrir viku vorum við í stöðvavinnu. Ég var með Þómundi og Gulla, fyrsta stöðin vorum við að skoða vegalengdir, eða allt sem við sjáum ekki upp stækkað. Á stöð 2 vorum viða ð búa til plánetu og reyna að fá líf á hana, en það tókst ekki hjá okkur. Á 3 stöð vorum við að svara spurningum. Seinasta fimmtudag vorum við að vinna í power point verkefninu okkar og mitt eru um norðurljós.
Núna þess vikuna, á mánudaginn var Gyða veik og vorum að horfa á mynd, sem var svo ekki rétta myndin. En í dag áttum við samt að skrifa niður það sem við mundum úr myndinni. Gyða var líka að fara yfir bloggsíðurnar okkar og segja okkur meira um stjörnumerkin og hvernig best væri að sjá það. Svo á morgun ætlum við að klára power point verkefnin okkar og eigum svo að fara að kynna þau.
hlekkur 5
by sylviaanna on nóv..15, 2009, under Uncategorized
Það er orðið svolítið langt síðan ég bloggaði. Ég er búin að vera veik og margt að gerast í skólanum. En við erum búin að taka próf, skila rottu krufningunni og vinnubókinni okkar. En núna erum við byrjuð á nýjum hlekki og í honum förum við í stjörnnufræði, og ég held að það sé mjög spennandi
Seinasta fimmtudag byrjaði þessi hlekkur og Gyða var með fyrirlestur um hlekkinn og svo var líka gert verkefni og við fengum bók.
Þetta er eitthvað sem ég var að skoða !
http://mbl.is/mm/frettir/taekni/2009/11/13/segir_farsima_hafa_ahrif_a_heilann/
http://www.mbl.is/mm/frettir/erlent/2009/11/14/seldu_mannakjot_til_veitingahuss/?ref=fpmestlesid
krifja Lúlla !
by sylviaanna on okt..22, 2009, under Uncategorized
í gær vorum við að krifja rottu. Það var mjög gaman fannst mér. Ég var með Guðrúnu, Þórmundi og Rakel Lind í hóp. En Rakel vildi vera ritarinn okkar þannig hún fékk það job!
En ég, Guðrún og Þórmundur skiptumst á að skera upp rottuna okkar sem hét Luðvík og var kallaður Lúlli. Við skárum hann upp og tókum allt sem var inn í Lúlla út úr honum. Guðrún skar líka af honum skottið og Þórmundur ætlaði að skera af honum hausinn en þá kom ég og klippti af honum höfuðið. Þórmundur kreisti hann þannig að augunn komu út úr honum :S En lyktin sem kom var mjög ógeðsleg!
En í dag eigum við að skila heimildarritgerðinni og ég er búin að því, hún var samtals 10 bls. Og hún fjallar um apa !
Apar :)
by sylviaanna on okt..09, 2009, under Uncategorized
Á mánudögum byrjuðum við á 3 hlekki, hann fjallar um Erfðafræði. Mánudagstímarnir eru fyrirlestratímar, við gerðum reyndar líka hugtakakort. Við fengum að vita hvað við fengum á skýrlunum okkar, og ég var með Guðrúnu og Rakel í skýrlsu og við fengum A
. Við fengum líka að vita hvað við fengum úr skyndiprófinu.
Á miðvikudaginn þá vorum við í stöðvavinnu og ég og Þórmundur vorum saman í hóp. Fyrsta stöðin sem við fórum á var í tölvum og vorum við að gera verkefni sem heitir Klassík erfðafræði. Næsta stöð sem við fórum á var líka tölvustöð og hún fjallaði um Mítósa og Meiósa. Mítósa er kynlaus æxlun- hver og ein fruma skiptir sér í tvær nákvæmlega eins frumur. Meiósa er kynæxlu- tvær frumur mynda eina, sáðfruma og eggfruma sameinast, kallst frjógvun. Þriðja stöðin sem við fórum á, vorum aið að læra að þekkja muninn á Mítósa og Meiósa. Fjórða stöðin vorum við að lesa í “Lifandi vísindi“. Og fimmta stöðin vorum við að læra að þekkja muninn á dýrafrumu og plöntufrumu.
Á fimmtudaginn vorum við í tölvutíma. Hún var að segja okkur frá heimildar ritgerðinni sem fjallar um dýr sem við fengum að velja okkur. Ég valdi mér apa, því að mér hefur alltaf fundist apar voða fyndnir, skemmtilegir og eru mjög gáfaðir. Og mig langar alveg pínu að eiga apa !
15 gáfuðustu dýrin.
http://www.youtube.com/watch?v=8OLGwqPJECM&feature=fvsr
Og þetta er ástæðan afhverju ég valdi apa ![]()
http://www.youtube.com/watch?v=IHUqnw6Yjjk
http://www.youtube.com/watch?v=nBFhvrAOFqY&feature=related
http://www.youtube.com/watch?v=6DBuk91phkI&feature=related
sígaretta og rúsína ;)
by sylviaanna on sept..30, 2009, under Uncategorized
í seinustu viku gerðum við tilraun um sígarettu, við vorum að eima hana, ég var með rakel og guðrúnu í hóp og okkur fannst þetta mjög spennandi og eftir þessa tilraun langaði okkur ekki að reykja þótt okkur hafi ekki langað það fyrir ! En tilraunin var þannig að við notuðum tv0 sprittbrennara sem voru fyrir neðan tilraunarglas sem var með sígarettunni í og úr tilraunaglasinu var slanga sem tengdist öðru tilraunaglasi sem var í klaka, og úr því var rör sem fór í bala sem var með glas í sem var á hvolfi og rörið var upp í glasið og hrinti frá sér vatninu þannig að það hækkaði í balanum. En í dag vorum við í stöðvum, ein tilraunin var sú að við notupum sprite og rúsínur, við settum 80ml sprite í bikarglas og svo 2 rúsínur í bikarglasið, það sem geriðst var að ein rúsínan fór alltaf upp með loftbólunum(koltvísýringur) og þegar loftbólurnar sprungu sökk rúsínan aftur, og þetta endur tók sig nokkrum sinnum. Svo þegar tilraunin var búin að við vorum að ganga frá drukkum við Guðrún sprite-ið með rúsínunum í, og okkur var aðeins illt í maganum eftir á
. Svo fórum við á fleiri stöðvar t.d. áttu við að skoða lotukerfið og lesa um hversu vatn er mismunandi. Við áttum líka að skoða myndband um efnin og svara spurning sem var svona meira upprifjun.
mánudagur
by sylviaanna on sept..14, 2009, under Uncategorized
í dag vorum við í fyrirlestra tíma. Við byrjuðum á nýjum hlekk, sem er efnafræði. Við fengum glósur sem eru upprifjun frá því í fyrra, en ég man voða lítið frá því í fyrra :S. Við gerðum líka hugtakakort, sem var svona pínu flókið en kom á allt í endanum. En í seinustu viku vorum að fjalla um fugla, og við fengum það verkefni að teikna fugla á skólaplanið í réttri stærð. Það gekk svona misjafnlega vel. Við fórum líka út í skóg að greina fugla, en ég tók ekki mikinn þátt í því :S.

nýtt blogg
by sylviaanna on ág..26, 2009, under Uncategorized
hææ.
þetta er ný síða sem við erum með í nátturúfræði, og hér mun maður blogga og setja inn myndir og myndbönd
bless.
