dregið hefur úr eldgosinu í eyjafjallajökli og öskufalli, en áhrifin sem öskufallið getur haft eru gífurleg. skaðleg áhrif á dýr afvöldum öskunnar eru mest vegna eitraðara efna í öskunni þá aðalega fúors. askan berst í drykkjarvatn og þegar dýrin drekka það berst það ofan í maga þaðan í blóðið. tennurnar eiðast í skepnunum og þau hætta að geta étið, síðan byrja beinin að eiðast og skepnurnar hætta að geta hreyft sig. dýrin geta einnig andað að sér eiturmekkinum og þá berast efnin ofan í lungu og þaðan geta þau borist inn í blóðstrauminn. hérna sést eldgosið
Hlekkur 10
Á mánudaginn byrjaði Gyða að fara yfir glósur um varma, auk þess sem við bjuggum til hugtakakort. Í dag byrjuðum við upp í náttúrufræðistofu en fórum síðan niður í tölvustofuna þar sem við tókum tvö sjálfspróf.
Varmi er mældur í einungum sem kallast kalóríur, en ein kalóría samsvarar þeim varma sem það tekur til að hita eitt gramm af vatni um eina gráðu. Varmi grundvallast af þeim efnismassa sem er til staðar. Varmi kemur við sögu hvort sem efni hitnar eða kólnar. Hiti er ekki það sama og varmi. mynband
vettvangsferð
á fimmtudaginn fórum við í vettvangsferð inn í þjórsárdal. Við byrjuðum á því að mæta í skólan og fara upp í rútu og fara í Árnes, þar hittum við Gunnar og hann sagði okkur frá þjórsárstofu sem á að setja upp í félagsheimilinu. hann sagði okkur líka frá hvernig var þegar verið var að byggja Búrfellsvirkjun og mörgu öðru. þegar því var lokið fórum við í skaftholt þar sem við fræddumst um lífræana ræktun. síðan var haldið að stóra -núp þar sem við fengum pylsur. þá var haldið af stað aftur hittum við Gunnar við afleggjaran að stóra núp og kom hann með okkur inn í þjórsárdal. fórum við í þjóðveldisbæinn sem er byggður eftir bænum stöng. þaðan fórum við í búrfellsvirkjun þar sem Daði tók á móti okkur og sýndi okkur virkjunina. síðan fengum við köku og kex og svo var farið í Sultartangavirkjun, daði sýndi okkur hana líka. í þessari ferð varð ég margs vísari um búrfellsvirkjun, rafmagn og þjórsárdalinn í heild.
rafmagn
í dag vorum við að klára verkefni í rafmagnsprógrammi í tölvum og í síðustu viku gerðum við tilraun og hildur festi krukku á vegg. rafmagn
hellú
í dag kenndi hildur lilja okkur og ætlar hún að kenna okkur næstu 4 vikurnar. það sem við gerðum í dag var að við tókum blöðrur og nudduðum þeim við hárið á okkur og bjuggum þannig til stöðurafmagn.
Fóstur
þá erum við að læra um fóstur og allt sem því tengist. þetta byrjar allt á því að karl og kona gera dodo og svo fara sáðfrumur úr getnaðarlim karlsins inn í leggöng konunar og upp í eggjaleiðaran. um 500.000 sáðfrumur leggja upp í þessa ferð enn aðeins rúmlega hundrað ná að eggfrumunni í eggjaleiðaranum. þegar þangað er komið berjast sáðfrumurnar við að verða fyrstar inn í eggfrumuna. í lang flestum tilfellum fer aðeins ein aðfruma þinn en stundum komast tvær eða fleiri.
http://www.youtube.com/watch?v=NWaxwtAznqk
5.febrúar
Í þessari viku lærðum við um bylgjur. Það eru til tvennskonar bylgjur þverbylgjur og langbylgjur. efsti hlutinn á bylgjum er kallaður öldutoppur og neðsti hlutinn öldudalur. Aðeins einn hópur bylgna þarf ekki burðarefni það eru rafsegulbylgjur. Tíðni bylgjuhreyfingarinnar ræðst af því hversu margar heilar sveiflur eru á tiltekinni tímaeiningu. Tíðni er mæld í herts, eitt herts jafngildir einni sveiflu á sekúndu.
blogg
í síðustu viku fóru nokkrir kennarar til London og meðal þeirra var Gyða náttúrufræði kennarinn okkar. þannig í síðustu viku fengum við dæmi úr eðlisfræði sem við leystum með reikningi. á mánudaginn sýndi Gyða okkur svo myndir af söfnum sem hún fór á í London.
halló
síðasta mánudag var fyrsti tíminn í nátturufræði árið 2010 og í honum talaði Gyða og sýndi okkur myndir sem voru mjög flottar. en í dag fengum við ritgerðirnar okkar til baka og ég fékk 8 fyrir hana sem er meira en ég þorði að vona. 
loksins
þá er ég loksins að byrja að blogga aftur og hef mikið að segja. Í gær tókst mér loksins að ljúka ritgerðinni minni um neanderdalsmenn. Á mánudaginn kom Elsa Ingjaldsdóttir sem vinnur hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og talaði við okkur um vatn. hún sagði okkur hversu erfitt getur verið að sækja vatn og hversu langt það getur þurft að sækja það. hún sagði okkur líka hversu slæm umgengni getur verið í kringum brunna. við höfum líka verið að horfa á þætti sem heita Earth the power of the planet. þar höfum við lært um krafta ís, lofthjúpsins og eldfjöll.
