sultartangi2

Sultartangastöð er um 15 km norðaustan Búrfellsvirkjunar í Gnúpverjahreppi rétt við mörk Árnes- og Rangárvallasýslna.

Stöðin var gangsett árið 1999. Hún nýtir vatn Tungnaár sem hefur áður knúið vélar Hrauneyjafoss- og Sigöldustöðvar á leið sinni ofan af hálendinu. Einnig nýtir hún rennsli Þjórsár, en árnar tvær sameinast í Sultartangalóni fyrir ofan stöðina. Af þessu sökum er hún ekki eins háð sveiflum í vatnsbúskap og margar aðrar stöðvar og líkist Búrfellsstöð að því leyti.

Svæðið í kringum Sultartangastöð er meðal Gnúpverja nefnt Bláskógar en ekki er ljóst hvernig nafngiftin er tilkomin þar sem engan trjágróður er að finna á svæðinu. Þó má leiða líkum að því að svo hafi verið áður fyrr.

Við Sultartanga er fimmta stórvirkjunin sem landsvirkjun hefur byggt. Áður hafa verið reistar virkjanir við Sigöldu og Hrauneyjafoss í Tungnaá, Búrfell í Þjórsá, og neðanjarðarvirkjun í Blöndu.

Framkvæmdir við Sultartanga hófust árið 1997 en stöðin komst í fullan rekstur í byrjun árs 2000. Sultartangastöð nýtir vatn sem rennur úr Sultartangalóni sem myndaðist þegar Þjórsá og Tungnaá voru stíflaðar austan undir Sandafelli, um það bil 1 km ofan áramótanna, á árunum 1982-1984.

Sultartangastífla er lengsta stífla á Íslandi. Á byggingartíma Sultartangastöðvar var stíflan hækkuð um 1 metra og við það óx lónið úr 18 í 20 km. Aðrennslisgöng liggja úr lóninu í gegnum Sandafell að jöfnunarþró suðvestan í fellinu. Aflvélar eru tvær af francis gerð, hvor um sig 60 MW

Frárennslisskurður liggur frá stöðvarhúsinu í rótum Sandafells, um Álftafell og niður á hafið. Skurðurinn sveigir í stefnu meðfram farvegi Þjórsár og fylgir honum að stað 800 m ofan við veitustíflu Búrfellsvirkjunar þar sem hann liggur út í farveg Þjórsár.

Tengivirki er í rofahúsi vestan við stöðina með sf6 einangruðum rofabúnaði. Inn í húsið tengist 220 kV háspennulína frá Hrauneyjafossi að Brennimel. Að auki var lögð ný 400 kV lína frá rofahúsinu að Búrfellsstöð sem var rekin á 220 kV.

Kennitölur

Afl og fallhæð

Fallhæð:                                            44.6 m

Uppsett afl:                                       2 x 60 MW

Vatnsnotkun við uppsett afl:            316 m/s

Orkugeta:                                          880 GWh/ári

Jarðstífla

Lengd:                                               6.100 m

Mesta hæð:                                        23 m

Meðalhæð:                                         12 m

Aðrennslisskurður

Lengd :                                               100m

Mesta dýpt:                                        38 m

Aðrennslisgöng

Lengd:                                                3.377 m

Breidd:                                                12 m

Hæð:                                                  15 m+

Frárennslisskurður

Lengd:                                               7 km

Dýpt:                                                 20 m   

Vélarnar tvær

sultartangi

Frárenslisskurðurinn