virkjanir800

 

Hvammur 

Uppsett afl Hvammsvirkjunar verður 82 MW og orkugeta hennar verður um 665 GWst/ári. Inntakslón Hvammsvirkjunar, Hagalón, verður myndað með stíflu í Þjórsá ofan við Minnanúpshólma og stíflugörðum á austurbakka árinnar. Stöðvarhús verður staðsett nærri norðurenda Skarðsfjalls í Landsveit í landi Hvamms og verður það að mestu leyti neðanjarðar. Frá inntaksmannvirkjum við Hagalón liggja um 400 m löng aðrennslisgöng að virkjuninni. Frá virkjun fellur vatnið um jarðgöng og síðan opinn skurð til Þjórsár neðan við Ölmóðsey.

hagalon_fyrir_300pxhagalon_eftir_300px

 

Holt

Holtavirkjun verður 53 MW að afli og orkugeta hennar verður um 415 GWst/ári. Inntakslón Holtavirkjunar, Árneslón, verður myndað með stíflu í Árneskvísl við bæinn Akbraut í Holtum og stíflugörðum í Árnesi. Veitumannvirki verða byggð við Búðafoss ofan við Árnes og þar verður stærstum hluta Þjórsár veitt í Árneskvísl. Stöðvarhúsið verður staðsett við enda stíflunnar við Akbrautarholt, og frá því mun liggja frárennslisskurður að mestu leyti grafinn í austurkvísl Þjórsár niður fyrir Árnessporð.

 arneslon_til_s_fyrir_300pxarneslon_til_s_eftir_300

 

Urriðafoss

Virkjun við Urriðafoss verður 130 MW að afli og orkugeta virkjunarinnar verður um 980 GWst/ári. Inntakslón virkjunarinnar, Heiðarlón, verður myndað með stíflu í Þjórsá við Heiðartanga og stíflugörðum upp eftir vesturbakka árinnar. Inntaksmannvirki verða í Heiðartanga og stöðvarhús neðanjarðar nærri Þjórsártúni. Frá stöðvarhúsinu munu liggja frárennslisgöng sem opnast út í Þjórsá nokkru neðan við Urriðafoss.

heidarlon_til_nv_fyrir_300pxheidarlon_til_nv_eftir_300px