
Hvað er Rafmagn? Það er hreyfing rafeinda.
Hvernig verður rafmagn til? Til eru margir orkugjafar sem gægt er að nota til að framleiða rafmagn, t.d. kol, olía, kjarnorka, vindorka, jarðvarmi og vatnsorka. Á Íslandi er aðallega notuð ein af þessum orkum og það er vatnsorkan. Hún er einna ódýrasta og vistvænasta orkan sem hægt er að nota. Til þess að geta virkjað vatnsaflið þarf að vera sérstakar aðstæður til að það borgi sig að virkja. Þær eru þar sem er fjalllendi er, talsverð úrkoma og ár renni með miklu vatnsmagni. Þessar aðstæður eru víða hér á landi, einkar góðar í Þjórsá. Með beislan vatnsorkunar byggist á því að í náttúrunni er vatn í sífelldri hringrás. Það fellur til jarðar sem úrkoma og rennur til sjávar. Þar gufar það upp útaf orku sólar, safnast í ský og fellur á ný sem úrkoma. Þetta veldur því að hægt sé að virkja vatnsaflið, árnar halda alltaf áfram að renna.
Í vatnsaflsvirkjunum er hreyfiorka straumvatna beisluð og breytt í rafmagn. Til þess þarf eftirfarandi. Það þarf að stífla til að hækka vatnsborðið og mynda lón. Það þarf að hafa framhjárennslisvirki við lón til að hleypa vatni úr lóninu þegar rennsli í lónið er of mikið. Svo eru inntaksmannvirki í stíflunni og er hlutverk þess að beina vatninu að aðrennslisvirkjun. Aðrennslisvirkin flytja vatnið að þrýstivatnspípu sem liggur að snigli vatnsvélarinnar í stöðvahúsinu. Þessi vatnsvél hefur hverfil sem vatnsstraumurinn knýr áfram. Hverfillin er tengdur við rafala sem breytir fallorku vatnsins í rafmagn. Rafallinn kemur rafeindum á hreyfingu. Frá rafalinum fer raforkan í spennivirki þar sem hún er spennt upp og send út á dreifikerfið. Frá vatnsvélinni fer vatnið í sográs og þaðan úr stöðvahúsinu út í frárennslisskurð og þaðan útí farveg árinnar neðar stöðvarhússins.
Megawött (MW) er mælieining á afl virkjanna t.d. Búrfellsvirkjun framleiðir 270 MW sem að þýðir að hún getur unnið allt að 270.000 kwh (kílowattsstundir) það er fjöldi kílówatta á klukkustund. 1 megawatt = 1000 kílówött = 1.000.000 wött. Meðalnotkun heimila í Reykjavík er 3500 kwh á ári.
