Skip to content

Categories:

11/12/09

Við erum enn í 5 hlekk sem er jarðeðlisfræði ;D

Í dag vorum við að vinna mest með tunglið og það sem tengist því t.d flóð og fjöru, tunglmyrkva og sólmyrkva. Ég er búin að læra mikið af þessum hlekk.

Við lærðum um eftirfarandi í þessari viku.

Það eru til tvær gerðir af myrkvum sem eru tungl og sólmyrkvi en það eru til margar gerðir af myrkvum í kringum þessa tvo eftir því hvar þú ert staddur og hvernig jörðin, sólin og tunglið raðast upp t.d 

Deildarmyrkvi sem sést  þegar tunglið skyggir á hluta af sólinni.

 

Almyrkvi er þegar tunglið skyggir alveg á sólina og þá kemur alveg myrkur á einhverjum ákveðnum punkti eins og vera í lokuðu herbergi með engum gluggum. 

Hringmyrkvi kemur þegar tunglið fer beint fyrir framan sólin þá kemur birtan í kringum tunglið hér er myndband af því.

Flóð og fjara eða sjáfarföll verða við strendurnar, sjórinn hækkar og lækkar með ákveðnu millibili þetta gerist útaf  aðdráttarkrafti tunglsins og sólarinnar. 12 klukkustundir og 25 mínútur að meðaltali eru milli tveggja flóða, þar er þannig tvisvar flóð og tvisvar  fjara á 24 klukkutímum og 50 mínútum. Þegar tungl, jörð og sól liggja í beinni línu verður flóðið mest og það kallast stórstreymi.

kv. Sóley Sara

Posted in Uncategorized.


FÖSTUDAGSBLOGGIÐ MIKLA!!

Í þessari viku vorum við í 5 hlekk, jarðeðlisfræði við gerðum glærur og fengum lika fullt af blöðum.  Við lærðum eftirfarandi.

Lofthjúpurinn skiptist í fjögur hólf eins og ég bloggaði um síðast þau heita veðrahvolf, heiðhvolf, miðhvolf og hitahvolf.

Dægarskipti og það er dagur og nótt og án möndulsnúningsins væri ekki dagur og nótt því að þar sem sólin skín á jörðina þar er dagur.

Árstíðarskipti verða útaf því að það er möndulhalli  eins og sést á hnattlíkan. þegar norðurhvelið hallar að sólu þá er sumar á norðurhveli jarðar.                Hér getur þú séð geðveikt myndband hvernig árið líður

Segulljós ein og flestir þekkja betur sem norður og suðurljósverða til útaf segulskautunum þar eru rafhlaðnar rafeindir sem rekast saman sem við sjáum sem segulljós.

og svo miklu miklu meira úff púff ;D.

Posted in Uncategorized.


stöðvavinna í jarðeðlisfræði.

Í dag vorum við í  stöðvavinnu um jarðeðlisfræði og við lærðum um lofthjúpslögin sem eru veðrahvolf, miðhvolf, hitahvolf og heiðhvolf og hvernig þau verja jörðina, og við lærðum líka um setlögin og hvernig þau myndast svo gerðum við svolítið í sambandi við norðurljósin og gerðum tilraun hvernig þau myndast og afhverju við sjáum þau, við gerðum það þannig að við létum segul undir blað og helltum svo járn-ögnum yfir blaðið þá myndaðist áhveðið mynstur alveg eins og er yfir jörðinni til að hlýfa henni. Þar sem mest var af ögnum í endunum þar mynduðust norðurljós á jörðinni og þegar ég segi endunum er ég að meina norður og suður-hluta jarðarinnar þar sem þau sjást. Mér fannst þetta ótrúlega flutt og sniðugt!! 

Posted in Uncategorized.


Earth the power of the planet

í dag horfðum við á mynd númer 2 í myndaseríunni Earth the power of the planet og þessi mynd var um loftlagsbreytingar og lofthjúpinn og hvernig hann ver jörðina fyrir ýmsum efnum og fleiru í geiminum og líka hvernig fellibylir og eldingar myndast og ýmislegt í kringum það.  en það sem mér fannst áhugaverðast var það bæði það að í loftinu geta verið öldugangur og hægt sé að fara á brimbretti í geimnum, svo hvernig lofthjúpnum er skipt í 4 hvolf fyrst er veðrahvolf sem veðrið er í,sem er mjög lítill partur af lofthjúpnum og svo heiðhvolf, miðhvolf og hitahvolf.

Posted in Uncategorized.


Kraftur plánetunar!!

Í dag horfðum við á mynd,hún heitir  Kraftur Plánetunar  það eru fimm þættir í þessari myndseríu en við horfðum bara á einn

Hún var um eldifjöll, fleka og hvernig jörðin myndaðist.

Hún var ótrúlega fræðandi og kom okkur mjög margt á óvart, en það sem kom okkur mest á óvart var meðal annars að eitt fyrsta líf á jörðunni var Strýtuþörungar og þeir voru bara einfrumungar, það var líka einhverskonar pollur þar sem mjög mikið var af eiturefnum og  vatnið var í kringum 75° heitt en þar var samt fullt af lífi, svo kom okkur líka á óvart var það að í Erta-Ale í Eþópíu gat maður séð ofaní bert hraunið  malla og svo að lokum var að undir Íslandi var einhverskonar belgur fullur af hrauni og var hann rúmlega 100km að breidd og 600km að lengd.

Posted in Uncategorized.


MÁNUDAGUR

Á mánudaginn í þessari viku var fyrirlestrartími og það var ekkert unnið í bókunum.  En Halla Sigga sagði okkur frá nýja hlekknum sem við erum að fara að vinna í núna, hann er um frumur. Hún sagði okkur líka frá ritgerðinni um frumur sem við eigum að skrifa um. Við fengum líka mjög stóran glæru pakka um frumur og bækling um hvernig ætti að skrifa ritgerð. Mér fannst tíminn ganga vel!

kv. Sóley

Svolítið sem ég fann um frumur. :)

Frumur eru smæstu, lifandi byggingareiningar lífvera, þ.e.a.s. allar lífverur eru gerðar úr frumum. Til eru lífverur sem eru einungis ein fruma og nefnast þær einfrumungar en að öðrum kosti fjölfrumungar. Frumum er almennt skipt í dýrafrumur og plöntufrumur. Þær geta verið sérhæfðar, t.d. taugafrumur og veffrumur. Stærsta fruma mannsins er okfruma.

FRÁ:  wikipedia.com

Posted in Uncategorized.


FYRSTA BLOGGIÐ MITT!

Í ÞESSARI OG SÍÐUSTU VIKU HÖFUM VIÐ AÐALEGA VERIÐ AÐ LÆRA UM EFNAFRÆÐI ÞAR AÐ SEGJA LOTUKERFI OG ÝMISLEGT ÞANNIG. VIÐ GERÐUM TILRAUNIR OG VERKEFNI Í STÖÐVAVINNU OG VIÐ HORFÐUM LÍKA Á MYND UM LOTUKERFIÐ.

Posted in Uncategorized.


Hello world!

Welcome to Nemendablogg. This is your first post. Edit or delete it, then start blogging!

Posted in Uncategorized.