janúar 6th, 2010 ritaði simmisumo
No comments »
Jæja, nú er þetta skemmtilega jólafrí búið. Við byrjuðum fyrsta á árið í raungreinum með róleg heitum og skoðuðum mjög flottar ljósmyndir frá National geographic. Ég fann eina flotta mynd af Jagúar í regnskóginum.
Jagúar er stæðsta kattartegund í Suður-Ameríku, hann lifir yfirleitt á 12-15 ár úti í náttúrunni, er 45-113 kg á þyngd, 2 m á lengd og lifir aðalega á kjöti

desember 16th, 2009 ritaði simmisumo
No comments »
Þá vitum allt um vatn því Hannibal og Elsa komu og gáfu okkur fyrirlestra um vatn og hvernig það geymt í vatnsbólum og hvernig er náð í vatnið. Nú vitum við hvað starfið hans Hannibals er mikilvægt og það sem hann gerir. Elsa sýndi okkur líka hvað vatnið á íslandi er gott og það er svo gott að Evrópusambandið hafði ekki nógu góða mæli til að mæla vatnið, mig minnir að það hafi mælst ph 9.2. Það er líka mikilvægt að passa uppá vatnsbólin okkar, girða vel, passa uppá mengun frá dýrum og mönnum.
desember 5th, 2009 ritaði simmisumo
No comments »
Í þessari viku horfðum við á heimilda mynd um Jörðina og náttúruöfl hennar, á miðvikudegi vorum við að vinna í ritgerðinni í tölvutíma. Á fimmtudegi þá vorum við bara í róleg heitunum að spjalla og svona, Gyða var með stutta könnun svo kláruðum við heimildamyndina.
Ég er að skrifa um Þróun Mannsins í heimildaritgeriðinni og mér gengur bara vel.
(hérna sést hvar og hvenar maðurinn lifði)

nóvember 27th, 2009 ritaði simmisumo
No comments »
Í síðasta tíma vorum við í stöðavinnu, ég var með Einari í hóp og við svöruðum spurningum um ósonlagið og gróðurhúsaáhrif, skoðuðum helstu megineldstöðvar landsins einog Hekla, Katla og Grímsvötn. Við skoðuðum líka steinasafn sem skólinn fékk gefins og greindum steinanna svo fórum við í gegnum steindir og eðalsteina í bókinni Jörðin.
nóvember 23rd, 2009 ritaði simmisumo
No comments »
Í tímanum í dag fórum við yfir glósur um gróðurhúsaáhrifin, ósonlagið og hvolfin og þetta var svona flest sem við vissum áður. Núna erum við byrjuð á heimildaritgerð og eigum að skila efnisyfirliti á Miðvikudaginn og skila ritgerðinni 10. des. Ég hef ákveðið að skrifa um þróun mannsins og hér fyrir neðan er skemmtilegt myndband sem ég fann.
Evolution – from ape man to neanderthal – BBC science
nóvember 9th, 2009 ritaði simmisumo
No comments »
Í dag skiluðum við vinnubók og rottuskýrslunni, við tölðum líka um klónun og eineggja tvíbura.
Hér er smá myndband um klónun: Human Cloning