Á miðvikudaginn 14. apríl var gos í Eyjafjalljökli og í kjölfarið hlaup í Markaðsfljót, sem betur fer var búið að rjúfa veginn til að bjarga Markaðsfljótsbrúnna. Stuttu seinna byrjaði öskufall undir Eyjafjöllum og þar sem það er búin að vera norðanátt þá fer askan beint suður til Evrópu og ruflar flugumferð þar. „we said cash, not ash“ – Bretar
. En bændur og fólk almennt eru búið að eiga erfitt með alla þessa ösku einsog sést hér að neðan:

Þetta minnir mann bara á Hryllingsmynd

Eldgosið núna í Eyjafjalljökli er sprengigos og það gýs nær í eingöngu gosgufum og gjósku. Þeytigos eru sprengigos sem verða þegar heit kvika kemst í snertingu við vatn. En gosið í Eyjafjalljökli gæti breyst í Hraungos. „Ekki er öruggt að þarna mun bara renna hraun, því sprengivirkni getur tekið sig upp aftur“ segir Magnús Tumi Guðmundssonar Jarðeðlisfræðingu. En Sprengigos stafa aðallega af skyndilegri losun reikulla efna, einkum vatns, úr kvikunni við lágan þrýsting. Hér ar neðan sést hjlóðbylgja skjótast upp gosmökkinn:

Hljóðbylgjur í gosmökkinum
Þegar gos er í jökli verða yfirleitt eldingar í mökkinum, það er vegna þess þar er svo mikill raki og rafhleðsla í mekkinum, hleðslan verður til við sampsil á milli vatns og kviku. Eldingarnar innan við skýs eða mökk, farið á milli, eða lent á jörðu annað hvort úr toppi skýs eða neðst úr því.


Flúor er ein af mörgum hættum sem stafa af eldgosi. Flúor er lofttegund, gulgræn að lit, efnafræðilega skyld klóri og joði. Flúor eitrun getur valdið gadds og fætlis í dýrum, gaddur er ofvöxtur í vissum tönnum. Fætlur eru beinmyndanir í fótleggjum og valda helti. Flúor eitrun Í mönnum kemur fyrst fram í blettum á glerungi og í kjölfarið fylgja skemmdir á tönnum, Önnur áhrif í mönnum eru liðverkir og aukin beinmyndun og áhrif á hjarta og æðakerfi.

Hér er mynd sem útskýrir eldstöðvar á þessu svæði