Archive for apríl, 2010

Upprifjanir fyrir próf…

apríl 29th, 2010

Fyrst að það er stutt í lokapróf þá erum við bara búin að vera í upprifjunum, aðalega í líffræði. Á mánudaginn vorum við í einkennum lífvera, efnum í lífverum, skipulagi lífvera frá frumu til lífveru og vistfræði. Á miðvikudaginn var það flokkun lífvera og einkenni þeirra, og í dag fengum við þrjú gömul samrædm próf og við gerðum þau sem upprifjun og fórum yfir glósur.

Flokkunarkerfið:

  • Ríki
  • Fylking
  • Flokkur
  • Ættbálkur
  • Ætt
  • Ættkvísl
  • Tegund
  • Frumur eru oft flokkaðar í tvær grundvallargerðir eftir því hvort í þeim er afmarkaðurkjarni eða ekki. Kjarnalausar frumur eru án undantekninga einfrumungar, nánar tiltekið bakteríur og blágrænþörungar, en allar aðrar lífverur, bæði einfrumungar, vefplöntur og vefdýr hafa kjarna í frumum sínum.

    Vísindin eru eitt þeirra aðferðakerfa sem við notum til að auka þekkingu okkar á umheiminum. Meginhlutverk vísindalegrar starfsemi er að setja fram kenningar um ýmis fyrirbæri, byggðar á athugunum og niðurstöðum tilrauna. Slíkum kenningum er meðal annars ætlað að skipa hinu flókna og fjölbreytilega í tiltölulega fá allsherjarlögmál, sem auðvelda okkur skilning og gera jafnframt kleift að segja fyrir um ýmsa atburði og afleiðingar (til dæmis eldgos, veðurfar).

    allt um líffræði
    ítarlegt myndband um frumur (mjög langt)

Gos Í Eyjafjallajökli

apríl 20th, 2010

Á miðvikudaginn 14. apríl var gos í Eyjafjalljökli og í kjölfarið hlaup í Markaðsfljót, sem betur fer var búið að rjúfa veginn til að bjarga Markaðsfljótsbrúnna. Stuttu seinna byrjaði öskufall undir Eyjafjöllum og þar sem það er búin að vera norðanátt þá fer askan beint suður til Evrópu og ruflar flugumferð þar. „we said cash, not ash“ – Bretar :P . En bændur og fólk almennt eru búið að eiga erfitt með alla þessa ösku einsog sést hér að neðan:

Þetta minnir mann bara á Hryllingsmynd

Þetta minnir mann bara á Hryllingsmynd

528252

Eldgosið núna í Eyjafjalljökli er sprengigos og það gýs nær í eingöngu gosgufum og gjósku.  Þeytigos eru sprengigos sem verða þegar heit kvika kemst í snertingu við vatn. En gosið í Eyjafjalljökli gæti breyst í Hraungos. „Ekki er öruggt að þarna mun bara renna hraun, því sprengivirkni getur tekið sig upp aftur“ segir Magnús Tumi Guðmundssonar Jarðeðlisfræðingu. En Sprengigos stafa aðallega af skyndilegri losun reikulla efna, einkum vatns, úr kvikunni við lágan þrýsting. Hér ar neðan sést hjlóðbylgja skjótast upp gosmökkinn:

sprengigos_030403

Hljóðbylgjur í gosmökkinum

Þegar gos er í jökli verða yfirleitt eldingar í mökkinum, það er vegna þess þar er svo mikill raki og rafhleðsla í mekkinum, hleðslan verður til við sampsil á milli vatns og kviku. Eldingarnar innan við skýs eða mökk, farið á milli, eða lent á jörðu annað hvort úr toppi skýs eða neðst úr því.

1016278

4532313685_d3e7399f2b

Flúor er ein af mörgum hættum sem stafa af eldgosi. Flúor er lofttegund, gulgræn að lit, efnafræðilega skyld klóri og joði. Flúor eitrun getur valdið gadds og fætlis í dýrum, gaddur er ofvöxtur í vissum tönnum. Fætlur eru beinmyndanir í fótleggjum og valda helti. Flúor eitrun Í mönnum kemur fyrst fram í blettum á glerungi og í kjölfarið fylgja skemmdir á tönnum, Önnur áhrif í mönnum eru liðverkir og aukin beinmyndun og áhrif á hjarta og æðakerfi.

Hér er mynd sem útskýrir eldstöðvar á þessu svæði

Hér er mynd sem útskýrir eldstöðvar á þessu svæði

10.hlekkur, Varmi og orka

apríl 15th, 2010

Síðastliðinn mánudag var fyrsti tími í náttúrfræði eftir páska, í tímanum byrjuðum við á nýjum hlekk, fengum glósur og gerðum hugtakakort. 10 hlekkur er um varma og orku, orka er skipt í mismunandi form:
• Hreyfiorka
• Stöðuorka
• Efnaorka
• Rafsegulorka
• Varmaorka
• Kjarnorka
SI eining fyrir orku er júl (J). Orka er skilgreind sem hæfni til að framkvæma vinnu. Hreyfiorka sem sttafar af hreyfingu einda kallast varmaorka, því meiri hreyfing, því meiri varmi. Varmi er mældur í kaloríum eða hitaeiningum.

Löng myndbönd um varma og orku og fl.

Heat energy pt 1

Heat energy pt 2