Nú er skólaárinu að ljúka og því verður þetta okkar seinasta blogg í níunda bekk :) Á mánudag rifjuðum við up flokkun einfruma lífvera bæði dreifkjörnunga og heilkjörnunga. Svo fengum við glósur eins og vanalega og bættum líka við á Hugtakakortið!  Svo í dag byrjuðum við inni að skoða fréttir og margt annað skemmtilegt og svo fórum við út í skóg og þar var okkur skipt í hópa og við komum fyrir skordýragildrum sem við ætlum að kíkja á eftir viku spennandi! :’D og svo fórum við í Vínk-Vínk í pottin.

En hér kemur smá umfjöllun um sveppi;   Áður fyrr þóttu sveppir líkari plöntum en dýrum og voru hafðir í plönturíkinu. Skilgreining á sveppi byggist á lífsmáta sem hefur þróast nokkrum sinnum enda finnast lífverur með einkenni sveppa í þrem ríkjum lífheimsins þótt langflestir séu þeir í svepparíkinu. Sveppir eru heilkjarna, ófrumbjarga lífverur sem fjölga sér með gróum og hafa flestir þráðlaga líkama sem greinist þegar hann stækkar. Til að leggja áherslu á sérstöðu sveppa eru sveppafræðingar farnir að nota orðið funga á sama hátt og flóra eða fána. Því mun í framtíðinni verða talað um fungu Eyjafjarðar eða fungu sitkagrenis í stað sveppaflóru.

http://www.youtube.com/watch?v=8s_fpRUqpuE&feature=related

http://www.sport.is/lifsstill/2010/05/01/skofla-ma-nota-hana-i-ymislegt-myndband/