Seinasta bloggið! :D

Nú er skólaárinu að ljúka og því verður þetta okkar seinasta blogg í níunda bekk :) Á mánudag rifjuðum við up flokkun einfruma lífvera bæði dreifkjörnunga og heilkjörnunga. Svo fengum við glósur eins og vanalega og bættum líka við á Hugtakakortið!  Svo í dag byrjuðum við inni að skoða fréttir og margt annað skemmtilegt og svo fórum við út í skóg og þar var okkur skipt í hópa og við komum fyrir skordýragildrum sem við ætlum að kíkja á eftir viku spennandi! :’D og svo fórum við í Vínk-Vínk í pottin.

En hér kemur smá umfjöllun um sveppi;   Áður fyrr þóttu sveppir líkari plöntum en dýrum og voru hafðir í plönturíkinu. Skilgreining á sveppi byggist á lífsmáta sem hefur þróast nokkrum sinnum enda finnast lífverur með einkenni sveppa í þrem ríkjum lífheimsins þótt langflestir séu þeir í svepparíkinu. Sveppir eru heilkjarna, ófrumbjarga lífverur sem fjölga sér með gróum og hafa flestir þráðlaga líkama sem greinist þegar hann stækkar. Til að leggja áherslu á sérstöðu sveppa eru sveppafræðingar farnir að nota orðið funga á sama hátt og flóra eða fána. Því mun í framtíðinni verða talað um fungu Eyjafjarðar eða fungu sitkagrenis í stað sveppaflóru.

http://www.youtube.com/watch?v=8s_fpRUqpuE&feature=related

http://www.sport.is/lifsstill/2010/05/01/skofla-ma-nota-hana-i-ymislegt-myndband/

 

Eldgos, eldingar og flúor!

Hvað er eldgos?

Eldgos verður þegar hálfbráðnuð og bráðnuð efni brjótast upp á yfirborð jarðar. Undir jarðskorpunni er heitt fljótandi efni sem kallast kvika. Þegar einhverjar breytingar verða á jarðskorpunni eins og t.d. við jarðskjálfta brýst kvikan upp á yfirborð jarðar. Niðri í jörðinni er mikill þrýstingur á öllum efnum, og hitinn þar mjög hár. Ef þrýstingur er hár geta efnin ekki bráðnað. Ef þrýstingurinn minnkar, líkt og við jarðskjálfta bráðnar kvikan og brýst upp á yfirborðið. Kvikan kólnar og storknar við það að koma upp á yfirborðið. Í flest öllum gosum rennur hraun, en það reynist yfirleitt ekki hættulegt vegna þess hve hægt það rennur.

Hvað eru eldingar?

Elding er útrás af rafmagni úr skýi og kemur oft með þrumu. Eldingar gerast oftast í þrumuveðri og stundum í eldgosum eða sandbylum. Eldingar geta farið á 60.000 m/s og verið 30.000 °C, sem er nógu heitt til að bræða kísl saman í sandi. Það eru um það bil 16 milljónir þrumuveðra á hverju ári.

Hvað er flúor?

Flúor er í allri ösku, í mismiklum mæli. Ekki er búið að mæla flúorinnihald öskunnar sem fallið hefur í gosinu í Fimmvörðuhálsi en flúor getur leitt til særinda og bólgu í öndunarfærum og meltingarvegi dýra. Langvinn eitrunaráhrif getur haft áhrif á tennur og bein dýranna.

myndir af eldgosinu

10 hlekkur hafinn :)

Þegar páskafríið var búið var engin kennsla í náttúrufræði fyrstu vikuna því Gyða var veik

En svo byrjuðum við núna þennan mánudag :D . Það var fyrirlestrartími og fræddi Gyða okkur um varma, hreyfingu sameinda, eðlisfræði og orku. Við fengum glósur og svo áttum við að gera hugtakakort um varma og tengja allt við það sem okkur datt í hug sem tengdist því svo sýndi Gyða okkur líka Hummer-hestakerru sem heppnaðist bara vel! :)

En hér koma nokkrar fréttir en eru kannski lítið tengdar varma eða orku..;

magnaðar myndir frá eldgosinu

Gamla Markarfljótsbrúin :(

Hvað er varmi?

Hvað er orka?

Eðlisfræði Þjórsár!

Núna erum við með Hildi Lilju sem kennara þessa vikuna og er hún að kenna okkur eðlisfræði Þjórsár. Seinasta mánudag sýndi hún okkur glærur( http://blogg.fludaskoli.is/natturufraedi/files/2010/03/Rafmagn-15.-mars-2010.pdf) en það fjallar um rafmagn & vatnsaflsvirkjanir:D og í dag þá fórum við í stöðvavinnu og ég náði að komast í 4 stöðvar en þar var m.a. fjallað um „Hvernig framtíðin yrði“ (  http://fallorka.is/), „Raforku á heimilinu“ (http://fallorka.is/frodleikur/page/rafmagn), „Daglega hluti“, þá hreyfiorka, stöðuorka, varmorka, efnaorka og sitthvað fleira, og „Athugun með bolta“ sem snérist um þyngdarafl jarðar…

Þjórsá-líffræði

Seinasta mánudag var fyrirlestrartími en ég komst ekki í skólann en Gyða lagði áherslu á Þjórsárver og gaf þeim glósur. Svo seinasta fimmtudag kláruðum við að fara yfir glærurnar frá því á mánudag og fórum svo í skemmtilega Stöðvavinnu :) Ég var með Kristlaugu í hóp og náðum við 2 stöðvum þá; að kíkja á þörunginn í smásjánum sem hreyfði sig reyndar ekkert fyrir okkur :( en það var samt gaman að skoða hann :D .. Svo vinduðum við okkur í að læra aðeins um Þjórsárver og svöruðum spurningunni;“ afhverju myndi ég vilja fara til Þjórsárvers?“

 Svo í dag þá var Gyða ekki en við fórum samt í könnun úr því sem við höfum lært úr þessari viku og blogguðum í lok tímans :)

Þjórsá og Þjórsárdalur

Hæhæ (: núna erum við heldur betur búin að læra nokkuð um Þjórsá og í fyrstu vikunni eigum við að læra um jarðfræði Þjórsár og  næstu viku um það hvernig Þjórsá er tengd líffræðinni og í þriðju vikunni eðlisfræði! En í seinasta tíma þá lærðum við t.d. um innri og ytri öfl, vatnasvið, ólíkar gerðir vatnsfalla þá lindár, jökulár og dragár. Landmótun, fossar, jarðlög, fossberar, jöklar ( þá ólíkar gerðir, landmótun, hvalbak, jökulurð og  jökulrákir). Miðlunarlón, stöðuvötn, samanburður, rof og set, eldgos, hraun, aska.  Svo um framtíðarhorfur – hlýnun jarðar – friðun – eldgos & virkjanir!

-En hér koma nokkrir hlekkir sem tengjast Þjórsá

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/02/04/hrunamenn_undrast_thjorsarmal/

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/02/01/synjar_skipulagi_vid_thjorsa_stadfestingar/

3. önn byrjuð x’)

Á miðvikudeginum seinasta fórum við að gera plakat um kynsjúkdóma. Ég var með Kristlaugu, Maríönnu & Brynjólfi í hóp og fjölluðum við um Lekanda ( http://www.astradur.is/menu/kynsjukdomar/menu_kynsjukdomar_lekandi.htm ) okkur tókst að gera bara flott plakat og lærði ég mikið af því :D                                                         

Svo seinasta fimmtudag horfðum við á fræðilegt myndband um nokkra kynsjúkdóma og fengum við blað til að svara spurningum um þá, skiluðum líka verkefnamöppunni okkar frá 2. önn sem var alveg orðin heavy þung :) .. Gyða fór svo yfir með okkur hvað við myndum læra í 3 önn og hún sagði að við myndum læra um Þjórsá sem ég er mjög spennt yfir !

Lengsta á landsins ! ; Þjórsá

8 hlekkur byrjaður!

Jæja þá er 8 hlekkur byrjaður og við erum að læra; um flokkun lífvera, bakteríur og veirur.. en seinasta fimmtudag var Gyða að kenna okkur um flokkun lífvera og sagt er að Carl von Linné (1707-1778) hafi verið kallaður faðir flokkunarfræðinnar afþví að hann fann upp svokallað tvínafna kerfi sem nú er notað til flokkunar á öllum lífverum!

En flokkunin er s.s ; Tegund-Ættkvísl-Ætt-Ættbálkur-Flokkur-Fylking-Ríki-Lén-Lif < og þá í réttri röð ;)

Svo  seinasta miðvikudag kom ekki Gyða en við fórum bara að vinna verkefni úr bókinni Lifandi veröld  og gera Upprifjun 1-1 og 1-2, Eyðufyllingar og Rétt og rangt í bókinni.

Svo bara læra meira á morgun :)

Bylgjur-ljós & hljóð:)

Bylgjur er mjög nauðsynlegt og gott að hafa m.a. gætum við ekki heyrt, brotið glös, talað í farsíma og margt margt fleira ef bylgjurnar væru ekki til!                                                                                                          

En til eru tvennskonar bylgjur; þverbylgjur (sem eru hornréttar) og langbylgjur.

Það efsta nefnist; öldutoppur og neðst nefnist öldudalur. Bylgjulengd er svo ein heil bylgja.

-Svo í tímanum í dag þá vorum við aðeins að kíkja á glósur um Ljós, bylgjur og hljóð og svo horfðum við á mynd um það allt. Fórum svo í tölvur og kíktum á síður sem Gyðja benti okkur á:)..og blogguðum

Myndbandið er um konu sem brýtur glös með röddinni og á endanum brýtur hún sjálfan sig.. ;’)

http://www.youtube.com/watch?v=pz1j-GSSitg&feature=related

Hellú,

Hæhæ á Miðvikudeginum seinasta vorum við að læra um bylgjur, það var mjög fræðandi! Við gerðum líka hugtakakort um bylgjur og svo horfðum við á myndbönd í þeim var fjallað t.d. um þverbylgjur, langbylgjur og fleira :) svo fórum við í Stöðvavinnu og ég fór að taka eitthvað verkefni í bókinni Auðvitað sem Gyða sagði okkur að væri gott að gera. En svo kom ég ekki á fimmtudaginn svo ég veit ekki alveg hvað gerðist þá :/. En já svo vorum við Kristlaug og Brynjólfur að gera skýrlsuna sem við byrjuðum á að gera á miðvikud. seinasta held ég:) það var soldið flókið fyrir okkar heila en við reyndum eins og við gátum. Svo bara annar tími á morgun ;)