Afrétturinn
Gnúpverjaafrétturinn er staðsettur austast við Þjórsá. Hann er vel gróinn meðfram ánni en þegar vestar er komið taka við berangurslegir ásar og sandar. Einungis 2/5 hlutar Gnúpverjaafrétts er algróinn. Landgræðsla ríkisins staðið fyrir landgræðslu á vikrunum svokölluðu, meðal annars með lúpínu og grastegundum. Vestan Fossár hafa vikrarnir líka verið græddir upp, mest innan afréttargirðingar Gnúpverja, en þar eru ólíkar grastegundir. Framar er meira um melgresi.

Inná afréttinum eru Þjórsárver, dýrmætasta gróðurvin á Íslandi, þar sem stórt og magnað náttúrufriðland er. Langstærsti hluti Þjórsárvera er votland og unna margar gæsir sér þar vel.
landslag er þar stórbrotið, vatnafarið einstaklega öflugur þáttur í lífríkinu og er vistkerfi veranna óvenjutegundaríkt og mikilvægt til viðhalds margra tegunda dýra og plantna.
Á svæðinu hafa fundist um 183 tegundir háplantna, eða meira en þriðjungur íslensku flórunnar, 225 mosategundir, eða um 38% íslensku mosaflórunnar, og heildarfjöldi fléttna sem greindur hefur verið í Þjórsárverum er um 148 tegundir. Þar eru að finna síðustu leifar gróðurs sem áður mun hafa þakið ennþá stærra svæði af öræfunum, gróðurs sem sums staðar teygir sig upp í 1.000 – 1.100 m hæð yfir sjávar máli, þ.e. í hlíðum Arnarfells hins mikla og Arnarfells hins litla.
-Ef þið viljið fá frekari upplýsingar um Gnúpverjaafrétt, Þjórsárverin og Þjórsárdalinn, endilega skoðið þessar síður
http://www.skeidgnup.is/athyglisvert/page/21/jrsrdalur
http://www.althingi.is/altext/130/s/0203.htm�
http://www.nat.is/travelguide/thorsarver_ferdavisir.htm
Skemmtilegt er einnig að skoða bókin Hálendið í náttúru Íslands eftir Guðmund Pál Ólafsson
No comments yet.