:)

January 18th, 2010 by rakellind

Nátturufræði kennararnir eru búnir að vera útí útlöndum seinust daga og þá erum við bara búin að vera að vinna að því að klára publisher hópa verkefnið okkar og minn hópur náði bara að klára það með stæl ! enda frábær hópstjóri þarna á ferð ! ;) en við vorum eins og áður sagði með Newton sem eðlisfræðing og við gerðum bækling og þvílikt flott plakkat um hann:)             En við erum að læra um eðlisfræði og fallhífarstökk er nátturulega bara eintóm eðlisfræði þannig ég ætla að sýna ykkur hérna smá myndband af fallhífarstökki, en ég fann ekki svona myndband sem skýrir hvernig þetta virkar

http://www.youtube.com/watch?v=XSzbg_JoL0E

Hlekkur 6:)

January 10th, 2010 by rakellind

“Stóra” verkefnið í þessum hlekk snýst um að gera eins konar bækling um fræga eðlisfræðinga, bekknum var skipt upp í hópa og ég er með guðrúnu, þórmundi og sylvíu í hóp:) Við ætlum að fjalla um Newton, hann setti t.d. fram þyngdarlögmálið og til að sjá þau klikkið hér: http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=1620

Já við vorum í stöðvavinnu á mánudaginn minnir mig og þá svöruðum við fullt af þvílikt stærðfræðilegum spurningum um mælingar hraða og eitthvað.

7-14/12

December 11th, 2009 by rakellind

Á mánudaginn fengum við glósur og fórum yfir þær. Upp á síðkastið er ég búin að vera að líta mikið upp í himininn og reyna að sjá Óríón, og það tókst á endanum:D Á miðvikudaginn kom ég ekki í skólann, en mér skilst að þau hafi þá verið að hlusta á glærusýningar og eitthvað. Á fimmtudaginn gerðum við síðan meira af því og ég á að flytja á Mánudaginn.

stjörnufræði…

December 4th, 2009 by rakellind

Við erum í hlekk fimm í stjörnufræði. Í þessari viku erum við búin að vera að fjalla um hitt og þetta. Á mánudaginn var tölvutími þar sem við héldum áfram með glærusýningarnar, við eigum að vera búin með þær en því miður er ég það ekki þannig ég verð að nota eitthvern annan tíma í að klára þær, en þetta er búið að vera mjög gaman að fjalla um Vetrarbrautina og það er margt sem ég er fróðlegt sem ég er búin að lesa mér til um um alheiminn. Á miðvikudaginn héldum við áfram að horfa á mynd frá því um síðustu viku um eldgos og jörðina. Síðan fórum við að klára að fara yfir glósurnar og eitthvað, í þeim tíma horfðum viö síðan á alveg rosalega merkilegt myndband um stærðirnar á sólunum í geimnum, þá gerði maður sér grein fyrir því hvað sólin okkar er rosalega lítil meðan við aðrar sólir, en það að sólin okkar sé lítil er mjög jákvætt því þá endist hún lengur og ef hún væri risastór væri hún löngu búin að éta jörðina upp.

Hérna er myndband um hvernig jörðin varð til:           http://www.youtube.com/watch?v=B1AXbpYndGc&feature=fvw

Hlekkur 5

November 25th, 2009 by rakellind

Já núna var hlekkur 5 að byrja. Hann er um stjörnufræði:) ég get nú ekkert mótmælt þessum hlekk þar sem ég held að hann verði alveg einstaklega áhugaverður og skemmtilegur, það er margt sem tengist stjörnufræðinni sem er alveg óskiljanlegt og alveg ótrulega skrítið, t.d. Ljósár, hafa ekki allir óskað sér eitthvern tímann að geta spólað aftur í tímann og séð hvernig allt var í gamla daga eða eitthvað slíkt, já ég get nú bara sagt ykkur það að það er eiginlega bara ekkert ómögulegt, því fleiri ljósár sem þú ferð frá jörðinni því lengra geturu séð aftur í tímann. Já þetta er aðeins eitt af milljón mögnuðum fyrirbærum sem tengjast stjörnufræði. Í þessum hlekk eigum við að gera powerpoint sýningu og sína hana í skólanum og heima. Það völdu allir sér eitt fyrirbæri sem tengist geimnum, mátti vera hvað sem er og ég valdi mér Vetrarbrautina. Vonandi mun ég ná að segja eitthvað að viti um vetrarbrautina í þessari sýningu. En í tímanum í dag var stöðvavinna og við vorum aðeins sjö í þessum tíma sem var alveg einstaklega þægilegt og kósý, og þetta var bara mjög skemmtilegur tími, við fjölluðum meðal annars um órión og sverðþokuna sem fylgir honum og margt margt fleira. En í tímanum sem var seinasta Mánudag gerðist það undur og stórmerki að við höfðum þögn í fyrirlestrartímanum sjálfum!! já sá tími nýttist okkur mjöög vel og við náðum að komast yfir margar glósur í þeim tíma.

Annarlok

November 11th, 2009 by rakellind

Núna var önnin að klárast, við vorum sem sagt í prófum og svoleiðis. Í seinasta tíma í nátturufræði skiluðum við vinnubókunum og tókum svona könnun um skólann eða svoleiðis. 

Eg, guðrún, sylvía og Þórmundur skiluðum í síðustu viku skýrslu af okkur um rottukrufninguna, við fengum svona lala einkunn í því vegna þess að tíminn lék ekki alveg með okkur í þeirri skýrslu og það var lika mikið um veikindi og slikt því miður:S

Ég held að hlekkur við séum að vinna við hlekk  4 núna en hann er búinn að vera um eðlisfræði, þyngt, hraða og eitthvað svoleiðis.

4/11/’09

November 4th, 2009 by rakellind

Núna er ég í nátturufræðitíma að blogga:) Það hefur ekkert mikið gerst í nátturufræði núna nýlega þannig að þetta blogg verður ekkert neitt svakalega áhugavert. Við vorum að byrja á nýjum hlekk á mánudaginn sem heitir eðlisfræði og þetta er hlekkur númer 4. En í þeim tíma sýndi Gyða okkur frétt frá körfuboltaleik en þá kom leðurblaka inn á leikinn, það var mjög fyndið. Við vorum að fá úr ritgerðinni í dag og ég er mjög sátt með úkomuna:) En núna erum ég og þórmundur saman í hóp í stöðvanvinnu og erum að svara mjög erfiðum spurningum en við erum svo klár að við náum að klóra okkur fram úr þessu öllu saman:) En ég ætla að fara að halda áfram;)

lögmál Newtons

October 29th, 2009 by rakellind

Gyða er búin að vera lasin seinustu daga þannig Nátturufræði er búin að fella svolítið niður. En núna vorum við að fjalla um lögmál Newtons, við lásum um þessi 3 lögmál á visindavefinum. En núna erum við að fara að vinna í skýrslu sambandi við rottukrufninguna þannig ég ætla ekki að hafa þetta lengra

Enn eitt bloggið….

October 22nd, 2009 by rakellind

Já bloggsíðan hrundi þannig við erum ekki búin að blogga svolítið lengi. En það er búið að vera alveg heilmikið að gera í þessari viku. Núna bara rétt í þessu var ég að skila heimildarritgerð sem er búin að reynast mér virkilega erfið útaf ég var jú svo rosalega gáfuð að velja mér dýr sem eru varla til neinar heimildir um nema bara eitthverjar smá greinar, en það sem orðartiltækið segir margt smátt gerir eitt stórt þar sem það á einmett við hér,  mér tókst að skrapa saman 1300 orða heimildarritgerð og er ég virkilega sátt með afraksturinn.

Nátturufræði tíminn í gær var aftur á móti virkilega geðslegur, við vorum að krifja rottu og ég vil meina að ég hafi tekið virkilega mikinn þátt í því þar sem ég snerti ekki rottuna, ég var bara í staðinn virkilega virkur ritari. Við þurfum síðan að skila skýrlu frá þessu eftir hálfan mánuð  en ég Guðrún, Sylvía og Þórmundur vorum saman í hóp og gerum því skýrsluna í sameiningu.

Vetrarfríið góða hefst síðan á mrg og auðvitað get ég ekki beðið eftir því:D

Vikan 4-9/10

October 9th, 2009 by rakellind

Á miðvikudaginn var stöðvavinna í tíma, þá var ég með Guðrúnu:) stöðvarnar voru 6 talsins og við fórum á 5 af þeim. Allt þetta snérist um Erfðafræði sem er eitthvað alveg nýtt fyrirbæri fyrir fólk eins og mig. Aðallega var þetta samt um Mítósu og Meiósu og við áttum að læra að þekkja muninn á þeim.

Á fimmtudaginn síðan, sem sagt í gær var tölvutími. Í honum áttum við að velja 0kkur eitthvað dýr til að skrifa síðan risastóra heimildaritgerð um, ég valdi það stórmerkilega sjávardýr að mínu mati Smokkfisk. Þessi ritgerð verður mjög umfangsmikil og mig hlakkar mikið til að gera hana og vonandi nær maður að rita eitthvað gáfulegt niður á blað þá. Við lærðum einnig að nota Word almennilega, gera efnisyfirlit og slíkt:D