rottukrufning

október 23rd, 2009 by nini

Í tímanum í gær, fimmtudagstímanum vorum við að kryfja rottu! :D Okkur var skipt í hópa og lenti ég með Ísaki og Sigmari í hóp. Við fengum rottuna í hendur og okkar rotta var kvenkuns. Við byrjuðum á því að festa rottuna með títuprjónum, hehe hljómar ekki mjög vel og mér fannst það líka frekar ógeðslegt svona til að byrja með :P en þegar við vorum komin á skrið var þetta geðveikt gaman! Ég fýlaði mig í botn og margt kom mér á óvart, t.d. hvað þarmarnir á þessari litlu rottu eru ótrúlega langir :O og neðri tennurnar líka ekkert smá langar! Mér fannst þetta mjög gaman og örugglega skemmtilegasti, eða allavega mest lifandi raungreinatími til þessa ;)

rotta

;-)

október 21st, 2009 by nini

Í mánudagstímanum var glósutími og lærðum við mikið um Gregor Mendel og um hvað hann hefur gert.
Johann Gregor Mendel var fæddur 22.júlí árið 1822 og var oft nefndur faðir erfðafræðinnar! Gregor sýndi fyrstur manna fram á með tilraunum hvernig einkenni gætu erfst á milli kynslóða og setti fram kenninguna um erfðaefnið.

Í miðvikudagstímanum vorum við í tölvum eins og vanalega og vorum inná erfdir.is ;)

Í fimmtudagstímanum var svo stöðvavinna. Stöðvarnar voru þessar:gregor mendel

  • tölvur-erfdir.is
  • bækur-þar sem við gátum bætt við glósur og svona :)
  • verkefni um erfðir nautgripa og naggrísa
  • verkefnið doppóttur hundur
  • verkefni um myndun kynfruma
  • verkefni um fjárliti
  • lifandi vísindi-valdar greinar

Í þessari viku erum við líka búin að læra mikið um mítósu og meiósu.

Við mítósu (einnig kölluð jafnskipting) skiptir tvílitna fruma sér í tvær frumur sem eru erfðafræðilega alveg eins og upphaflega fruman og hafa líka nákvæmlega sömu gen og upphaflega fruman. Mítósa er alltaf að gerast ;)

Í meiósu skiptingu (einnig kölluð rýriskipting) skiptir tvílitna fruma sér tvisvar og útkoman verður fjórar einlita frumur sem hafa hver um sig eitt litningapar og eru því erfðafræðilega ekki eins og upphaflega fruman eða mjög ólíkar henni. Meiósu skipting verður aðeins til við myndun kynfruma.

litningar

Fróðleiksmoli: Kynfrumur (sæðis- og eggfrumur) okkar eru einlitna og hafa 23 litninga.

litningur

erfðafræði

október 10th, 2009 by nini

Í þessari viku höfum við verið að læra um erfðafræði. Í mánudagstímanum var fyrirlestrartími/glósutími eins og vanalega og lærðum við um ýmislegt sem tengist erfðafræði. Miðvikudagstímanum var eytt í tölvum og lærðum við um mítósu og meiósu og fórum við inná vef sem heitir erfdir.is og við lásum, sáum og gerðum verkefni ;) Í fimmtudagstímanum vorum við svo að skoða ýmsar fréttir sem var voða nice :) Seinna í var smá stöðvavinna, þar sem hægt var að skoða Lifandi Vísindi, læra aðeins betur á hugtakakortið, skoða bækur, blogga og svo var hægt að fara í tölvu þar sem sýndar voru ýmsar villandi og skemmtilegar myndir :D sjónhverfingar

efnafræði

október 2nd, 2009 by nini

Þessi vika var seinasta vikan í efnafræði í grunnskóla :D Í næstu viku munum við byrja á erfðafræði.Allaveganna í þessari viku fórum viðsítróna yfir glósur í miðvikudagstímanum af því að það var enginn mánudagstími þannig að við slepptum tölvutímanum þessa vikuna. Í fimmtudagstímanum fylltum við meira inní Hlekk 2 (hugtakakortið) og nemendur skrifuðu uppá töflu líka, mér fannst það mjög fínt og fannst ég skilja það frekar þannig og veit núna aðeins betur hvernig á að vinna þetta hugtakakort. Svo var okkur skipt í tvo hópa, ég lenti með Hjölla, Einari, Daða og Kristni! :) Við gerðum tilraun með sýrustig. Vorum með átta efni, matarsóda, mýkingarefni, sprite, sápu, brennisteinssýru (H2SO4), eimað vatn, borðedik og sítrónu. Fyrst fengum við blaðrenning með litatónum sem að við áttum að halda ofan í hverju efni fyrir sig í sirka 30 sek. og meta svo eftir litunum hvaða sýrustig efnið væri, við gátum séð hvað sýrustigið væri með því að fara eftir spjaldi sem að fylgdi með og sagði númer hvað sýrustigið væri. Eftir að við vorum búin að því áttum við að hella hverju efni jafnt í glas og bæta svo við nokkrum dropum (jafn marga dropa í hvert glas) af soðnu rauðkáli og þá breyttist liturinn og enginn litur var eins. Ég held svo sannarlega að þetta hafi verið skemmtilegasta tilraun sem ég hef gert :D svo prófuðum við aðeins sjálf að blanda saman nokkrum efnum í lokin og allt gaus og svaka stuð ! :P Posted in Uncategorized | No Comments »

Vika 4

september 23rd, 2009 by nini

Nú er komið að viku fjögur og í fyrsta tímanum, mánudagstíminn var fyrirlestrartími. Við kláruðum að fara yfir glósurnar og fengum svo blað þar sem átti að stilla efnjöfnur, við gerðum 1 glósu í tímanum en áttum svo að klára hitt heima. Mér gekk ekkert sérstaklega vel svona til að byrja með og fannst þetta frekar óskiljanlegt, en í miðvikudagstímanum vorum við líka að stilla efnajöfnur og þá fannst mér þetta skýrast frekar mikið ! ;) Í lok tímans gerðum við eina könnun þar sem að við áttum að svara hvort að staðreyndirnar væru sannar eða ósannar og vonandi gekk það bara ágætlega :)

efnajöfnur

Vika 3 – Hlekkur 2 ;)

september 16th, 2009 by nini

Núna er komið að viku 3. Í fyrsta tímanum byrjuðum við á hlekk 2, hann fjallar um efnasamband og við glósuðum orð sem tilheyra því og tengdum saman. Fengum svo glósur eins og vanalega og fórum yfir ;)

lotukerfi

Í miðvikudagstímanum fórum við í tölvur og gerðum allskonar upprifjun eða æfingarverkefni úr framhaldsskóla sem við munum svo halda áfram með seinna :)

Í fimmtudagstímanum sem er tvöfaldur tími, vorum við eiginlega bara að spjalla til að byrja með og skoðuðum ýmis myndbönd á youtube. Í einu myndbandinu voru krakkar sem að voru að „leika“ sér með þurrís. Létu hann í flösku með vatni eða einhverjum vökva og lokuðu, hlupu svo í burtu og eftir smá stund sprakk allt í loft upp og flaskan skaust lengst upp í loft! Svo voru líka önnur myndbönd þar sem að sýnt var hvernig þurrís gat gert sápukúlu, bara með því að strjúka einhverju efni með sápu á yfir bala með þurrís og allt í einu byrjaði að blásast sápukúla og reykurinn varð bara eftir inni í sápukúlunni ;) Mér fannst þetta tööööööff :P

dry_ice_2_litil

Vika 2

september 7th, 2009 by nini

 

 

 

Mynd: einkímblöðungur og tvíkimblöðungur.

Í þessari viku fjölluðum við um plöntur, í tímanum í dag fórum við yfir glósurnar og glósuðum með. Plönturnar sem að við fjölluðum um voru Þörungar, Mosar, Jafnar, Elftingar, Burknar, Berfrævingar og Dulfrævingar.  Á miðvikudeginum vorum við í tölvutíma og gerðum stutta könnun um það sem við höfum gert seinastliðnar tvær vikur ;)

 

Fyrsta bloggið !

september 7th, 2009 by nini

Fyrstu vikuna í skólanum fjölluðum við um ljóstillífun. Við fengum glósur á mánudeginum og vorum í stövavinnu á fimmtudeginum þar sem að við fjölluðum svolítið um plöntur.

ljostillifun2
hér er mynd af ljóstillífun :)

Hello world!

september 2nd, 2009 by nini

Welcome to Nemendablogg. This is your first post. Edit or delete it, then start blogging!