:-)

janúar 19th, 2010 by nini

Í seinustu vorum við að vinna verkefni í tíma og þurftum við að reikna allskonar dæmi sem að við munum svo fara yfir í tímanum á morgun. Við horfðum líka á þátt með David Attenborough. Í þættinum var fjallað um nokkur dýr, þar á meðal órangúta og ætla ég að fjalla aðeins um þá hér :)

Órangútar eru stórir apar sem lifa mjög sunnarlega í Asíu eða á eyjum Bombeo og Sumatra. Þeir hafa þykkan háls mjög langar og sterkar hendur, og stutta og bogna fætur. Til viðmiðunar er hægt að sjá fyrir sér að órangútar eru 2/3 af stærð górillu. Þeir hafa rauðbrún hár um líkamann en andlitið er nánast hárlaust. Órangútar lifa að mestu í trjám og sveifla sér á milli greina með sterkbyggðum höndum sínum. Hendur órangúta eru mjög svo svipaðar mannshendinni, þeir hafa fjóra langa putta og einn þumalputta. Á fótum þeirra eru líka fjórar og ein stór. Órangútar geta haldið hlutum bæði með höndunum og fótunum. Skilningarvit órangúta eru mjög svipuð skilningarvitum mannsins, það er að segja, sjón, heyrn, bragð og snertingar. Órangútar eru mjög gáfaðir, sem dæmi er hægt að nota að þeir nota laufblöð sem regnhlíf, þeir setja það yfir höfuðið og hlífa sér fyrir bleytu. Þeir nota laufblöð líka sem bolla til þess að hjálpa sér við að drekka vatn. Órangútar lifa í regnskógum og lifa í allt að 50 ár, en algengt er að þeir lifi í um það bil 30-45 ár.

asdf

orangutan

2o1o

janúar 6th, 2010 by nini

bengal-tiger-paws

Á myndinni sjáum við tígrisdýr. Tígrisdýr eru stærst allra núverandi kattardýra. Auðkenni tígrisdýrsins er t.d. sérkennilegt rákamunstur í feldi þeirra. Tígrisdýr eru af kattarætt og eru rándýr, vísinda heiti þeirra er Panthera Tigris. Þyngd þeirra er á milli 90-320 kíló. Tígrisdýr verða kynþroska 3-4 ára og er meðgöngutími þeirra um 104 dagar. Í hverju goti eru á milli 1-7 ungar.

Þetta var svona smá fróðleiksmoli um tígrisdýr, later ;D

seinasta vikan fyrir jól ! :D :D :D :D

desember 15th, 2009 by nini

Jæja það er komið að því .. seinasta vikan fyrir jólafrí :D Á mánudaginn var fyrirlestrartími um jarðfræði Hrunamannahrepps. Fræddumst um hvernig Miðfell myndaðist og hvað Hreppaflekinn væri :) Á morgun, miðvikudag, kemur Hannibal og mun hann vera með fyrirlestur og megum við spyrja að vild. Á fimmtudaginn, seinasta tímann í raungreinum fyrir jólafrí :D ! ætlum við að fara í spurningakeppni og verður spurningakeppnin milli hópa A og B, semsagt hópsins sem er fyrir mat og hópsins sem er eftir mat. En ég ætla nú ekki að hafa þetta lengra núna. Ekkert blogg fyrr en eftir jól :D :D :D :D !santa-claus

tölvutími

desember 9th, 2009 by nini

Í dag er miðvikudagurinn 9.des, afmælisdagurinn hennar Hafdísar :D En við erum semsagt í tölvutíma og erum að vinna að ritgerð sem á einmitt að skila á morgun!

Á mánudaginn var fyrirlestrartími eins og vanalega! nema tíminn var nú ekki alveg eins og vanalega, Elsa Ingjaldsdóttir kom og hélt fyrir okkur fyrirlestur um vatn og það sem heilbrigðiseftirlit sér um hér á suðurlandi, bæði svæðið og svo hvað það skoðar í vatninu. Við komumst nú að ýmsu eins og t.d. að í kringum vatnsból á að vera friðað svæði .. en er að vísu ekki alltaf friðað svæði :P Allavega var ýmislegt fróðlegt sem kom fram í tímanum, en það sem mér þótti merkilegast var að enginn sagði neitt og allir hlustuðu!! :P

ritgerðarvinna

desember 6th, 2009 by nini

Í þessari viku höfum við verið að halda áfram í jarðfræði. Á mánudaginn var fyrirlestrartími og fórum við yfir glósur. Í miðvikudagstímanum vorum við að vinna að ritgerðinni sem að við þurfum að skila 10.desember. Ég er búin að vera að vinna mikið að ritgerðinni um helgina og er ég komin með heil 1545 orð og er eiginlega alveg búin, á bara eftir að setja inn heimildaskrá og kannski nokkrar myndir. Semsagt bara svona fínpúss eftir :) Í fimmtudagstímanum vorum við svolítið mikið að spjalla í fyrri tímanum og var það bara voða kósý :) í seinni tímanum horfðum við svo á mynd og var það bara mjög fínt líka ;)

nett

veikindi ..

desember 2nd, 2009 by nini

Í seinustu viku mætti ég bara í mánudagstímann og þá var fyrirlestartími um jarðvísindi. Á miðvikudeginum og fimmtudeginum mætti ég ekki í skólann vegna veikinda en ég sé inná náttúrufræðisíðunni að þau hafa verið að vinna að ritgerð á miðvikudeginum og í stöðvavinnu á fimmtudeginum. Þar sem að stöðvarnar voru :

  • Ósonlagið og gróðurhúsaáhrif – kynna sér málið og svara spurningum.
  • Hrafntinna – skoða – höggva – hjátrú – lesa – skrifa
  • Megineldstöðvar á Íslandi – jarðfræðivefurvísindavefur
  • Steinasafn – skoða – greina
  • Steindir – eðalsteina

nýr hlekkur ;)

nóvember 19th, 2009 by nini

Á mánudaginn var enginn raungreinatími, vegna þess að við vorum út í skógi að vinna verkefni í tilefni af degi íslenskrar tungu.

Í miðvikudagstímanum vorum við í tölvum og áttum að velja okkur ritgerðarefni í heimildarritgerð sem að við eigum að skila 10.desember. Ritgerðin á að mestu leyti að vera unnin í tölvutímum, en við þurfum sennilega að gera eitthvað heima líka. Ég valdi mér að skrifa um þróun mannsins og vona ég bæði að þetta muni verða skemmtilegt og fræðandi :D

Á fimmtudaginn mætti ég ekki í skólann vegna veikinda og fór þar af leiðandi ekki í raungreinatíma, en inná raungreinasíðunni sá ég að krakkarnir hafa byrjað á nýjum hlekk um jarðfræði og horfðu á þátt um náttúruöflin.

jarðfræði

jæææja þá ..

nóvember 15th, 2009 by nini

Í fyrsta tímanum þessa vikuna skiluðum við skýrslu og möppunni þar sem við höfum safnað saman glósum og verkefnum á þessari önn. Annars fór tíminn bara í að fara yfir glósur uppá skjávarpa og spjall.

Á miðvikudeginum var starfsdagur svo að þá var enginn tími.

Í fimmtudagstímanum vorum við í stöðvavinnu og ununm við ýmis verkefni t.d. um eiginleika manna og verkefni um erfðir og umhverfi. Við fórum líka í leik í tölvum þar sem að við áttum að reikna út og gefa fólki rétta blóðið. Í lokin gerðum við svo stutta könnun, þar sem að við áttum að svara 10 af 15 spurningum og gekk mér bara ágætlega .. held ég :)

stutt vika ..

nóvember 4th, 2009 by nini

Þessa vikuna er ég nú ekki búin að fara í marga tíma. Ég var ekki á mánudaginn, en þá var glósutími og fjölluðu glósurnar t.d. um erfðir manna. Í tímanum núna, miðvikudagstímanum erum við í tölvum og getum valið um að blogga, klára skýrslu um rottukrufningu eða vera inná erfdir.is ;) Á morgun verður ekki tími þar sem að við erum að fara á Laugarvatn í ML, þannig að vikan er ekki löng og því ekki mjög mikið til að blogga um :/

 

:-)

október 31st, 2009 by nini

Í vikunni sem nú er að líða höfum við haldið áfram með erfðafræðina :) Að vísu erum við nú ekki búin að fara í marga tíma í þessari viku af því að á  mánudaginn var vetrarfrí og  á miðvikudeginum var enginn kennari. En við nýttum tölvutímann í að gera skýrslu um rottukrufninguna ;) Í fimmtudagstímanum vorum við með kennara og lærðum mjög mikið fannst mér! Við lærðum um blóðflokkana og settum upp í reitartöflu blóðflokka föðurs og móðurs og sáum svo hvaða í hvaða blóðflokki barnið gæti verið í. Í tímanum lærðum við líka mikið um svipgerð, arfgerð, ríkjandi og víkjandi, arfblendinn og arfhreinan og tel ég mig kunna það alveg ágætlega vel og enn betur eftir spjaldaleikinn ;)

blodfjolskyldan