»
S
I
D
E
B
A
R
«
Svo Sannarlega Mitt Síðasta Blogg Á Þessu Skólaári!!
May 10th, 2010 by mrhafthor

Já mikið rétt, skólaárið er að klárast og síðasti hlekkurinn í náttúrufræði í gangi sem er eins og áður kemur fram um frumverur og sveppi. Síðasta vika var útikennsla í náttúrufræði og mér skilst að næsta mun vera úti líka. Gott mál þar sem það er búið að vera fáránlegt veður þessa dagana. Við semsagt í síðustu viku settum upp gildrur fyrir skordýr, bara grófum einhverjar krukkur í mold, og vonumst til að geta skoðað þau vandlega í víðsjá í næsta miðvikudag. Það er að segja ef við höfum gómað einhver skordýr í þessar ágætu gildrur. Í dag fór Gyða með okkur í gegnum flokkun lífvera og þá sérstaklega liðdýra. Semsagt skordýr, áttfætlur og eithvað fleira.

Hérna er mjög nett og fyndið myndband. Fullkomlega þess virði að horfá.

hlekkur 11
Apr 28th, 2010 by mrhafthor

Hlekkur 11 er um frumverur. Þær eru eitt af lífríkjunum fimm. Frumverur eru sumar ófrumbjarga, sumar frumbjarga, sumar bæði, flestar lifa í vatni, sumar í rökum jarðvegi, aðrar inní stærri lífverum, sumer sníklar og valda hýslinum skaða en aðrar lifa í samlífi við hýsil sinn. Og það er mjög misjafnt hvernig þær eru svo undirflokkaðar. Hérna er ein skiptingin sem mér finnst einföldust: Frumdýr, Frumþörungar og Slímsveppir. Svo eru Frumdýrum skipt niður í: Slímdýr, Bifdýr, Svipudýr og Gródýr.

Klassamyndband sem segir í stuttu máli hvað frumverur eru

Gos, Aska og Eldingar
Apr 20th, 2010 by mrhafthor

Hljómar bara kúl, ekki satt? Svo er nú ekki alltaf. T.d. núna þá er gos í gangi í Eyjafjarðarjökli sem er allt öðruvísi og miklu stærra en það sem var í Fimmvörðuhálsi. Úr þessu gosi kemur aska að mestu leiti en núna er víst farið að sjást eitthvað aðeins í hraun. Sem er kannski bara gott því að þessi aska er að eyðileggja lönd margra bænda og íbúa undir Eyjafjöllunum og nágrenni. Því að askan leggst yfir allt þarna og sumsstaðar búin að ná yfir 10 cm lagi. Og í viðbót við allt vesenið að losna við hana úr húsum og öðru þá er rosalegt magn af flúor í þessu. Sem hljómar bara ágætlega því er ekki helling af flúor í tannkremi. Þvert á móti. Því að ef dýr eru á beit á landi fullt af ösku með svona miklum flúor þá fara tennurnar og beinin í þeim að rýrna og skemmast. Til að átta sig á þessu þá eru þolmörk flúors hjá nautgripum um 25 ppm (það er milligrömm af flúor í kílói af ösku (mg/kg = ppm)) en það hefur mælst í ösku frá Heklu 300-4500 ppm, talið er að þessi aska sé svipuð.

Elding er ljós sem sést frá rafstraumi sem hleypur milli staða í skýjum eða milli skýja og yfirborðs jarðar. Rafstraumurinn sem myndar eldinguna hitar loftið í næsta nágrenni svo snöggt að úr verður sprenging og hljóðbylgja sem við köllum þruma berst í allar áttir. (Vísindavefurinn). Í þessu gosi hefur verið rosalegt magn af eldingum og þrumun sem heyrast í 25 km fjarlægð. Ástæða þess er að það eina sem er meira kúl en eldgos er að hafa eldingar fyrir ofan eldgos:

Eyjafjallajökull: subglacial volcanic eruption (continued)

Svo hefur það líka eitthvað með það að gera að það myndast rosalega mikil rafhleðsla í þessum þykku öskuskýjum svo að úr verða enn massífari eldingar.

Hérna er decent kort sem sýnir að Ísland er að rústa evrópu eldingalega séð þessa dagana.

Talið er að 1000 manns látist árlega af völdum eldinga. Hins vegar en einn náungi sem hefur lifað af ekki eina, ekki tvær heldur 7 eldingar. Og til að byrja með eru líkurnar um 3þús á móti einum að þú fáir nokkurn tíma í þig eldingu. Sumir eru óheppnari en aðrir en Roy Sullivan gefur skít í allar líkur með þessu.

Hlekkur 10
Apr 13th, 2010 by mrhafthor

Hlekkur 10 var að byrja og í honum lærum við um heyfingu sameinda, varma og orku. Þetta er einnig síðasti hlekkurinn í eðlisvísindum. Fyrirlesturinn á mánudaginn var semsagt um varma og við gerðum hugtakakort og ehv. Lærðum hvernig orka er notuð í ímsum aðgerðum eins og þegar bíll er keyrður og þegar við borðum o. s. frv. Svo lærðum við um mælieinigar á orku. Sem eru t.d. hestöfl, kílóvött og kaloríur. Svo er hiti ekki það sama og varmi því hiti er hversu heitt það er þegar varminn myndast. Aðalhitamælieiningin er °C. Svo er notað Kelvin í vísindaheiminum og Fahrenheit í Bandaríkjunum.

Hér er myndband sem sýnir muninn á varma og hita.

Þjórsá og læti
Mar 10th, 2010 by mrhafthor

Núna erum við í miðjum klíðum við að fjalla um Þjórsá og allt sem henni tengist. Þetta er 3 vikna verkefni og við erum búin að læra svoldið um sögu hennar og bara almennt um mótun landslags. Í þessari viku minnti mig að við ætlum að læra um líffræði hennar en ég er því miður búinn að vera vant við látinn heima hjá mér. Ég hins vegar sá mynd um helgina sem hét Draumalandið. Nýleg mynd um þróun Íslands á 20. og 21. öldinni. Þar er mikið talað um virkjanir og raforku og fjallað mikið um álverin. Þar kemur Þjórsá mikið inní því hún er öll út í virkjunum. Það var semsagt í umræðunni að virkja Þjórsárverin en mikil mótmæli ullu því að svæðið var friðað, sem betur fer finnst mér því þetta er mjög flott svæði þarna á hálendinu. Svo er líka víst í umræðunni að stækka þau og þá munu þau ná undir Kerlingafjöll og þá inná Hrunamannaafrétt.

Hér er svoldið langt myndbrot úr myndinni (Draumalandið) undir einhverri rosatónlist en þetta er bara verið að sýna flotta náttúru sem er verið að spilla með virkjunum.

Svo er hérna eithvað viðtal við höfundinn þar sem hann segir í byrjuninni nokkrar staðreyndir um Þjórsá og rafmagnið sem hún getur framleitt.

Ég er ekkert sammála þessu öllu með að virkja ekkert og bjarga bara náttúrunni en sumt er þess virði að bjarga.

Veirur
Feb 15th, 2010 by mrhafthor

Við erum að læra um flokkunarfræði í þessum hlekk og í þessari viku um veirur, bakteríur og sjúkdóma. Fengum fyrirlest um úr hverju veirur og bakteríur eru og svo munum við gera plaköt um kynsjúkdóma sem orsakaðir eru af veirum. En semsagt það er deilt um hvort veirur séu lífverur og hvar þær séu þá í flokkunarfræðinni. Fann nú engin merkileg myndbönd eða neitt um veirur í fljótu bragði svo ég læt þetta duga.

bylgjur
Feb 3rd, 2010 by mrhafthor

Í dag vorum við að gera tilraunir með hljóð. T.d. strukum við efstu brúninni á kampavínsglasi og þá kom skært hljóð. Svo horfðum við á kennslumyndband um bylgjur. Semsagt þessa viku og síðustu höfum við verið að læra um bylgjur, rafsegulbylgjur, útvarpsbylgjur, hljóðbylgjur o.s.frv.

Nýr hlekkur
Jan 20th, 2010 by mrhafthor

Það byrjaði nýr hlekkur í vikunni og hann er um kraft og vinnu og afl og eithvað álíka. Allavega gerðum við þannig verkefni í dag. Reiknuðum hvað það þyrfti mikið afl til að labba upp stigann í skólanum og svo framvegis.

Fallhlýfastökk tengist þessu einmitt mikið. Það er að segja hvernig við nýtum okkur loftmótstöðuna til að falla úr mikilli hæð, þyngdarkrafturinn togar okkur niður en þegar fallhlífin er dregin út hægist á manni því loftið er fyrir. Þetta myndi ekki gerast á loftlausum plánetum t.d.

Hér er hins vegar myndband af töffara að nafni Travis Pastrana sem ákveður að fara í fallhlýfastökk án fallhlýfar..

frægir vísindamenn
Jan 6th, 2010 by mrhafthor

Þessa viku og næstu eigum við að gera bæklinga (publisher verkefni) um fræga vísindamenn. Við vinnum í 3 manna hópum og ég vinn með andra og karli gústafi. Við höfum ákveðið að fjalla um arkímedes sem var einn sá merkasti, lifði slatta fyrir krist.

stjörnufræði
Nov 24th, 2009 by mrhafthor

Hlekkur 5 er um stjörnufræði/jarð-eðlisfræði. Við lærum helling um stjörnurnar, geiminn, vetrarbrautir o.s.f. Mér finnst þetta persónulega mjög áhugaverður hlekkur því geimurinn finnst mér er svo magnað fyrirbæri, gaman að pæla í þessu. Svo eigum við öll að gera glærusýningu um eithvað ákveðið af okkar vali sem tengist stjörnufræði, svo sem vetrarbrautir, Mars, Sólkerfið okkar eða eithvað í þá áttina. Ég valdi mér svarthol til að skrifa um því það er sennilega eithvað það magnaðasta sem ég hef heyrt um og langar að komast meira um það hvað það er nákvæmlega. Þessar glærusýningar eigum við svo að bera undir kennarann, bekkinn og svo heima fyrir foreldra okkar. Svo fáum við einkunn sem er ákveðin af kennaranum, bekkjarfélögum og foreldrum.

Svo í tilefni þess að við erum að læra um stjörnufræði þá set ég hérna magnaðasta myndband sem ég hef séð um geiminn og þessar rosalegu stærðir sem eru í kringum okkur. The powers of 10

»  Substance: WordPress   »  Style: Ahren Ahimsa