20/1 10

janúar 20th, 2010 by magnusbjarnis

síðustu 3 mánuði hef eg ekkert verið að gera í sambandi við bloggið en  það hefur bara verið leti en í seinustu viku fóru kennaranir til london og þeir tóku myndir á náttúrulífssöfnum og sýndu okkur nemendum það en þær voru nokkuð flottar.

 

tvær myndir af loftsteini að lenda á jörðinni.

http://www.youtube.com/watch?v=-zvCUmeoHpw

http://www.youtube.com/watch?v=cZ0FQpO5mmo

Fróðleiksmoli: loftsteinn á stærð við hús myndi skilja eftir sig ör jafn stórt og New York city eða stærra.

21.10.09.

október 21st, 2009 by magnusbjarnis

Bloggið hefur verið svoldið bilað seinustu daga en nu er það komið i lag, og ég er að gera t.d. verkefni á erfdir.is. Þar er bekkurinn að læra um gen, DNA og kallana sem komu við sögu í þessum fræðum, eins og Gregor Mendel sem fattaði hvernig einkenni erfast milli plöntutegundar að nafni Garðerta. Hér er mynd af því hvernig gen erfast

Efnajöfnur

september 28th, 2009 by magnusbjarnis

Í seinustu viku lærðum við um efjajöfnur og hvernig á að stilla þær sem er ekki eins erfitt og það virðist við fyrstu sýn… þetta til dæmis er einfalt ef maður skoðar það vandlega.

Bruni metangass

Þegar metangas brennur hvarfast það við súrefni og myndar koldíoxíð og vatn. Efnajafnan, sem lýsir hvarfinu, er stillt í nokkrum skrefum:

  • Fyrst eru tákn efnanna sem hvarfast rituð: CH4(g) + O2(g).
  • Þá er rituð ör —> sem sýnir í hvaða átt hvarfið gengur. Örin táknar einnig jafnaðarmerki.
  • Hægra megin við örina eru efnin sem myndast rituð: CO2(g) + H2O(g).
CH4(g) + O2(g) —> CO2(g) + H2O(g)

Metan Plús Súrefni Ör Koldíoxíð Plús Vatnssameind

Nú á eftir að stilla jöfnuna, það eru ekki jafnmörg atóm af hverri gerð fyrir og eftir hvarfið:

  • Í vinstri hlið jöfnunnar eru fjögur vetnisatóm í CH4 sameindinni en í H2O sameindinni eru aðeins tvö vetnisatóm þess vegna þarf tvær H2O sameindir.
CH4(g) + O2(g) —> CO2(g) + 2H2O(g)

Metan Plús Súrefni Ör Koldíoxíð Plús Vatnssameind Vatnssameind

  • Þá eru fjögur súrefnisatóm í hægri hlið jöfnunnar en aðeins tvö í vinstri hlið, þess vegna þarf tvær O2 sameindir.
CH4(g) + 2O2(g) —> CO2(g) + 2H2O(g)

Metan Plús Súrefni Súrefni Ör Koldíoxíð Plús Vatnssameind Vatnssameind

Hægt er að fara á þessa síðu líka og læra um það sem viðkemur efnafræðinni http://mr.ismennt.is/efn/

september 16th, 2009 by magnusbjarnis

Í þessari viku byrjuðum við í hlekk 2. Það var var á mánudaginn og við vorum að tala um efnafræðina. Í efnafræði erum við bæði að rifja upp gamalt efni og læra um eitthvað nýtt. Það var til dæmis rifjað upp hvað róteind, rafeind og nifteind er. En í dag vorum við í tölvum að læra.