»
S
I
D
E
B
A
R
«
Rottukrufning
okt. 28th, 2009 by lovisahans94

Á fimmtudaginn sl. þá kom hún Gyða ekki ein í tíma, með henni í för voru nokkrar rottur sem við fengum að kryfja og eigum svo að skila skýrslu um krufninguna í næstu viku. Það þótti samt ekki öllum jafn gaman, mér sjálfri fannst þetta ekkert ofur geðslegt en gaman engu að síður, og þeir sem ekki gátu þolað hvíta, dauða kvikindið með skottið á endanum fengu að fara út fyrir. Allur tíminn fór svo í krufninguna og að byrja á skýrslunni.
Á mánudaginn var svo vetrarfrí þannig að enginn náttúrufræði tími var þann daginn og í tíma í dag, miðvikudag, var Gyða ekki þannig að hún sendi skilaboð í gegnum bloggið um að við ættum að fara inná erfdir.ir og skoða þar, gera skýrsluna eða blogga. Ég, Fanney og Guðrún Lilja byrjuðum á skýrslunni okkar í þeim tíma. Ekki meira að segja um það í bili.

október 072  október 093

        –Hér er svo rottan sem við krufum.  –                                                                     – geðslegt ekki satt?–

-Lovísa

Probleimó
okt. 21st, 2009 by lovisahans94

Þar sem blogg-kerfið hrundi í síðustu viku þá hefur bloggið ekki virkað fyrr en nú. En það þýðir ekkert að velta sér uppúr því og ég byrja því bara uppá nýtt. ;)

Á miðvikudaginn í síðustu viku þá vorum við inná erfid.is að vinna verkefni um, já erfðafræðina.
Á fimmtudaginn vorum við svo í hópa vinnu og gerðum verkefni um erfðir og skiptingu erfða frá foreldrum til afkvæma. Þau voru miserfið en við lukum samt við þau. Síðan á mánudaginn var fyrirlestrartími þar sem Gyða fór enn betur í erfðafræðina með okkur.

 

hér er dæmi um reitatöflu eins og við höfum notast við í undanförnum verkefnum. Hún sýnir hverjar líkurnar eru á arfhreinum og arfblendnum afkvæmum.
Hef ekki mikið meira til fræðslu í þetta sinn.

-Lovísa

»  Substance: WordPress   »  Style: Ahren Ahimsa