Jæja, á fimmtudaginn í síðustu viku þá byrjuðum við á því að gera hugtakakort um bylgjur og gekk það býsna vel, heilmikið á því korti þó ég segi sjálf frá. Svo fengum við glósur og Gyða hélt fyrirlestur um innihald þeirra. Þegar það var frá horfðum við á stutt myndband um bylgjur almennt. Við enduðum svo tímann á því að gera verkefni. Í mánudagstímanum var svo eins og oft áður fyrirlestrartími þar sem við fórum yfir mikið af efni um ljós og hljóð. Þar sem við kláruðum ekki að fara yfir allt sem Gyða vonaðist til þá kláruðum við það í tímanum í dag(miðvikudagur) ásamt því að fara yfir það sem verður farið í í könnuninni á morgun. Sem ég er nánast búin að sitja og læra fyrir í nánast tvo tíma og gera glósublað sem við megum hafa meðferðis í könnunina . Ég er ekki kvíðin fyrir könnuninni en ég vona samt að það verði nógu létt til þess að leysa það af hendi nokkuð auðveldlega Það var þá ekki fleira..
Hér er fyndið myndband sem sýnir doppleráhrifin „in a nutshell“ –> http://www.youtube.com/watch?v=-t63xYSgmKE
Og annað um doppleráhrifin (með smá útúrdúr) –> http://www.youtube.com/watch?v=xH6IXBnJuUY&feature=related
-Lovísa
Á miðvikudaginn var þá fórum við yfir bloggin og eðlisfræðidæmin. Á fimmtudaginn þá var tvöfaldur tími sem fór í tilraun um hraða og hröðun. Ég, Guðrúnirnar tvær, Fanney og Sandra vorum saman í hóp. Tilraunin fólst í því að við köstuðum bolta 20 metra og mældum tímann á 5 metra millibili. Notuðumst við við tvo bolta, tennisbolta og borðtenniskúlu. Hröðunar munurinn á þessum tveimur boltum var fremur mikill og skemmtilegt að sjá það ritað niður á blað og sjá. Í dag þá fengum við tíma til þess að klára skýrsluna sem við eigum að skila á morgun. Á morgun í tvöföldum tíma held ég að við förum í bylgjur, ljós og hljóð.
Hér er myndband með „eðlisfræðilaginu“, stöðug hröðun – http://www.youtube.com/watch?v=zX8f1kziJBs
Hér er svo fyrirlestur um eðlisfræði hröðun. (Örlítið flókið þar sem þetta er á ensku)- http://www.youtube.com/watch?v=1QoYefbV0LQ
Svo er hérna myndband þar sem kúla er látin fara ákveðna vegalengd og tíminn og hraði mældur. Nokkuð líkt tilrauninni okkar – http://www.youtube.com/watch?v=O32PhEsX0DY
Annað líkt tilrauninni okkar -hröðun – http://www.youtube.com/watch?v=ixF_Tf4pmE8&feature=related
Hér er fín mynd sem sýnir gröf eins og við gerðum í skýrslunum okkar. – hröðun, hraða og tíma.
Þá er þetta komið -Lovísa
Nú erum við byrjuð í nýjum hlekk, eðlisfræði. Í síðustu viku þá var Gyða úti í London og á meðan hún var þar þá unnum við í eðlisfræði verkefnum sem hún lét okkur hafa áður en hún fór. Á mánudaginn þegar hún var komin aftur sýndi hún okkur myndir úr ferðinni, af söfnum og öðru eins konar. Það voru mjög fínar myndir af steinum, demöntum og fiskum. Á morgun förum við svo yfir verkefnin uppi á töflu og í hreinskilni sagt þá kvíði ég örlítið fyrir. :s
Hér er svo eitt ýkt nett myndband! http://www.youtube.com/watch?v=c3asSdngzLs -sjékk it
En það var þá ekki fleira -Lovísa
Á mánudaginn var fyrsti tíminn á nýju ári og var hann eins og venjulega á mánudögum fyrirlestrartími. Gyða sýndi okkur bestu dýramyndir National Geography 2009 sem voru alveg ótrúlega flottar. Og í tímanum í dag (miðvikudagur) eigum við að blogga um þessar myndir. Þetta voru myndir af Steypireið, Tígrisháfi, öpum og fleira og fleira. Allar þessar myndir finnast inná www.nationalgeographic.co.uk Þetta er mynd af tígrisdýri á sundi. Hún var reyndar ekki ein af þessum myndum sem ég var að tala um, það vildi nefnilega svo til að ég fann ekki þær myndir sem okkur voru sýndar í tíma. Fleiri svona flottar myndir eru einnig inná http://photography.nationalgeographic.com/photography/photos/best-pod-august-09/diving-tiger.html
Hins vegar þá fann ég tíu bestu geimmyndirnar á árinu 2009.
Hér eru tvær af þessum bestu og fleiri er að finna inná http://news.nationalgeographic.com/news/2009/12/photogalleries/best-space-news-pictures-2009/photo6.html Ekki meira til að segja hér.
Nú er komið jólafrí en þar sem ég á eftir að blogga um síðustu vikuna á árinu ‘09 þá ætla ég að klára það af sem fyrst.
Á miðvikudeginum þá átti að vera tölvutími en í staðinn þá kom Hannibal í vatnsveitunni og talaði við okkur um hennar málefni. Hann sagði okkur frá nokkrum vandamálum með að fá kaltvatn í hreppnum vegna jarðhitans og þess háttar. Hann sagði okkur líka frá því að, að meðaltali í Reykjavík þá notar ein manneskja 1,2 – 1,5 lítra af vatni á annaðhvort var það dag eða klukkustund (man ekki alveg :s) en í Hrunamannahrepp þá notar ein manneskja 15 lítra.. Það er alveg talsverður munur en þetta stafar þó að mestu leyti að garðyrkjunni í hreppnum.
Á fimmtudaginn þá var svo spurningakeppnin og hópurinn sem ég var í lenti í öðru sæti þökk sé Sigmari og kunnáttu hans um Benjamin Franklin ( minnir mig :s )
Á mánudaginn kom hún Elsa María í heilbrigðiseftirlitinu og talaði við okkur um vatn. Hún ítrekaði það hvað við erum heppin að eiga svona gott vatn hérna á Íslandi og við eigum að varðveita það vel. Hún fræddi okkur um hvernig hægt er að ganga úr skugga um að vatnsból séu drykkjarhæf og þess háttar og hún sýndi okkur hvernig hún mælir sýrustigið í vatninu. Til þess hafði hún með sér sýrustigs mæli og tvö vatnssýni sem hún leyfði okkur að smakka og finna muninn. Annað var bara ágætis vatn en hitt var heitt vatn sem hafði verið kælt og var ekkert neitt mjög gott. Á miðvikudaginn fengum við tölvutímann til þess að leggja lokahönd á ritgerðina okkar sem við skiluðum svo á fimmtudaginn. Í þeim tíma þá einmitt skiluðum við ritgerðunum okkar og fórum í spurningakeppni á milli kynja. Smá vegis „warm up“ fyrir næstu viku þar sem við ætlum að hafa spurningakeppni á milli hópa. Ég held að það verði bara mjög skemmtilegt .
Hér er myndband um mann sem notar vatn sem eldsneyti – http://www.youtube.com/watch?v=HF__Qlhtnws� Hér er svo annað myndband um vatn, beint uppúr holræsinu – http://www.youtube.com/watch?v=T7SgyXfvdNE
Í þessari viku erum við bara að halda áfram með jarðfræðina nema í tölvutímanum í dag þá héldum við áfram með ritgerðina um þróun mannsins. Í tímanum á morgun verður fyrirlestrartími + annað, annaðhvort verklegt eða verkefni. Ætlaði ekki að segja neitt mikið í dag þar sem ég bloggaði síðast á sunnudaginn, að mig minni, heldur ætlaði bara að koma aftur reglu á bloggið (s.s. alltaf á miðvikudögum )� (Þessi mynd sýnir fjölbreytileika jarðfræðinnar vel )
Það var þá ekki fleira
Nýjasti hlekkurinn sem við erum í fjallar um jarðfræði. Við erum búin að sjá mynd – Earth the power of the planet – um jörðina og úr hverju hún er o.þ.h. sem var mjög fróðleg. Þ.á.m. fréttum við að ekki er hægt að synda undir Ísland af sökum stórs nokkurskonar steins sem heldur landinu í skorðum. Í þessum stein eða klett er mikið af eldlogandi hrauni eða jarðorku (rétta orðið er stolið úr mér í augnablikinu :s) sem kemur stöku sinnum uppá yfirborðið í gegnum eldfjöllin. Á fimmtudaginn var svo stöðvavinna þar sem við greindum steina og skoðuðum demanta og skrifuðum um þá. Við fórum svo á netið og fundum upplýsingar um helstu eldstöðvar Íslands s.s. Hekla, Katla, Lakagígar, Grímsvötn o.s.fr. hér er svo myndband af stöðugu „eldfjalli“ Erta Ale í Eþíópíu, Iain Stewart fjallar um það.. http://http://www.youtube.com/watch?v=Ila0DNzxI8k&feature=related
Á fimmtudaginn gerðum við erfðafræði verkefni í tíma og fórum í blóðflokka leika á netinu. Í honum áttum við að taka blóð úr sjúklingi og finna réttan blóðflokk til þess að geta gefið honum blóð og komið í veg fyrir að hann deyji. Á mánudaginn var enginn tími vegna Dags íslenskrar tungu en í dag þá byrjuðum við á því að finna okkur efni í heimildarritgerð sem á að skila í desember. Ég valdi að skrifa um Neanderdalsmanninn og ég held að það eigi eftir að ganga alveg ágætlega því mér finnst hann vera spennandi viðfangsefni. Næsti tími er svo á morgun og ég er ekki viss hvað við munum gera í honum en það verður ábyggilega mjög skemmtilegt.
Hér má sjá muninn á beinabyggingu Neanderdalsmannsinn og nútíma mannsinns.
Í tímanum á mánudaginn var, eins og svo oft áður, fyrirlestrar tími þar sem við vorum frædd um y og x litninga svo dæmi sé tekið. Í miðvikudagstímanum, tölvum, fórum við aftur inná erfdir.is nema í lok tímans notuðu flestir þann tíma til þess að klára rottukrufninu-skýrsluna. Skýrslunni áttum við að skila á fimmtudaginn en þar sem Hjölli og Sveinn sömdu við Gyðu fengum við frest til mánudags. Í fimmtudagstímann mætti ég ekki þannig að ég get ekki sagt um hvað fór fram þá. Næsti tími er svo á morgun, réttara sagt síðasti tími fyrir annarskil og býst ég við að við byrjum svo á öðrum hlekk. En þá segi ég gott um það og ha’ det godt. -Lovísa