»
S
I
D
E
B
A
R
«
Alveg að verða búið! :o
maí 5th, 2010 by lovisahans94

Jæja, þetta verður líklega síðasta bloggið þar sem við erum bara alveg að klára grunnskóla! :)
En allavega þá núna í síðastliðinni viku þá höfum við verið að rifja upp efnafræði og erfðafræði, (tveir af þeim skemmtilegustu pörtunum að mínu mati :) ) og svo er prófið á miðvikudaginn í næstu viku.  Er orðin svolítið stressuð yfir því en það á eflaust allt eftir að fara vel :) .
Og það sem við fórum aðallega í í dag var efnafræðin, lotukerfið, efnajöfnur og önnur aðaláhersluatriði úr þeim hlekk.

Heimur efnafræðinnar –> http://www.youtube.com/watch?v=a45dXztokZM

Egg í flösku –> http://www.youtube.com/watch?v=ctJyu5ete6Y&feature=related 

Takk fyrir veturinn ! :)

-Lovísa

Upprifjun. :)
apríl 28th, 2010 by lovisahans94

Þar sem nú fer að líða að loka prófi í raungreinum þá höfum við varið síðustu viku í upprifjun úr því efni sem við höfum verið að læra síðan í 8.
bekk. Á miðvikudaginn áttum við að taka próf en vegna þess að við vorum upptekin í þeim tíma þá fengum við stærðfræðitímann á föstudeginum (frí á fimmtud.) til þess. Svo á mánudaginn var farið í upprifjun í líffræðinni og henni haldið áfram í dag, miðvikud. Það sem við fórum í í dag var aðallega flokkun lífvera og einkenni helstu ríkjanna.�
Það flokkunarkerfi sem við notumst við í dag var fundið upp af sænskum manni sem hét Carl Von Linné. Flokkarnir eru fimm – dýr, plöntur, sveppir, dreifkjörnungar og frumverur.  Við fórum aðeins í flokkunina á þeim.

Flokkun, (Tökum sem dæmi ljón)
-Ríki                     Dýraríki (animalia)
-Fylking              Seildýr (chordata)
-Flokkur             Spendýr (mammalia)�
-Ættbálkur        Rándýr (carnivora)
-Ætt                     Kattardýr (felidaea)
-Ættkvísl           Stórkettir (panthera)
-Tegund              Ljón (leo)                                              Tegundaheitið er því panthera leo því það er dregið af ættkvíslinni og tegundinni.

Myndband um Carl Von Linné og flokkunarkerfið hans –> http://www.youtube.com/watch?v=Gb_IO-SzLgk
Meira um flokkunarkerfið / spurning hvort það sé að riða til falls. –> http://images.google.is/imgres?imgurl=http://www.ni.is/media/grasafraedi/gras_annad/starri_hrafnathing.jpg&imgrefurl=http://www.ni.is/midlun-og-thjonusta/hrafnathing/greinar/nr/41&usg=__aFNvCWdbzKXplSynaKv4grMrYz8=&h=329&w=468&sz=35&hl=is&start=8
&um=1&itbs=1&tbnid=1IFQuDPgMZuHQM:&tbnh=90&tbnw=128&prev=/images%3Fq%3Dflokkunarkerfi%2Blinn%25C3%25A9s%26um%3D1%26hl%3Dis%26lr%3D%26tbs%3Disch:1

-Lovísa

Gosi og Elli :)
apríl 20th, 2010 by lovisahans94

Í tímanum á fimmtudaginn þá var stöðvavinna þar sem við áttum að velja 8 stöðvar og gera þau verkefni sem fylgdu. Svo á mánudaginn þá var fyrirlestrartími þar sem við kláruðum að fara yfir glósur um varma, rifjuðum upp rafmagn og töluðum um eldgos og eldingar, sem á svo að vera aðalbloggunar efni þessa bloggs ;) . Og þar sem við erum að fara í próf á morgun (miðvikudag) þá er það hin ágætasta upprifjun :) .
4535094023_dc913248de

Eldgos;
-Eldgos myndast þegar það eru hræringar í jarðskorpunni (jarðskjálfti) og getur valdið því að hraun og annar „eldur“ sem er rétt fyrir neðan hana komi upp þegar myndast gat. Eldgos geta skeð nánast fyrirvaralaust en með sérstökum mælitækjum er hægt að sjá það örlítið fyrir tímann.
Hættan sem fylgir eldgosum getur verið mikil t.d. ef gosið er undir jökli getur komið hlaup þegar ísinn bráðnar, það getur komið öskufall sem getur haft skaðleg áhrif á menn og dýr og svo geta myndast nokkurskonar þrumuský sem í myndast eldingar,(nánar um það neðar.)
-En nánar um öskufallið. Í öskunni sem kemur úr Eyjafjallajökli er mikið um flúor og ef að magnið fer yfir þolmörk í fóðri eða vatni, og ef dýrin innbyrða það þá geta bæði tennur og bein oxið í allar áttir og aflagast og þau hætta að geta étið og gengið. Samt ef að rignir getur hún skolað flúornum úr öskunni en þá er reyndar hætta á mengun á drykkjarvatni.
Askan sem fellur svo í heild sinni getur haft áhrif á tún og grasvöxt þar sem hún leggst yfir allt og kemst í gegnum smæstu glufur. Og ef ekki er hægt að heyja er ekki hægt að fóðra skepnurnar.
Eldingar;
-Elding er ljós sem sést frá rafstrumi og hleypur milli staða í skýjum eða milli skýja og yfirborðs jarðar. Þruma myndast svo þegar rafstraumurinn sem myndar eldinguna hitar loftið í næsta umhverfi svo snöggt að úr verður sprenging og hljóðbylgja. <meira um það hér
http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=347 >
-Þrumuveður myndast þegar loftið er rakt, heitt og óstöðugt. Þegar svoleiðis er stígur heita loftið upp á meðan enn er heitt umhverfis og myndar bólstraský.(Það getur líka myndast þegar kalt loft þröngvar sér undir heitara loft, lyftir því upp og gerir það óstöðugt.) Þess vegna eru gosmekkir kjörskilyrði fyrir eldingar, sérstaklega þegar gýs undir sjó eða jökli. Þá berst mjög heitt og rakt loft upp í mikla hæð og mikill spennumunur myndast. Eins og í gosinu í Eyjafjallajökli á laugardaginn var þá var mikið um eldingar í stróknum.
-Vitað er til um atvik þar sem fólk dó eftir að hafa fengið í sig eldingu í Kötlugosi, í rúmum 30 kílómetra fjarlægð.
trumuskyMyndun þrumuskýs.

Ég held að þetta gefi nokkra hugmynd um hvað málið snýst og ef þið viljið fá frekari upplýsingar getið þið skoðað tenglana hér inni
—-> http://blogg.fludaskoli.is/natturufraedi/category/10bekkur/  (færsla frá 19. apríl)

-Lovísa

Back on track..
apríl 14th, 2010 by lovisahans94

Jæja þá erum við byrjuð aftur í náttúrufræði, fyrirlestrartími á mánudaginn þar sem við fengum hugtakakort til að fylla út og glósur sem var farið yfir. Það er svo tölvutími í dag sem ég missi því miður af þar sem ég fór ekki í skólann í dag, en það verður bara að hafa það :/.
Hlekkurinn sem við erum nýbyrjuð í er um Eðlisfræðina og þá aðallega um varma. Við lentum í smá veseni þegar við vorum að skrifa á hugtakakortið, eða ég a.m.k. þar sem ég veit ekkert rosalega mikið um tengt efni, en ég vona að þekking mín aukist á næstu vikum :) .
Á morgun er svo tvöfaldur tími og það sem við munum gera þá mun tíminn einn leiða í ljós.

-Hvað er eldgos? (skemmtilegt að vita þar sem við erum einmitt að upplifa eitt)  http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=4347
-Hér er svo skemmtileg útskýring á mun á hita og varma.  http://www.google.is/imgres?imgurl=http://www.frimerkehuset.no/fh/lager/427.jpg&imgrefurl=http://attundi.blogspot.com/2005/09/varmi-og-hiti.html&usg=__BHD1WiVJmQ90Z1YLYD6qVGEuUyI=&h=388&w=540&sz=24&hl=is&start=10&itbs=1&tbnid=EI-guPG-iOzIZM:&tbnh=95&tbnw=132&prev=/images%3Fq%3Dvarmi%26hl%3Dis%26sa%3DG%26gbv%3D2%26tbs%3Disch:1

-Lovísa

jájá
apríl 7th, 2010 by lovisahans94

Já það er soldið síðan síðasta færsla var gerð en síðan þá höfum við ekki gert neitt rosalega mikið í náttúrufræði. Við kynntum verkefnin okkar um Þjórsárdalinn og Þjórsá, gerðum sjálfsmat og svona, og svo var það árshátíðarvikan sem tók soldinn tíma að sjálfsögðu og þar á eftir var bara komið páskafrí. :) Núna er svo skólinn byrjaður aftur en Gyða var ekki í dag þannig að það var enginn tími heldur fengum bara að vera úti í góða veðrinu og njóta þess. :) Á morgun er svo næsti tími.

Finnst svo réttast að enda á nokkrum myndum af eldgosinu á Fimmvörðuhálsi ;)

Ferðalag –> Þjórsárdal ;D
mars 13th, 2010 by lovisahans94

Jaaá á fimmtudaginn þá fórum við í áður nefnt ferðalag inní Þjórsárdalinn í sambandi við verkefnið sem við erum að gera í náttúrufr. og samf.fr..
Allavega þá byrjuðum við bara á því að mæta í skólann um morguninn og leggja af stað á rútu þar sem fyrsta stopp var í Árnesi þar sem við hittum Gunnar Örn Marteinsson sveitastjóra, fjölfróður maður um dalinn, og sagði hann okkur frá dalnum og hreppnum og við spurðum hann þeirra spurninga sem við vildum vita. :)
Næst fórum við uppí Skaftholt–> http://skaftholt.is/  <– þar sem er rekið lífrænt bú. Þar fengum við smá skoðunarferð. Þau búa til sitt eigið grænmeti, sinn eigin ost, sem þau svo selja. Þau nota engan keyptan áburð heldur nota dýra úrgang í staðinn og blanda honum við annan úrgang og svoleiðis.  Ásamt skoðunarferðinni þá sögðu þau okkur mikið frá starfinu með „Hamlaða“ fólkinu ,ef ég má koma svo að orði, og þá meina ég fólk sem er ekki fullkomlega „hæft“(lauslega sagt! ) til vinnu annarsstaðar. :/ (þetta er kannski ekki nákvæmlega rétt orðað en ég vona að þið náið því sem ég er að meina) því þau reka einnig vistheimili fyrir 8 einstaklinga með „hömlun“. Ásamt þeim þá starfa þar í kringum 20 manns.
Svo fengum við að spyrja spurninga eins og í Árnesi en svo var förinni heitið á Stóra-Núp þar sem við fengum að borða, brugðum á leik, og skoðuðum kirkjuna og kirkjugarðinn.
Stoppuðum aðeins uppi á Gaukshöfða og sagði Gunnar okkur aðeins frá þeim stað.
Aftur var farið upp í rútu og keyrðum við útí Þjórsárdalsskóg þar sem við fórum í snjóboltahittni keppni, rifjuðum aðeins upp um barrtré og lauftré, fræddumst aðeins um skóginn og héldum svo aftur af stað.
Komumst ekki inn að Hjálparfossi vegna vatns.. :/ þannig að við fórum bara beint í Þjóðveldisbæjinn þar sem við fræddumst um þann bæ sem er eftirlíking af Stöng, heyrðum söguna um Gauk á Stöng sem var drepinn einmitt á Gaukshöfða vegna kvennafars.. :o , var drepinn af fóstbróður sínum því hann var að fíflast við frænku hans, sem honum líkaði ekki mjög vel, og drap hann því Gauk.- Það er allavega það sem sagan segir.
Aftur var aðeins brugðið á leik þar sem við vorum örlítið á undan áætlun.
Þegar tími var til kominn þá fórum við inn að Búrfellsvirkjun þar sem hann Daði Viðar Loftsson (pabbi :> )tók við okkur og sagði okkur basically hvað virkjunin gerir og hvernig hún gerir það. Hún fær vatnið sem rennur í gegnum hana úr Bjarnarlóni sem liggur ofan við virkjunina. Búrfellsvirkjunin er sú neðsta og sú stærsta á þessu svæði sem er virkjað. Sú efsta heitir Vatnsfellsvirkjun, næsta Sigölduvirkjun, svo kemur Hrauneyjarfosstöð, þar á eftir Sultartangavirkjun og síðust en ekki síst sú fimmta Búrfellsvirkjun –>http://www.landsvirkjun.is/starfsemin/virkjanir/burfellsstod/ <–
eftir skoðunarferðina í virkjuninni fengum við kökur og kex í mötuneytinu í Búrfelli.
Næst á dagskrá var að fara upp í Sultartanga og þegar við komum þangað var Daði þar og tók okkur í gegnum stöðina, leyfði okkur að hlaupa upp og niður göngin sem innihalda stálpípur sem liggja að stöðvarhúsinu.–>http://www.landsvirkjun.is/media/sultartangi/sultart_baekl_isl.pdf <–
Síðasta stoppistöð fyrir Hólaskóg var Botnrás Sultartangavirkjunar, þar sem hægt er að stýra vatninu, loka fyrir eða opna fyrir vatnsflæðið. Þegar við komum að þá var lokað fyrir og frekar vesældarlegur pollur lá fyrir framan en svo opnaði Daði fyrir vatnið, og vatnskrafturinn maður! sæll sko.. alveg ótrúlegur kraftur sem spýttist niður í pollinn sem var ekki lengi að fyllast :o . Svo var það einnig nokkuð mergjað þegar hann lokaði strax aftur fyrir hvernig áhrif það hafði á vatnið.. þetta var alveg ótrúlega flott :D .
En þá fórum við útí Hólaskóg þar sem við spiluðum, fórum í gufubað og höfðum það bara alveg ótrúlega gott :D botnrás Dæmi um Botnrás(ekki sú sem er í Sultartanga), rosalegur kraftur einsog sést ;)

Það var þá ekki fleira

-Lovísa

–rafmagn–
mars 10th, 2010 by lovisahans94

Á fimmtudaginn síðasta þá vorum við að vinna í þemaverkefninu, að afla heimilda og byrja á bloggsíðunum og svoleiðis. Við fengum svo heimavinnu sem fólst í því að horfa á Draumalandið á sunnudagskvöldið.
Ég var ekki í tímanum á mánudaginn, heldur var ég á Akureyri á skíðum :D , en ég frétti að það hafi verið farið yfir glósur.
Í tímanum í dag kláruðum við svo Virtual Lab Electricity verkefnið sem við byrjuðum á í síðustu viku. Nokkuð töff forrit ;) – og svo bara að blogga.
Allan daginn á morgun þá erum við svo að fara í vettvangsferð inn í Þjórsárdal, vegna verkefnisins, þar sem við munum skoða Gjánna, Búrfells-og Sultartanga virkjun, Skaftholt og Stóra-Núp. Svo förum við inn í Hólaskóg þar sem við munum gista til föstudags. Það verður án efa skemmtileg og fræðandi ferð ;D.

myndband-virkt rafmagn -> http://www.youtube.com/watch?v=7CEZ7KgRItA
Annað um heim rafmagnsins -> http://www.youtube.com/watch?v=FwEz9ygPHiM 

það var þá ekki fleira
-Lovísa

Þjórsá og Þjórsárdalur.. :D
mars 3rd, 2010 by lovisahans94

Á fimmtudaginn síðasta þá áttum við að byrja á þemaverkefninu um Þjórsá og Þjórasárdal en þar sem þá var skólahreysti þá fengum við fyrstu þrjá tímana á föstudaginn í staðinn. Það gekk bara ansi vel og er ég í hóp með Sveini, Guðrúnu Eddu, Ívari og Alinu. Við byrjuðum á því að fara yfir verkefnið í heildina, hvað Evelyn og Gyða vilja fá að sjá í verkefninu o.þ.h. Svo byrjuðum við bara. Við gerðum hugtakakort, brainstormuðum, og útfrá því gerðum við þankakort þar sem efnið sem við völdum okkur kemur fram og efni því tenkt. Niðurstöðurnar úr verkefninu setjum við svo upp í vefsíðu þar sem heimurinn getur skoðað ;)

Í tímanum á mánudaginn þá var Hildur Lilja með okkur og var með glósur með rafmagnshugtökum og svoleiðis.
Svo í tímanum í dag, miðvikudagur, var hún líka með okkur og fyrri helminginn af tímanum þá vorum við í tölvum í forriti þar sem við gerðum verkefni með því að tengja saman ljósaperur við mismunandi sterkar rafhlöður og sjá mismuninn og fleira. Hinn helminginn þá gerðum við verkefni þar sem við vorum með tvo nagla, vírspotta, rafhlöðu og nokkrar bréfaklemmur. Við áttur að vefja vírinn þétt utanum naglann og setja sitthvort endann á vírnum á skautin á rafhlöðunni og gera naglann að segli. Svo í bláendan á tímanum þá fórum við niður með glerkrukkur og áttum að finna út hvernig á að festa hana á steinvegg án nokkurra hjálpartækja.. yep.. you try it!.. það fattaði það enginn svo Hildur sýndi okkur hvernig það var gert.. pretty amazing if I say so myself. ;) .. ´
-málið er bara að nudda krukkunni við vegginn án þess að sleppa loftinu úr.. that oughta do the trick ;)

gjainGjáin í Þjórsárdal – náttúruperla – :D

images

það var ekki fleira

-Lovísa

Ný önn.
feb. 24th, 2010 by lovisahans94

Nú er byrjuð ný önn en þar sem það er nokkuð langt síðan síðasta færsla þá kemur hér yfirlit yfir undanfarna tíma;

Á fimmtudaginn í þar síðustu viku þá hélt umfjöllunin áfram um æxlun mismunandi dýra og lífsferla. Mjög þægilegur umræðutími :D

Á mánudaginn í síðustu viku þá fórum við að miklu leyti yfir okfrumuna, fórum yfir glósur bara svona eins og venjulega í fyrirlestrartímum.

Svo á fimmtudaginn í síðustu viku var síðasti tíminn á annari önn. Þá tókum við stutta könnun, upprifjun úr áttunda bekk, fórum yfir hvað var metið til einkunnar á önninni og gengum frá og skiluðum vinnubók.

esRafmagn af náttúrulegum völdum :D

Núna á nýrri önn byrjum við svo á nýjum hlekk um eðlisfræði – rafmagn og verðum við í þemaverkefni næsta mánuðinn sem viðkemur þeim málum. Bæði Evelyn og Gyða verða með okkur í því verkefni sem verður í fjóra tíma á fimmtudögum.
Hina dagana, mánudaga og miðvikudaga, verður Hildur Lilja (Kennaranemi) með okkur. Hún kom og var með tímann í dag og lét hún okkur fá blöðrur sem við áttum að nudda við hárið á okkur og gera allskyns verkefni.

Hér er svo grein um Hvað er stöðurafmagn –> http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=1255
Myndband um Rafmagn (Introduction) –> http://www.youtube.com/watch?v=EJeAuQ7pkpc
Útskýring á rafmagni –>http://www.youtube.com/watch?v=Aq31mjWYdJ8&feature=related 

 Það var þá ekki fleira..

-Lovísa

8. hlekkur
feb. 10th, 2010 by lovisahans94

Nú er enn á ný byrjaður nýr hlekkur og í þetta sinn erum við að læra líffræði, nánar tiltekið fósturfræði.
Á mánudaginn fengum við skýrslur og próf í hendurnar og gekk það bara fremur vel. Ásamt því þá gerðum við hugtakakort sem var eins og svo oft áður algert krass sem erfitt er að botna í en það er aukaatriði. ;)
Svo í tímanum í dag, miðvikudag, þá var tölvutími og Gyða var ekki en hún var búin að setja inn verkefni inná náttúrufræðibloggið sem við áttum að vinna í tímanum. Ég lenti því miður í tímaþröng og náði ekki að klára :/ en hvað um það ..

Hér er myndband um keisaraskurð og þau tilföll þegar á honum er þörf – http://www.youtube.com/watch?v=xyN48VnRYUY&feature=channel

fóstur

Mynd þar sem sýnt er fóstur og hvernig það stækkar með vikunum.

»  Substance: WordPress   »  Style: Ahren Ahimsa