Jæja, allt að verða vitlaust! Ferðamenn afboða ferðir sínar til Íslands vegna viðtal BBC við forseta Íslands Hr. Ólaf Ragnar. Hann sagði að Katla væri bara að fara gjósa á næsta leiti og allir skíthræddir við það.
En við vorum í prófi í náttúrufræði í dag og ég vona að ég hafi staðið mig vel. Lögreglan ætlar eitthvað að tala við okkur á eftir þannig að við getum ekki haft stöðvavinnu þannig að við fengum að fara í tölvuverið að blogga þeir sem þurftu en annars eru aðrir í frjálsu.
En ég á víst að blogga eitthvað varðandi eldgosið í Eyjafjallajökli.
Hér kemur smá fróðleiksmoli með eldgos:
Þrátt fyrir að eldgos geti verið ógnvænleg og valdi oft tjóni á mannvirkjum og stundum dauðsföllum eru þau skýrustu merki þess að plánetan okkar er við góða heilsu. Jörðin er enn heit og kröftug pláneta, en frá því að hún myndaðist hefur hún farið stöðugt kólnandi. Mestur er hitinn í kjarna jarðar. Við kólnun leitar varminn út til yfirborðs, þetta köllum við varmatap. Varmatap jarðar á sér einkum stað á tvo vegu. Í fyrsta lagi með leiðni á varma til yfirborðs í gegnum alla jarðskorpuna er hylur hnöttinn. Þar sem jarðskorpan er lélegur varmaleiðari verður kólnun jarðar með varmaleiðni mjög hægfara. Raunar svo hægfara að jörðin verður að grípa til annarra ráða. Seinni aðferðin sem jörðin notar til að kæla sig er með tilfærslu á heitu efni úr iðrum jarðar upp til yfirborðs. Í þessu ferli á sér stað hlutbráðnun á möttulefni jarðar og til verður heitur vökvi sem nefndur er kvika. Kvikan leitar síðan upp til yfirborðs vegna þess að hún er léttari en umhverfi sitt. Þegar kvikan kemst upp á yfirborð verður mikið sjónarspil sem að við köllum eldgos. Í raun má líkja þessu ferli við íþróttamann sem tekur mikið á. Við áreynslu eiga sér stað efnahvörf sem skapa meiri hita í líkama hans en hann getur losnað við með leiðni í gegnum húðina. Því grípur líkaminn til þess ráðs að mynda vökva (svita) en þannig eykur hann varmaflutning sinn og kælingu til mikilla muna. Þegar við upplifum eldgos erum við því að horfa á kólnun jarðar sem fer fram með flutningi á efni og orku úr iðrum hennar og til yfirborðs. Þessi hefur haft mjög jákvæð langtíma áhrif og er í raun forsenda tilvistar okkar á þessari plánetu. Kvikan sem leitar til yfirborðs er ekki bara fasta efnið sem við köllum í daglegu tali hraun og ösku. Einnig berast upp á yfirborðið margar lofttegundir sem með tíð og tíma hafa myndað andrúmsloft jarðar.