18/2 ‘10

Posted febrúar 18th, 2010 by kjartan96

Jæjæ þá er þetta síðasta blogg annar tvö. Við vorum að skoða myndbönd um síamstvíbura í dag. Vá hvað það væri skrítið að vera fastur við einhvern! Ef þú hefur áhuga á að sjá síamstvíbura þá eru myndbönd hér hér og hér!

5/2 ‘10

Posted febrúar 5th, 2010 by kjartan96

Í þessari viku gerðum við lítið, við vorum bara aðallega í upprifjun. Hér er myndband um mann sem brýtur vínglas með því að skrækja.

29/01 ‘10

Posted janúar 29th, 2010 by kjartan96

Í tímanum í dag héldum við áfram að læra um bylgjur og allskonar dót um bylgjur. T.d. tíðni, bylgjulengd, öldutopp, öldudal, sveifluvídd og jafnvægisstöðu. Tíðni er það sama og bylgjulengd. Því meiri sem tíðnin er því hærra (ekki sterkara) kemur hljóðið. Öldutoppur er toppurinn á bylgjuni. Öldudalur er neðst á öldunni. Sveifluvídd er styrkur hljóðsins. Því hærri sem sveifluvíddin er því sterkara er hljóðið. Jafnvægisstaða er það sem bylgjurnar hreyfast um. Sjá mynd

22-01´10

Posted janúar 22nd, 2010 by kjartan96

Í dag byrjuðum við á nýjum hlekk. Hann fjallar um bylgjur. Við erum að læra um hljóðbylgjur, bylgjur í vatni og bara alskonar bylgjur. Við lærðurm líka um bergmál og hvar bylgjur berast best.

 Hér er mynd!

8/1 ‘10

Posted janúar 8th, 2010 by kjartan96

Í dag lásum ég, Geir, Ari og Björgvin Ó upplestur. Han var um vökvaknúin tæki. Hann var svona: Vökva má nota til þess að lyfta hlutum. Til er tæki sem heitir Vökvalyfta og hún byggist á að þrýstingur dreyfist jafn í allar áttir. T.d. á krossara er maður með vökva í bremsunni til þess að auðvelda að bremsa. Stýrið í bílum er yfirleitt með vökva til þess að létta að stýra. Vökvi í flösku eða öðru afmörkuðu rými verkar með þrýstingi sem er jafn í allar áttir. Þegar tappi er rekinn í stútinn verkar viðbótaþrýstingurinn einnig jafn til allra átta, einnig upp á við. Vökvakúin tæki og vélar t.d. vökvaknúin beltagrafa getur skapað gríðarlegann kraft þótt littlum krafti sé beitt í upphafi.

http://www.leoemm.com/images11/vel4.jpg

11/12 ‘09

Posted desember 11th, 2009 by kjartan96

Í tímanum í dag lærðum við um tunglið, sólmyrkva og tumglmyrkva. Þegar það er tunglmyrkvi þá “blockerar,, jörðin tunglið  frá sólarljósi og þegar það er sólmyrkvi þá blockerar tunglið jörðina frá sólarljósi. Það sem við köllum tunglhöf eru bara sprungur og fjöll. Í lok tímanns lásum við lifandi vísindi!

4/12 ‘09

Posted desember 4th, 2009 by kjartan96

Í tímanum í dag kláruðum við spurningar frá síðasta tíma. Þær voru um möndulsnúning og möndulhalla jarðar, steinhvolf, vatnshvolf og segulsvið jarðar. Mér fannst merkilegast að segulsvið dregur sig milljónir kílómetra saman til þess að vernda jörðina fyrir geislum sólar!

Stöðvavinna 27/11 ‘09

Posted desember 4th, 2009 by kjartan96

Í dag vorum við í stöðvavinnu. Það sem ég lærði var um loftslög jarðar, Norður- og Suðurljósin og segulsvið jarðar. Í stöðinni um segulsvið jarðar þá var Halla Sigga búin að teikna hring á blað sem átti að vera jörðin og svo setti hún segul undir hringinn. Við stráðun járnsvarfa yfir blaðið og þá myndaðist mynd svipuð þessari.

 

Þetta er mynd af segulsviði jarðar.

Lofthjúpur Jarðar

Posted nóvember 20th, 2009 by kjartan96

Í tímanum í dag horfðum við á Earth power of the planet, sem fjallaði um lofthjúp jarðar. Ég var nú á nefndarfundi svo ég missti allveg af byrjuninni. Það sem mér fannst merkilegast var kaflinn um metangasið í Síberíu. Þegar vatnið frís þá kemst metangasið ekki upp á yfirborðið og þá er hægt að höggva í ísinn og kveikja í því metangasi sem spýtist upp. Þá er maður búinn að búa til hálfgerðann lampa! Þessi mynd var nokkuð skemtileg af mínu mati!

Föstudagurinn 13. nóv.

Posted nóvember 13th, 2009 by kjartan96

Í tímanum í dag horfðum við á Earth power of the planet, sem er fræðslumynd um eldgos, eldfjöll, hvernig Jörðin varð til og flekaskil. Það sem kom mér mest á óvart var það hvað eldfjöll hjálpuðu mikið við sköpun lífs og jarðar. T.d. var Jörðin einu sinni hulin ís og eldgosin bræddu ísinn. Þessi mynd var skemtileg og fræðslumikil.