Skip to content

Categories:

Seinasta bloggið

núna erum við bara að rifja upp sem við höfum verið að gera og svona eins og frumefni, efnasambönd, efnablöndur, efnaformúlur,hamskipti efna, bræðslumark og suðumark, áhrif loftþrýstings, efnaleysing, mettun lausna, efnahvörf – myndefni og hvarfefni, rafeindir, róteindir, nifteindir, lotukerfið, sætistala, massatala, lotur, flokkar, efnaeiginleikar efna eftir stöðu í lotukerfinu,náttúruleg frumefni – geislavirkni, sérstaka vetnis – sérstaða kolefnis, efnajöfnur, geta stillt einfaldar efnajöfnur, jónir, sýrur og basar já þetta er allt sem við þurfum að læra fyrir lokaprófið.

Posted in Uncategorized.


BLOGG!!

Ég ætla aðeins að fjalla um flúor eldingar og eldgos

Eldgos geta hafist fyrirvaralaust, en gera þó oftast boð á undan sér, t.d. með jarðskjálftum sem greinast á mælum. Hætta getur stafað af eldgosum vegna hraunrennslis og öskufalls. Öskufall úr einu gosi getur borist um allt land með vindum.  Gjóskan getur verið varasöm vegna eldinga, eiturgufa og annarra eiturefna.

Flúor er með hærri rafneikvæðni en þekkt er hjá öðrum frumefnum. Það á auðvelt með að tengjast nánast öllum öðrum efnum. Efnasamband natríums og flúors NaF er notað í tannkrem til að draga úr tannskemmdum. Flúor tærir platínu sem er annars ónæm fyrir öðrum efnum. Flúor finnst aðallega í flússpati (CaF2). Teflon er plastefni þar sem flúor er eitt aðalefnanna. Það er m.a. notað sem smurefni.

Eldingar Þegar eldgos verður undir jökli, sjó eða vatni verða meiri eldingar en ella. Eldingar í slíkum gosum verða vegna rafhleðslu í gosmekkinum. Hleðslan verður til í gígnum við samspil vatns og kviku. Gosmökkurinn verður rafhlaðinn og hleðslan losnar í eldingar; eða með öðrum orðum, það verður skammhlaup. Oftast hlaupa eldingar milli staða í mekkinum sem hafa misjafna rafhleðslu en stundum til jarðar.

Posted in Uncategorized.


Varmi

Varmi er hugtak í eðlisfræði og er sú orka sem flyst á milli misheitra hluta við varmaskipti með geislun eða leiðni. Varmi flyst alltaf frá heitari hlut til þess kaldari, að því gefnu að hlutirnir séu í varmasambandi, og ef báðir eru jafn heitir flyst enginn varmi milli þeirra. Varmi í varmafræði samsvarar til vinnu í aflfræði. Mælieiningin fyrir varma í alþjóðlega einingakerfinu er júl.

Posted in Uncategorized.


Vettfangsferð

Við byrjuðum daginn á því að fara í rútuna í Árnes og hitta gunnar og hann var að tala við okkur svo eftir það skelltum við okkur í rútuna aftur og fórum í bóndabæ sem heitir Skaftholt sem er svokallaður lífrænn bóndabær þar sem þau nota einginn efni sem meinga þau nota bara skít sem áburð og þau búa líka til ost sjálf. svo fórum við til hans sigurðar á stóra núpi þar sem við fengum okkur pulsur og fórum í einn leik. eftir það þá fórum við af stað aftur i rútunni og fórum að búrfelli svo í virkjunina þar  og svo í sultartangavirkjun og svo fórum við bara í hólaskóg held ég og fórum þar í sauna og fórum í leiki einn leikurinn þar sem Hjörleifur þór og Einar Águst rústuðu en já svo man ég ekkert mikið eftir rúttuni daginn eftir hvort að það hafi verið sagt eitthvað við okkur því ég var sofandi allan tímann vegna veikindi :D eeeen BÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆ!!!

Posted in Uncategorized.


10.mars

HALLÓ!!!
í tímanum vorum við í einhverjum leik sem hetir Lab Electricity og vorum að tengja batterí við fullt af svona drasli eins og strokleður og viftur og rofa og fleira. svo erum við að fara í Hólaskóg og við ætlaum að fara til sultartanga og svona og við ætlum að taka gunnar með sem veit mikið um þennan stað.

Posted in Uncategorized.


Rafmagn!!!!!!!!!!!!!!!!!

í dag þá vorum við að setja vír við nagla og svo setja vírinn sem er við naglann og tengja hann í batterí og þá kom einhvernveginn segull í neglan og við settum nælu eða eitthvað og hún festist við naglann.
Rafhrif:myndast þegar óhlaðinn hlutur kemur mjög nálægt hlöðnum hlut.
Afhleðsla:verður þegar rafhleðslur flytjast frá einhverjum hlut sem missir þá rafhleðslu sína t.d. elding, þar sem mikil raforka losnar
Spenna:er mælikvarði á þá orku sem er fyrir hendi til að hreyfa hverja rafeind mæld í voltum ( V )
rafstraumur:
er heiti yfir streymi rafeinda eftir vír. Hann er mældur í einunginni amper og táknaður með I.Amper er mælikvarði á fjölda rafeinda sem fara fram hjá tilteknum punkti á hverri sekúndu.

Posted in Uncategorized.


3.önn að byrja

Jæja þá er 3.önn byrjuð og alveg að vera búinn með grunskóla noic!!. en allavega í dag þá voru við að nudda blöðrum við hárið okkar svo þá kom stöðurafmagn og þá lyftist hárið okkar með blöðruni eða blaðran festist við hárið. en svo áttum við að setta þær saman báðar blóðrunar þegar rafmagnið var í þeim og gá hvort að þær mundu vera saman eða fara frá hveri aðrari og þær skildu að en allavega veit ekki hvað ég á að segja meira svo.
BÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆ!!!!!

Posted in Uncategorized.


kynlíf

Orðið kynlíf hefur mismunandi merkingu í hugum okkar. Sumir setja jafnaðarmerki milli kynlífs og samfara meðan aðrir segja að í hugtakinu felist miklu meira eða allt líf manneskjunnar sem kynveru. Flestir tengja samt hugtakið kynlíf við einhvers konar snertingu og örvun á kynferðislega næmum stöðum líkamans, við kossa, kelerí, gælur, fróun eða samfarir. Kynlíf er hægt að stunda með sjálfum sér. Það er kallað sjálfsfróun og hana stunda langflestir. Mikilvægt er að stunda kynlíf með öðrum aðeins ef maður þekkir og treystir hinum og vill það sjálfur.

Posted in Uncategorized.


Meira blogg

ég ætla að fara að blogga núna útaf það er mjög lant síðan ég hef bloggað síðast og líka þannig að ég verði ekki drulluskammaður en við erum búinn að vera tala um bylgjur og ljós og hljóð og svo er líka próf á morgunn en um bylgjur þá koma úr svona örbylgjum og ég ætla að sýna video um örbylgjum sem er notaðfarsíma og pop.

http://www.youtube.com/watch?v=hooCrZf7SwA

Posted in Uncategorized.


Halló

Ég ætla að blogga núna útaf ég þarf þess en á fimmtudaginn held ég kom sigmar með góða mynd hvernig dýr fæða sig eitt sem mér fannst flottast af öllu var að þegar höfrungarnir snúðu séri vatna og fiskarnir stukku þar upp úr, svo greip höfrungarnir með munninum og borðaði þá.
Hérna er video með þetta.

http://www.youtube.com/watch?v=pQ50PYMXDCQ&feature=related

Posted in Uncategorized.