ææææææææ,eyrun í mér

janúar 29th, 2010 by kata96

Í þessum tíma var stöðvavinn (jibbí)og nóg að gera.Við áttum að slá  tónhvísl í glas og setja hana upp við eyrað.Það kom afar flott hljóð og það löngu eftir að það ætti að hafa hljóðnað.Svo voru líka gerðar tilraunir til  að láta nál hreyfast því að spila á kristalglös.Bylgjunar áttu að hreyfa hana ekki titringurinn.Annars er ég ekki að skilja mikið af þessu.

Hljóðbylgjur

janúar 22nd, 2010 by kata96

Eins og margir vita er ekkert loft á tunglinu.En vissu þið að útaf þessu loftleysi heyrist ekkert á tunglinu.Hljóð ferðast nefnilega í bylgjum,en vegna þess að það er ekkert loft fyrir þær að ferðast í gegnum þá berst hljóðið ekki.

Hljóð berast í gegnum efni.Fast efni leiðir hljóð best,síðan vökvi og svo loft.Því berast hljóð hraðast gegnggnum fast efni en hægast gegnum loft.Hljóð byggist á sameindum og hreyfingu.Sameindirnar hreyfast eins sama hvað hljóðið er :óperusöngur eða geltandi hundur.

gleðileg jól og fljótandi nýtt ár (ókei,lélegur brandari)

janúar 8th, 2010 by kata96

Í dag voru gerð hlutverkaskipti og nemendurnir látnir halda fyrirlestur.Ekki Halla Sigga.Við áttum að fjalla um veggspjöldin sem við gerðum fyrir milljón árum og óteljandi hlekkjum síðan.Ég og Júlía útskýrðum hinum áhugasömu bekkjasystrum okkar hvernig togkraftur (það sama og þyngdarafl)heldur okkur niður á jörðinni og hvernig þetta stórmerka fyrirbæri væri orsök sjávarfalla.Halla Sigga útskýrði einnig fyrr í tímanum hvernig þangdaraflið gerði það einfaldara að fara í sturtu.Hugsa sér að ef við hefður ekk svona mikið þyngdarafl myndu höfin fljóta upp!!!!!!!!!!Hugsa sér.Vatn fljótandi um allt.En þá gætum við einfaldlega flogið burt enda væri enginn hraðarmunur þá á hlutum.Eða þyngdarmunur.

Stóð ég út í tunglmyrkva,stóð ég út í skóg

desember 11th, 2009 by kata96

Geislabelti Van Allen eru tveir innstu hringir segulhvolfsins sem vendar okkur frá bannvænum geimögnum,svo sem þær sem berast með sólvindunum.Segulsviðið er „stöng“ sem fer í gegnum jörðina.Þess vegna notum við hugtökin Norðurskaut og Suðurskaut.Þessi skaut er einu staðirnir sem að agnirnar komast inn og við það myndast segulljós og þess vegna er bara hægt að sjá þau þar.En óttist ekki.Þau valda eingum skaða því þau eru svo hátt uppi.

Tunglmyrkvi myndast þegar Jörðin er á milli tunglsins og Sólarinnar,en sólmyrkvi þegar tunglið kemur á milli Sólarinnar og Jarðarinnar.

Hún snýst nú samt

desember 4th, 2009 by kata96

Sem betur fer.Annars væri endalaus nótt á einum helmingi jarðarinnar og og eilífur dagur hinumeginn.Þá væri nú ekki beint hægt að tala um „daglínu“ lengur .

Jörðin er stæðs af hinum svo kölluðu innri reikistjörnum en það eru þær reikistjörnur sem eru innan loftsteinahjúpsins.

Segulhvolf jarðar teygist milljónir km í átt frá sólu en bara 64000 km sem snýr að henni

High up in the atmosphere

nóvember 27th, 2009 by kata96

Umhverfis jörðina er gufuhvolf sem skipt er í 5 lög.Veðrahvolfið er næst jörðinni,síðan kemur heiðhvolfið,svo miðhvolfið,á eftir því hitahvolfið og að lokum úthvolfið.Norður-og suðurljós myndast af rafsegulli,þess vegna eru þau einungis til á heimskautunum,því það er eins og stöng hafi verið sett í gegnum jörðina og áhrifin virka

bara á endum þessara stangar og þeir eru við heimskautin.

Ljósin eru í 80-250 km hæð.Veðrahvolfið nær frá jörðinni og upp í

9-12km hæð.Þá tekur heiðhvolfið við.Þar er hitinn lár fyrstu 32km

en hækkar svo.Eftir u.þ.b. 50km tekur miðhvolfið við.Það nær upp

 í 80km og hitinn er mikill til að byrja með en lækkar hærra uppi.

Síðan kemur hitahvolfið.Það nær upp í allt að 500km.Ekkert sem hægt er að kalla veður á sér stað þar.Og svo kemur úthvolfið

Breathe,that´s the key

nóvember 20th, 2009 by kata96

Súrefni er ein meginundirstaða lífs á jörðu.Það er ekki hægt að eignast börn í 3000 metra hæð eða yfir það,vegna súrefnisskort.Spánverjar sem settust að í Andesfjöllunum (og það er lægra en 3000 metrar) þurftu að þola fósturlát eftir fósturlát í 63 ár,þótt að indíánarnir sem höfðu búið þar lengur gátu samt eignast börn.

4 lofthjúpar vernda jörðina frá geislum sólarinnar og og sjá til þess að súrefni jarðarinnar fari ekki allt út í geim.Við getum þakkað strýrtuþörungunum það að líf þrýfist á þessari plánetu og það að við eigum járn í hnífapör og bíla ,sem reyndar eru nú á góðri leið að eyðileggja starf strýtuþörunganna,kaldhæðislegt en satt.

Og það varð ljós

nóvember 13th, 2009 by kata96

Við horfðum á mynd um jörðina.Í tvær billjónir ára voru einfrumungar sem kallaðir eru  strýtuþörungarnir.

Erta Ale er eina eldfjallið í heiminum þar sem hægt er að sjá fljótandi hraunið.Í öllum öðrum eldfjöllum kemur það lengra neðan frá.

vegasalt:jibbíjei

nóvember 5th, 2009 by kata96

Samkvæmt því sem Halla Sigga tilkynnti hinum

stórhneyksluðum nemendum sínum þá er vega

salt vél!!!!!Og ég sem hélt að ég hefði heyrt það

allt þegar því var haldið fram að skápur á hjólum

væri vél.Vinna er ekki bara eitthvað sem maður

gerir fyrir penning,það er líka vísindaheiti yfir

orkubreytingu sem verður þegar hlutur færist

með hjálp krafts.

Mikið álag

október 13th, 2009 by kata96

Nú eigum við að skrifa ritgerð um frumu.Þetta er það lengsta sem ég hef skrifað.Hún gildir 30% af einkununni.Sem sagt,mikið stress.

Halla Sigga er búin að fræða okkur smá um frumur.Þær eru allar svipaðar að gerð en samt eru undantekningar.Þær eru lifandi verur sem deyja.Meiri hluti ryks er einfaldlega bara dauðar húðfrumur,en það heyrði ég annarstaðar,ekki í tíma.