Sýrustig

Í dag kíktum við á sýrustig og svona, lærðum um basa og sýrur og allt það. Þegar ég kom heim fór ég að hugsa. Gyða fann lag um ljóstillífun þegar við lærðum um ljóstillífun, lag um frumefnin þegar við rifjuðum þau upp. Svo að ég fann nú lag um sýrustig! :)

PH scale song

Ekki taka lagið of alvarlega, þetta er eitthvað sem þessi maður gerðu fyrir efnafræðitíma og tímdi ekki að semja nýtt lag svo hann stal öðru lagi ( sem er líka awesome) og samdi nýjan texta. Ekki hafa of miklar væntingar.

Hérna er líka mjög gott myndband fyrir náttúrufræðikennara um hvernig maður gerir fljótandi nitur (köfnunarefni) á ódýran og heimavænan máta. endilega skoða ;)

poor mans liquid nitrogen

Ekki gleyma að commenta! Helst ekkert neikvætt samt.

23/09/09!

Í dag stilltum við efnajöfnur. Síðan átti að svara satt eða ósatt spurningum um frumefni. Til hjálpar fengum við til hliðsjónar ótrúlega flott lotukerfi, ef þið hafið áhuga á því er slóðin hérna: ptable.com

Hérna er einnig sönnun á því að þurrís er heitari en þú hélst:

Dry Ice vs. Liquid Nitrogen

Efnafræði rokkar!

Blessaðan daginn!

Í dag gerðum við framhaldsskólaverkefni í efnafræði og flestir brilleruðu. Svo leitaði ég að einhverju svölu til að sýna ykkur og hvað fann ég? ÞETTA:

Instant ice

Njótið!

Hlekkur 2

Í dag byrjuðum við í efnafræði. í tilefni af því ætla ég að setja hlekk á myndband.
Efnafræðitilraun 1

Veriði blessuð og sæl!!!!!!!

Velkomin á bloggið mitt!

Hér munu margir skemmtilegir hlutir gerast, svo endilega kíkjið við reglulega.

Fyrsta postið mitt verður með linki á myndband af plöntum að vaxa.

http://www.youtube.com/watch?v=W-FO8tZQGfk