Nýrun og önnur þvagfæri

  • maí 4, 2010 12:10

Þessa viku var ég að læra um þvagfærin.

  • Nýrun eru eins og hreinsistöð líkamans þau sjá um að hreinsa blóðið.
  • Stelpur eiga í meiri hættu á þvagfærasýkingu en strákar vegna þess að þvagrásin þeirra er styttri.
  • Líkamin losaar sig við úrgang á þrjá vegu, með þvagi, hægðum og öndun.
  • Nýrun á fullorðum manni eru um 10 cm á stærð, og mynda um 2 lítra af þvagi á dag.
  • Þveiti er heiti á mikilvægu ferli sem stuðlar að því að losa úrgangsefni úr líkama lífvera, hvort sem úrgangsefnin myndast við efnaskipti eða hafa safnast saman í líkamanum af öðrum orsökum.

Hamskipti

  • apríl 24, 2010 15:45

Á mánudaginn og miðvikudaginn vorum við að læra um hamskipti vatns. Í seinni tímanum á miðvikudeginum var könnun.

  • Vatn gufar upp=Uppgufun
  • Vatn frýs=Storknun
  • Bræðsulmark vatns er 0°c en suðumark vatns er 100°c

Eðlisfræði!

  • apríl 13, 2010 12:40

Þessa viku er eðlisfræði, við lærðum t.d. um varmaleðingu, varmaburð og varmageislun

Varmaleiðing.  

  • Maður setur skeið í heitt vatn hitnar skeiðin
  • Varmi úr heita vatninu berst í skeiðina
  • Varmi flyst þannig í föstum efnum með leiðingu, ef föst efni mætast berst varminn á milli.

         Varmaburður

  • Loft og vökvar eru á mikilli hreyfingu og þannig getur varmi frá ofni hitað upp heilt herbergi því að loftið sem er næst ofninum hitnar.
  • Heita loftið stígur svo upp því að það er léttara en það kalda.

          Varmageislun

  •   Varmageislun berst hvorki við leiðni néburð því í geimnum er ekkert loft
  • Varminn nær til jarðar með varmageislun
  • Í steikarofnum glóðast það sem er í ofninum með varmageislunm sem berast frá ristinni.

Gosið á Fimmvörðuhálsi

  • apríl 8, 2010 10:40

20. mars um miðnæti hófst eldgos á nærri eins kílómetra langri sprungu á Fimmvörðuhálsi. Talsverð aska féll allt vestur á Reykjanesskaga og olli bændum töluverðu tjóni. 31. mars  opnaðist ný sprunga sem er enn þá að gjósa á fullu en gamla sprungan hætti í gær. Vísindamenn Nasa komust að því að úr sprungunni streymdu meira en sex tonn af hrauni á sekúndu. Leiðangursmenn Top Gear óku sérstaklega breyttum jeppa upp á nýrunnið hraun á Fimmvörðuhálsi í gær. Þótt dekkin væru kæld með vatni kviknaði samt í einu þeirra við hraunaksturinnFrá gosstöðvunum á fimmvörðuhálsi.

Vistkerfi

  • mars 21, 2010 18:57

Á þriðjudaginn var ég að læra um vistkerfi þjórsár. Í henni eru fiskar, gróður, þörungar, vatn og fleira. Fiskarnir éta gróðurinn, þörungarnir og fiskarnir þurfa vatn, fiskarnir og gróðurinn þurfa þörunganavegnasúrefnis. Ef allir þörungar myndu deyja væri neitt súrefni og fiskarnir deyja. Síðan var ég ´+ika að læra um vistkerfi Þjórsárvers sem virkar þá alveg eins nema önnur dýr og aðrar gróðurtegundir.

Annarskil=)

  • febrúar 16, 2010 11:34

Seinustu vikur erum við búin að vera að læra í liffræði um ónæmiskerfið og fleira. Í þessari viku vorum við að læra um taugakerfið. Þar á meðal hvernig eru viðbrögðs líkanan ef einhver klappar fyrir framan þig og afhverju við finnum til. Líka hluti heilan hhver hluti sinnir einhverju t.d. sjón, heyr og fleira, og hvernig heilinn vinnur allur saman við hreyfingar og annað.

En á þessari önn erum við annars búin að læra um: skynfæri,vistkerfi,taugakerfið,ónæmiskerfið og húðina.

Vísindavaka

  • janúar 7, 2010 09:49

Í þessari viku áttum við að finna okkur einhvern/hverja til þess að gera tilraun með. Ég er með Jóni Gunnari. Við erum að gera tilraun með heitt og kalt loft. Tilraunin gengur út á það að maður setur flösku með blöðru ofan á ofan í fötu fulla af heitu vatni og bíður í nokkrar mínútur. Þá fer loftið úr flöskuni yfir í flöskuna. Þar á eftir hellum við heita vatninnu úr og setjum ísmola ofan í. Þá fer loftið úr blöðruni aftur ofan í flöskuna.

Síðan kynnum við tilraunina á þriðjudaginn fyrir framan bekkinn

Jarðeðlisfræði!

  • desember 10, 2009 09:54

Í þessari viku kláruðum við glærusýninguna og gerðum kynningu á Krítartímbilinu. Ég var í hóp með Önnu og Eyrúnu. Við gáfum líka mat á aðra hópa en okkur gekk samt mjög vel.

Krítartímabilið er jarðsögulegt tímabil sem nær frá lokum Júra tímabilsins fyrir um 146 milljónum ára til upphafs tertíer tímabilsins fyrir 65,5 milljónum ára. Í lok krítar lauk einnig Miðlífsöld og Nýlífsöld tók við.

Á Krítartímabilinu brotnaði risameginlandið Pangea endalega upp í þau meginlönd sem nú umlykja Jörðina. Hið hlýja og raka loftslag sem mótaðist hafði á júratímabilinu hélst yfir á krítartímbilið en breytingar urðu á gróðri er leiddu til umskipta í helstu jurtaætuflokkunum. Minna fór fyrir sumum flokkum t.d. Graseðlum. En mörgu öðrum vegnaði vel fram að hvellinum mikla við lok krítar. Stórmeginlöndin Laurasía og Gondvana voru hins vegar að liðast í sundur og afar hátt sjávarborð færði mörg svæði í kaf sem þar sem nú er þurrlendi.

Jarðeðlisfræði glærusýning

  • desember 3, 2009 09:44

Þessa viku héldum við áfram með glærusýninguna og kláruðum hana. Í þessari sýningu fjöllum ég, Anna og Eyrún um krítartímabilið og risaeðlurnar sem þar voru uppi. Við fjölluðum um grameðlu, salteðlu, nashyrnigseðlu, snareðlu og frumhyrnu.

Krítartímabilið er jarðsögulegt tímabil sem nær frá lokum Júra tímabilsins fyrir um 146 milljónum ára til upphafs tertíer tímabilsins fyrir 65,5 milljónum ára. Í lok krítar lauk einnig Miðlífsöld og Nýlífsöld tók við.

Algengasta kenningin um útdauða risaeðlanna er líklega loftsteinskenningin. Þá vilja þeir meina að loftsteinn hafi rekist á jörðina. Við áreksturinn þyrlaðist mikið ryk útí andrúmsloftið sem skyggði á sólina í mörg ár. Það hefði þýtt að hitastigið á jörðinni hefði lækkað verulega og að plöntur hefðu drepist og mörg dýr hefðu soltið eða drepist úr kulda.
En til eru þrjár aðrar kenningar og má þar fyrst nefna  veðurfarskenninguna þá vilja þeir meina að hitastigið hafi hækkað á sumrin og lækkað á veturna. Talið er að þessar breytingar hafi valdið því að risaeðlurnar dóu út. Síðan Eggjaþjófakenningin þá hafa líklega lítil smádýr ástærð við rottur tekið upp á því að éta eggin. Síðasta kenningin er Eiturplöntukenningin þá kom líklega ný planta sem að var eitruð og drap jurtaæturnar og þess vegna sveltu kjötæturnar í hel. Mér persónulega finnst veðurfars breytingin líklegust.’

Jarðelðlisfræði

  • nóvember 30, 2009 20:38

Miðvikudaginn 25 nóvember.Vorum við að byrja á nýju verkefni í hópavinnu. Ég lenti í hóp með Eyrúnu og Önnu. Vip eigum að gera glæru sýningu um krítar tímabilið og það sem þar gerðist. Fjalla líka um risaeðlur og hvernig voru endalok risaeðlanna.