Miðvikudagurinn 6 jan. 2010
Jæja. Þá erum við öll nýkomin úr jólafríinu og búin að borða að sjálfsögðu allt of mikið um hátíðina en það gerist ekki nema 1 sinni til 2 sinnun á ári að þá njótum við þess nú mjög vel.
Á mánudaginn tókum við því mjög rólega í náttúrufræði og Gyða var að spirja okkur hvernig við vildum hafa tímana í náttúrifræði það sem eftir er af árinu og við sögpum henni það að sjálfsögðu.
Ídag, miðvikudag, vorum við að blogga og við fengum ritgerðina sem við vorum að gera um daginn og það fengu 8, 10 í einkunn en ég fékk 9,5 sem ég er mjög sáttur við.
gat því miður ekki sett inn mynd..
Fimmtudagur 10. des
Á mánudaginn kom Elsa Ingjaldsdóttir, sem er konan hans Sigurðs Inga í heimsókn í náttúrufræðitíma og var að halda fyrirlestur um vatn, gæði vatns og og hvernig vatnsból eiga að vera og hún sýndi okkur myndir af vatnsbólum og þau eru greinilega mjög mismunandi af gerð og stærð. Við fengum að smakka vatn sem var mjög mismunandi af gerð, það vatn sem kemur stutt að er með meira af efnum en það sem kemur langt að og er vatnið sem kemur lengra að er því betra og hollara.
Á þriðjudaginn vorum við að leggja lokahönd á ritgerðina sem við áttum að vera að gera og skila í dag og ég sendi Gyðu hana í tímanum.
Tíminn í dag var mjög þægilegur. Við fórum í spurningakeppni, stelpur á móti strákum og fór svo að strákar unnu. Við skoðuðum líka blogg og tókum þessu rólega.
Sunnudagurinn 6. desember
Er að klára að skrifa heimildaritgerðina.
Það sem ég á eftir er lokaorðin. Að vísu á ég ekki að skila ritgerðinni fyrr en á fimmtudaginn. Það er bara gott að vera búinn að klára hana.
Fór á endurocross í gær, djöfull var gaman. Kári Jónsson vann þetta, enda þektur fyrir að vera góður í enduro. Það fóru nokkrir fram fyrir sig og sumir prjónuðu yfir sig og margar flottar dettur. Íslandsmeistarinn sjálfur í motocrossi komst ekki áfram því hjólið hjá honum bilaði.
Hlakkar til jólanna…..
Fimmtudagurinn 3. desember
Var að vinna í ritgerðinni og er búinn að vera 5 tíma að skrifa 900 orð. Það er kanski ekki mikið en það er frekar erfitt að finna heimildir um steingervinga. Er orðinn mjög þreittur og dasaður og langar að fara að sofa.
Erum líka að skrifa 2. blaðsíðna ritgerð í þjóðfélagsfræði um einhvern frammhaldsskóla sem maður velursér að skrifa um en það á ekki að skila því firr en 17. des.
23/11´09 26/11´09
Á mánudaginn var fyrirlestrartími og við vorum að rifja upp námsefni frá því í 8. bekk um landafræði og svo jarðeðlisfræði frá því í 9. bekk. Á miðvikudaginn vorum við að vinna í ritgerðinni og við áttum að skila efnisyfirliti í dag en ég náði að klára það á miðvikudaginn. Í dag vorum við í stöðvavinnu og á hverri stöð áttum við að gera eftirfarandi: skoða og skrifa um hrafntinnu en hrafntinna er frekar sjaldgæf og svo áttum við að skrifa um hrafntinnu… Næst fórum við í að skrifa upp megineldstöðvar á Íslandi og við fundum nokkrar……. Þar á eftir fórum við í að gera tvær spurningar um gróðurhúsaáhrif og ósonlagið…. Gyða var búin að fá steinasafn sem við máttum skoða en þurftum ekki að gera nein verkefni um það…:-)
Skemmtilegur og fræðandi tími….
19/11´09
Í dag vorum við bara mjög afslöppuð í tímanum og vorum að tala um þróun mannsins. Við þurfum líka að gera ritgerð sem er eitthvað tengt því. Ég ákvað að skrifa um steingervinga út af því mér finnst þeir töff og hvernig þeir mynduðust. Hér er myn af einum slíkum.

Loksins komið í lag :-)
Jæja bloggið er loksins komið í lag. Hér er slóð inná eina síðu sem er um lítinn staf og stóran staf.
Endilega skoðið þetta!!!
http://www.youtube.com/watch?v=RNhlH9VfCYk
Við vorum aðeins inná erfðir.is líka
Þetta var þægilegur og rólegur tölvutími.