Síðasta bloggið mitt. Og mesta stressið.
Þá er komið að því. Þetta verður líklegast síðasta bloggið mitt því skólinn er að verða búinn og lokaprófin eru þegar byrjuð. Við förum í lokaprófið í náttúrufræði eftir viku eða 12. maí.
Ég er orðinn pínu stressaður fyrir lokaprófið, en þá verður maður bara að læra og fara MJÖG vel yfir allt sem kemur á prófinu. Í þessari viku og síðastliðinni viku höfum við verið að rifja upp efnafræði og erfðafræði og ýmislegt sem tengist því. Það sem við fórum yfir í dag var efnafræðin og við fórum einnig mikið í lotukerfið.
Takk fyrir mig. Kv Ingvar Jóhannsson.
Þvi miður gat ég ekki sett inn myndir.
Eldgos í Eyjafjallajökli
Eins og allir vita að þá er eldgos í Eyjafjallajökli. Mikil aska hefur fallið il jarðar undir Eyjafjöllunum og í Landeyjunum. Vegna öskufallsins hafa bændur lent mjög illa í því þar sem allur gróður, tún og beitarhagar hafa skemst að þá er mjög erfitt að halda áfram búskap og því hafa nokkrir bændur fækkað allverulega gripum sínum og sumir ætla að hætta, allavega tímabundið.

Áhrif Flúors á menn og skepnur.
Flúoreitrun í mönnum og í dýrum, það er þegar flúorupptaka er meiri en hæfilegt er í lengri eða skemmri tíma kemur fyrst fram í bein og tannvefjum. Í mönnum kemur þetta fyrst fram í blettum á glerungi og í kjölfarið koma fram skemdir í tönnum. Í kindum getur komið fram svokallaður gaddur, sem er ofvöxtur í vissum tönnum. Önnur áhrif á mönnum eru liðverkir og aukin beinmyndun.

Hér fyrir ofan er skýringamynd um hvernig og hvar kvikan kemur upp.
Gosið hafði ekki bara áhrif á okkur Íslendingana, heldur stoppaði það flest alla flugvelli í Evrópu, sem er slæmt, vegna þess að þá fá fyrirtæki ekki vörurnar sem þau þurfa. Það veldur því að þau þurfa að fá þær sjóleiðis og það veldur því að verðið ríkur upp úr öllu valdi.
Hér fyrir neðan eru svo nokkrar myndir.



Hér eru svo myndir af hlaupinu.
Tölvutími
Við vorum að hlusta á Gyðu í fyrripartinum af tímanum. Hún var að tala um eldgosið í Eyjafjallajökli. Svo fórum við í tölvuver í seinnipartinum og gerðum sjálfspróf sem Gyða setti fyrir okkur og ég náði að klára þau bæði:
Nýr hlekkur: Varmi og orka
Við erum byrjuð í nýjum hlekk sem heitir Varmi og Orka. Í mánudagstímanum þá byrjuðum við á hugtakakorti og við fengum einnig glósur.Við erum búin að gera hugtakakort og þar skrifuðum við niður eitthvað sem tengist varma. Orku er skipt upp í 6 mismunandi orkumyndir og þær eru hreyfiorka, stöðuorka, varmaorka, efnaorka, rafsegulorka og kjarnorka. Þegar varmi flyst á milli staða kallast það varmaflutningur.
Hér er frétt um eldgosið sem byrjaði í Eyjafjallajökli í morgun.
Búist við skoti í Markarfljóti
Göngubrú við Gígjökul er komin á kaf og líklega farinn. Búist er við að skot komi í Markarfljót á næstu mínútum. Lögreglan beinir því til bænda og annarra sem fengu að fara inn á svæðið í morgun að yfirgefa það strax.
Lögreglan er búin að loka svæðinu og beinir öllum frá ánni.
Vatnamælingamenn eru núna á leiðinni frá Reykjavík að Markarfljóti. Enginn sjálfvirkur mælir er í ánni. Gunnar Sigurðsson vatnamælingamaður segir að tekið verði sýni úr ánni. Hann segir engan vatnamælingamann vera við Gígjökul. Þar sé hættulegt að vera. Hann segir stutt í að mælirinn þar fari á kaf.
Talið er að rennslið úr ánni sé 1000 rúmmetrar á sekúndu.
Ef það kemur stórt hlaup í kjölfar eldgoss í Eyjafjallajökli má búast við að varnargarðar í Fljótshlíð láti undan og vatn fari niður Markarfljótsaurar. Kjartan Þorkelsson sýslumaður segir að þetta sé ein af ástæðunum fyrir þeim víðtæku rýmingu sem ákveðnar voru í nótt.
„Það er vitað að ef það kemur stórt hlaup þá þola varnargarðarnir í Fljótshlíð það ekki. Þeir munu þá láta undan,“ segir Kjartan. Hann segir að hlaupið muni þá fara niður Fljótshlíð og í gamla árfarvegi. Mannvirki sem stand lágt séu í hættu ef þessi atburðarrás gangi eftir.
Rafmagnsfræði
Það hefur nú ekki farið fram hjá neinum að við erum að vinna með hugtakið rafmagn. Við fengum að vita að það er hægt að framleiða rafmagn ú kolum, olíu, kjarnorku vatnsorku og fleiru. Hún sagði okkur afhverju við á Íslandi notum mest vatnsaflsvirkjanir til að fá rafmagn, það stafar helst af því að sú orka er vistvæn og endurnýjanleg útaf hringrás.
Það sem við erum búin að vera að læra um, ásamt ýmsu öðru er:
Rafsegulsvið sem nær yfir ólík en nátengd hugtök.
-SEGULSVIÐ = myndast þegar straumur er á, þegar rafeindir eru á hreyfingu.
-RAFSVIÐ= Tengist spennu og er mælt volt á metrum, óháð rafstraumi.
Ýmislegt
Frumendir = rafeindir – hleðsla, rótendir + hleðsla, niftendir 0 hleðsla
Aðdráttarkraftur= togar að( + og – )
fráhrindikraftur= fer frá hvort öðru alltaf ( – og – eða + og +)
Hér er linkur um:
Nauðsynlegar virkjanir vegna orku fyrir álver í Helguvík
Hér eru nokkrar myndir sem tengjast Þjórsárdal.
Gjáin að sumarlagi og vetrarlagi.



Miðvikudagurinn 10/3´10
Góðan daginn. Við erum enþá að vinna með Þjórsárdalsverkefnið og erum komin vel á veg með það. En ég kemst ekki lengra í því að blogga því ég verð að fara.
Fimmtudagur 4/3,10
Við erum núna að vinna í hópum og minn hópur er að vinna með Þjórsárdal og við tókum ferðaþjónustuna. Við ætlum að segja nákvæmlega frá allri ferðaþjónustu sem fer fram í Þjórsárdal. Td. í hólaskógi, Steinsholti og fleirum stöðum í Þjórsárdal og nágrenni. Síðan í næstu viku förum við í Þjórsárdal í einskonar kynningarferð og þá eigum við að nýta okkur tækifærið og fræðast eins mikið og við getum svo þetta verði fullkomið hjá okkur.
Hér er linkur inná Óbuggðaferðir Unnars Garðarssonar. http://www.obyggdaferdir.is/
Fósturfræði
Núna erum við í 8. hlekk sem heitir fósturfræði. Við erum aðallega að fræðast um hvernig fóstrið verður til, hvað gerist á þessum níu mánuðum og svo framvegis.
Á mánudaginn og fimmtudaginn var fyrirlestrartími og svo á miðvikudaginn var tölvutími en í honum gerðum við verkefni um fóstur og hver er munurinn á fuglum, fílum, fiðrildum, fisk og fífli. En flest allir náðu ekki að klára.

Hér er fóstrið 15 vikna.

Hér er það 35 vikna og er þá heldur betur farið að stittast í fæðingu.
4/2´10 Fimmtudagur
Hér eru myndir:

Þssi efri sínir mjög lága tíðni en sú neðri sínir mjög háa tíðni og tónhæðin verður hærri aftar á myndinni.
4/2´10 Fimmtudagur
Við erum í hlekk 7 sem fjallar um bylgjur, hljóð og ljós. Sjálfur er ég búinn að læra mikið um það og ég veit núna hvað enkennir bylgju og það er útslag, jafnvægisstaða, öldutoppur og öldudalur. Og hvað er þverbylgja og langbylgja ásamt mörgu öðru.
Ég skrifaði heila þéttskrifaða A4 blaðsíðu í gær sem samsvarar um 400 orðum en við máttum hafa eitt þéttskrifað A4 blað í prófinu. Vegna þess að við skrifuðum það niður að þá mundum við allt mikið betur og þurftum því ekki eins mikið á hjálpargögnum að halda eða allavega þurfti ég ekkert á blaðinu að halda…

