»
S
I
D
E
B
A
R
«
fróðleikur sem ég gleymdi að “publisha” :)
Feb 10th, 2010 by gudrun95

til eru nokkrar gerðir af bylgjum. þeim er skipt í langsbylgjur og þverbylgjur og hér getiðið lesið um þær. En dæmi um bylgju er hljóðbylgja 

Hljóð eða hljóðbylgjur eru þrýstingsbylgjur sem berast í gegnum efni. Eiginleikar hljóðs fara eftir bylgjulengd þess, tíðni og öðrum þeim eiginleikum sem einkenna bylgjur almennt. Hljóðbylgjur ferðast með hljóðhraða sem er mjög misjafn eftir efnum, en oftast er átt við hraða hljóðsins í lofti. Hann er nálægt því að vera 330 m/s en breytist með hitastigi.

Menn skynja hljóð með heyrnarskynfærum sínum, og í sumum tilfellum er orðið hljóð notað einvörðungu um hljóðbylgjur sem menn geta heyrt. Í eðlisfræði er þó hljóð notað í víðtækari skilningi, og titringsbylgjur af hvaða tíðni sem er, og í hvaða efni sem er, eru taldar til hljóðs.

hlekkur 7
Jan 30th, 2010 by gudrun95

hlekkur 7 var í þann mund að byrja . í þeim hlekk er verið að fjalla um eðlisfræði og þá einstaklega bylgjur og einhvað því tengdu.það var foreldraviðtöl á mánudeginum svo að þá var engin skóli.  Á miðvikudeginum í fyrri tímanum gerðum við hugtakakort yfir bylgjur, hljóð og ljós og rifjuðum upp það sem við kunnum. Gyða var líka með fyrirlestur  um einkenni bylgna og hljóðs og við fengum glósur með því. Í seinni tímanum var stöðvavinna. þá var í boði að skoða phet forritin, lesa lifandi vísindi, laga glósurnar eða hugtakakortið og gera verkefni úr Auðvitaðbókinni 2, bók sem heitir Orkan og einhverri framhaldsskólabók. í stöðvavinnunni var ég með Rakel, við komumst bara í það að skoða phet forritin.
á fimmtudeginum var svo tölvutími. þá fengum við tíma til að klára skýrsluna síðan í seinustu viku eða skoðið vefinnscience dailyeðlisfræði, hljóðmúrinn hvað?   eða hvað?  og síðan skoða Phet forritin betur. og svo blogga í lokin en mér tókst það ekki svo að ég gerði það núna ;)

Kraftur,vinna og afl.
Jan 25th, 2010 by gudrun95

á mánudaginn var farið yfir vinnuna frá seinustu viku og svo sýndi Gyða okkur myndir frá London þar sem hún var í seinustu viku. Við í hópnum okkar skiluðum öllu á réttum tíma og ég held reyndar að það hafi allur bekkurinn gert.        

á miðvikudeginum var síðan mjög skemmtileg vinna þar sem  við vorum í sömu hópum og í seinustu viku( nema það vantaði Þórmund). verkefnið var þannig að við áttum að finna okkur stiga og mæla hæð stigans sem í okkar tilfelli var 2,27 metrar. Svo hljóp ég upp stigan 5 sinnum og gekk 5 sinnum á meðan  stelpurnar tóku tíman á því og skráðu niður hjá sér.  við reiknuðum út meðaltalið af hvoru skipti (gangandi og hlaupandi) og settu upp í fína töflu. Síðan var aðalmálið.. það var að finna út Kraftinn sem notaður var, vinnuna sem í þetta fór og aflið sem ég notaði til að fara upp þennan stiga.
hér eru formúlurnar sem við notuðum til að finna þetta út:
Kraftur= massi x hröðun
Vinna= kraftur x vegalengd
Afl = vinna
         tíma
og hér er þetta skýrt út  örlítið nánar :

http://is.wikibooks.org/wiki/Geta_beitt_hugt%C3%B6kunum_vinna,_orka_og_afl_og_l%C3%BDst_tengslum_%C3%A1_milli_%C3%BEeirra

við áttum líka að gera skýrslu um þetta og við erum komnar langleiðina með hana en við eigum að skila henni á miðvikudaginn.
á fimmtudaginn áttu síðan hóparnir að kynna bæklingin og plakatið sem hann gerði í seinustu viku. og ég vona að vinnan okkar hafi bara verið góð :)

ég rakst á þessar fréttir ef þið viljið skoða;)

http://www.mbl.is/mm/frettir/taekni/2010/01/25/likur_a_ad_finna_lif_a_odrum_hnottum_aukast/

http://www.mbl.is/mm/frettir/taekni/2010/01/21/skyrtur_ur_rafhlodum/

http://www.mbl.is/mm/frettir/taekni/2010/01/25/fyrsta_kvikmyndin_gerd_af_opum/

vika 11.-15. jan
Jan 14th, 2010 by gudrun95

Á mánudeginum vorum við að vinna í hópunum okkar um frægan eðlisfræðing. Við fórum yfir bloggin, stöðu hópanna og fundum út hver var hópstjóri í hverjum hóp. Í okkar hóp er Rakel hópstjóri.   í verkefninu um frægan eðlisfræðing áttum við að gera bækling (eins og ég sagði í seinasta bloggi) og  um eðlisfræðingin sem við völdum okkur og hvað hann er þekktur fyrir og einhvað svona. Einnig á að gera plakat úr einhverju einu sem tengist  eðlisfræðingnum sem við völdum og þar sem við vorum með Newton þá ákváðum við að gera plakat um þyngdarlögmál Newtons.  Við hófumst handar við plakatið í mánudagstímanum þó að það hafi ekki gerst neitt svakalega mikið hjá okkur en þó einhvað.
Á  miðvikudeginum var Gyða  ekki en við héldum samt áfram með bæklingin okkar og plakatið. Það náðist að klára plakatið hjá okkur og bæklingurinn var á lokastigi. Ég var afar sátt með hvernig plakatið var og hvernig okkur gekk í tímanum :)
Á fimmtudeginum  var tölvutími og þá var Bára með okkur. þann tíma fengum við til að klára bæklingin og áttum við að skila honum í endanum á tímanum. okkur tókst að klára bæklingin og ég held að okkur hafi öllum fundist bæklingurinn vera bara nokkuð nettur! :D  

…..hér eru tvær furðulegar fréttir sem ég fann ;)

http://mbl.is/mm/frettir/taekni/2009/12/27/afengisliki_an_timburmanna_i_throun/

 

http://mbl.is/mm/frettir/taekni/2010/01/07/farsimar_vinna_gegn_alzheimer/

bæklingur um Newton !! :)
Jan 10th, 2010 by gudrun95

núna er búin fyrsta vikan í skólanum á árinu 2010!!  á mánudaginn var voða svona chill tími. okkur var sýnt náttúrumyndir sem voru geðveikt töff, þetta voru víst einhverjar flottustu náttúrumyndir í heimi eða einhvað álíka.    Gyða lét okkur líka gera tengla einhvað til að sjá með hverjum við vildum helst vinna með í hópavinnu. ein af ástæðum þess er að  í þessum hlekk eigum við að gera bækling um frægan eðlisfræðing og þá eiga að vera 3 til 4 í hverjum hóp. á mivikudeginum fékk ég að vita að ég er með Rakel, Þórmundi og Sylvíu í hóp og við völdum okkur að gera bækling um Newton. En Newton er mjög þekktur eðlisfræðingur og þyngdarlögmálið er oft kallað þyngdarlögmál Newtons. plús það að hann er ævinlega kenndur við þrjú lögmál = Lögmál Newtons.  Viljiru vita einhvað meira um Newton eða lögmálin hans þá mæli ég með að kíkja á vísindavefinn; http://www.visindavefur.is/svar.asp?id=1620   þarna eru alveg slatta miklar upplýsingar! ;)

á miðvikudeginum fengum við að vita einkunnina út frá glærukynningunum okkar, þar sem ég fjallaði um sólina. Svo  var stöðvavinna og þá byrjuðum við í tölvum  að safna upplýsingum um Newton og þessi blessuðu lögmál hans. Síðan fórum við að svara spurningum úr bókinni  Tími, lengd og hreyfing en í þeim spurningum var krafist svolítils reiknings. síðan eftir allan hugar reikningin fórum við að lesa um eðlisfræðinga til að afla okkur upplýsinga fyrir bæklingin.

á fimmtudeginum vorum við í tölvum. Við áttum að vera að vinna í bæklingnum og það gerðum við. Þórmundur var ekki í þessum tíma en ekki veit ég afhverju.

seinasta vikan fyrir jólafrí!
Dec 19th, 2009 by gudrun95

núna er ég komin í jólafrí svo að ég nenni ekki a ðvera að blogga einhvað langt en geri þó einhvað.  seinasta vikan fyrir jólafríið var nú bara frekar róleg. á mánudeguninum voru nemendafyrirlestrar og þá var ég að kynna sólina og mér fannst það bara ganga vel.
á miðvikudeginum var svo stöðvavinna og var mikið í tölvum. við fórum í geðveikt skemmtilegan leik sem gengur út á að skjóta geimflaug upp í geiminn. ef ykkur langar að fara í hann; http://www.topgear.com/uk/games/rocket-robin

svo vorum við að gera krossgátu, spurningar, para saman reikistjörnur og staðreyndir og skoða einhvað um pláneturnar.
á fimmtudeginum voru síðan seinustu nemendafyrirlestrarnir og fengum við að fara fyrr úr tímanum enda allir komnir í svaka jólastuð :)

hér er frétt um hund sme hefur aðeins 2 fætur; http://mbl.is/mm/folk/frettir/2009/12/18/tvifaettur_hundur_er_mikill_gledigjafi/?ref=fpmestlesid

7-11. Desember
Dec 11th, 2009 by gudrun95

á mánudaginn var enn einn fyrirlestrartíminn hjá Gyðu en hann var sá seinasti fyrir jól ! :D en á næsta mánudag er samt líka fyrirlestrartími en þá eru það nemendurnir sem halda þá og meðal þessara nemenda er ég :)   við skoðuðum einnig afart skrítna frétt en hún er um geimbjör sem er ný settur á markað í japan. ef ykkur langar að skoða þá frétt farið þá inn á ; http://www.mbl.is/mm/frettir/taekni/2009/12/03/geimbjor_settur_i_solu_i_japan/
á miðvikudeginum var bekkurinn hópaskiptur en af því að það var ekki Landafræði þá fórum við í landafræðitímanum allur bekkurinn saman í náttúrufræði. Fyrri tíman sem að allur bekkurinn var saman voru einhverjir nemendafyrirlestrar. nemendafyrirlestrarnir ganga þannig fyrir sig að einn nemandinn kynnir sitt og hinir í bekknum eru í hópum að dæma og gefa einkunn.    í tímanum þar sem við voru hópaskipt var stövavinna. en eina stöðin sem ég komst á var að gera slatta af upprifjunarverkefni úr bókinni Sól, tungl stjörnur.          í seinni tímanum þar sem allur bekkurinn var saman horfðum við á mynd um lofthjúpinn.í þeirri mynd var sýnt tilraun sem maður gerði fyrir löngu. en sú tilraun var að hann fór alveg upp í heiðhvolfið á loftbelg og stökk síðan úr !! hann féll niður á svaðalegum hraða. Þegar hann var í heiðhvolfinu fann hann hvorki fyrir vind á fötunum sínum né heyrði einhver vindhljóð en þegar hann kom niður í veðrahvolfið fann hann vindinn á fötunum og heyrði vindhljóðið. hann spennti fallhlífina og lenti á jörðinni. þetta fall hans var og er ennþá lengsta frjálsa fall en þessi lengd var 30 metrar! ef þig langar að vita meir um lofthjúpinn kíktu þá inná ; http://www.fsu.is/~ornosk/vedur/lofthjup/hvolf.html

á fimmtudeginum var ég ekki í skólanum en ég er nokkuð viss um að í þeim tímanum hafi verið nemendafyrirlestrar ;)

vikan 30 nóv- 4 des
Dec 7th, 2009 by gudrun95

 30. nóv. var Gyða veik svo að Jóhanna aðstoðarskólastjóri sýndi okkur ég held að það hafi verðið þáttur frekar en mynd sem fjallaði um krafta jarðar-eldgos. ef ykkur langar að vita einhvað nánar um prófessor Iain Stewart og þættina hans kíkjið þá endilega á :

http://www.plymouth.ac.uk/PlanetEarth

Miðvikudagurinn 2.des:  það var sko mikið  og fjölbreytt að gera í þeim tímanum.  Haldið var áfram að horfa á myndbandið sem við byrjuðum á, á mánudeginum og svo  var skrifaður stuttur texti um það sem var verið að fjalla um í myndinni og til þess fengum við 10 mín. Að skrifa þann texta var kannski ekkert svaðalega auðvelt fyrir mig.  :S við skoðuðum einnig valda kafla aðeins betur.      fræðsla um Galileo Galilei var einnig þennan daginn og hann var sko merkismaður!! hér er vefslóð að vísindavefnum og þar er hægt að fræðast alveg helling um hann:

http://www.visindavefur.is/svar.asp?id=1758

 já og það var meira sem við gerðum á þessum blessaða mikvikudegi því að við héldum líka áfram að fara yfir glósurnar sem við höfðum fengið á mánudeginum fyrir viku eða svo.  Farið var yfir stærðir stjarna og pláneta í sólkerfinu og ef  þér finnst fíll vera stór þá held ég að sú hugsun fari strax úr kolli þínum þegar þú færð að sjá myndband um stærðir en hér er myndband sem að sýnir stærðirnar á þessum STÓRU fyrirbærum í heiminum:

http://www.youtube.com/watch?v=EDNEV9EW06g
hér annað  en það er þó ekki í jafngóðum gæðum :S  ; http://www.youtube.com/watch?v=XIqJe8JNC5w

 

á þessu myndbandi  sést að´sólin okkar er nú alls ekkert stór en hún er aðeins meðalstór stjarna sem er eiginlega bara gott því að ef hún væri stór þá væri líftími hennar styttri og hún myndi bara “fljótlega” vera búin að éta jörðina !
á fimmtudeginum héldum við áfram með glærukynninguna okkar og ætlað var til þess að við myndum þá klára glæruna okkar  en svo varð ekki hjá mér :S en ég verð örugglega í staðinn að gera þetta heima og þá reddast þetta allt saman ;)
hér er myndband um hversu lítill punktur við erum í alheiminum:

http://www.youtube.com/watch?v=-ua_pJWLLOI

vikan 23-27 nóv.
Nov 28th, 2009 by gudrun95

í liðinni viku erum við búin að vera áfram í hlekki 5 sem fjallar um stjörnufræði .Á mánudeginum var fyrirlestur um stærðir reikistjarna og stærðir stjarna og svo var umfjöllun um Hubble-sjónaukan og myndir sem hann tók/tekur.      á miðvikudeginum var svo annar náttúrufræðitími og það var einn sá rólegasti sem að ég hef nokkru sinni farið í!! :D  en í þeim tíma gerðum við hugtakakort fyrir hlekk 5 og það gekk nú bara ansi vel. :) síðan var stöðva vinna  og ég vann á stöðvunum með Rakel Lind í hóp. fyrsta stöðin okkar var að fara í tölvu og fara í leik sem hét Planet 10 ( ef þig langar að prufa leikinn þá er hann hér til vinstri undir Links) . í þeim leik áttum við að búa til reikistjörnu, velja úr hverju hún var gerð,´hversu nálægt sólinni hún væri og margt margt fleira. Önnur stöðin okkar var líka í tölvum en þá vorum við að skoða og lesa um sverðþokuna í Oríon og skrifa smá um hana á blað. Seinasta stöðin okkar Rakelar þennan miðvikudag var að við gerðum verkefni úr bókinni Sól, tungl stjörnur. En þótt að við höfðum bara komist á 3 stöðvar þennan daginn þá voru 3 í viðbót sem hægt var að fara á. Á þessum stöðvum átti að teikna upp sólkerfið, skoða bók sem var með mjög merkilegum myndum af fyrirbærum sem voru svo lítil  að við getum ekki séð þau og stór eins og til dæmis af reikistjörnum og svo var ein stöð þar sem unnið var með lengd-mælingar.

 á fimmtudeginum vorum við í tölvuverinu að halda áfram með að búa til glærukynninguna okkar. en eins og ég sagði í seinasta blogginu þá er ég að skirfa um Sólina okkar. nú ætla ég að segja ykkur eitt sem ég komst að ,sem ég vissi ekki, þegar ég var að gera glærurnar en það er að sólin snýst í kringum sjálfa sig svipað og jörðin en snúningur hennar kallast mismunasnúningur. hægt er að lesa og fræðast meira um þetta á vísindavefnum.

http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=4766

vikan 16-20 nóv
Nov 23rd, 2009 by gudrun95

á mánudaginn áttum við að skila vinnubókinni og svo var að venju fyrirlestrartími og í endan á tímanum var síðan stutt könnunn úr því sem við vorum búin að vera að tala um í tímanum og úr fyrsta kaflanum í Sól,tungl & stjörnur. Á miðvikudeginum fengum við síðan vinnubækurnar til baka ásamt einkunn fyrir hana og ég fékk 9,5 og var bara vel ánægð. svo skoðuðum við könnunina og fórum yfir hana en mér gekk nú ekkert fyrirtaks vel í þeirri könnun. :S    í tímanum gerðum við  líka  verkeni, sem voru í endanum á kaflanum, úr fyrsta kaflanum í Sól, tungl & stjörnur. Gyða sýndi okkur líka stjörnufræðivefinn*** sem að 3 ungir strákar eru með en þar er hægt að skoða margt skemmtilegt og fræðandi um stjörnur og einhverju því tengdu. í endanum á tímanum sagði Gyða okkur svo frá glærusýningunni sem að við eigum að gera . við eigum víðan að kynna hana fyrir bekknum og foreldrum/forráðamönnum. Ég valdi mér að kynna sólina í glærusýningunni.  á fimmtudeginum vorum við að vinna í að gera glærurnar fyrior glærusýninguna og ég náði nú ekki að vinna neitt all svaðalega vel í tímanum en er búin með u.þ.b. 2 glærur :/

*** hér er slóðin að stjörnufræðivefnum  http://www.stjornuskodun.is/

»  Substance: WordPress   »  Style: Ahren Ahimsa