í þessari viku ætla ég að segja einhvað frá þessu blessaða Eldgosi undir Eyjafjallajökli sem hefur haft áhrif á alla Evrópu! en ekki hefur getað verið flogið mikið vegna öskunnar sem úr gosinu kemur því askan eyðileggur hreyfla flugvélanna.
þannig er mál með vexti að um 700 tonn af gosefnihafa komið úr gígnum á hverri sekúndu frá því að gosið hófst! miklar eldingar hafa verið í gosmekkinum undanfarið en með þeim fylgja þrumur sem sem heyrast í 25 km fjarlægð! það er frekar algengt að það komi eldingar í gosmekki þegar það gýs undir vatni eða jökli. Þegar vatn og kvika snertast verður aðskilnaður á rafhleðslum í gosmekkinum sem getur látið eins og mjög öflugt þrumuský.Stöðurafmagn* úr jörðinni fer á ferð í gosinu og rafhleðslur breytast. rafhleðni í gosmekkinum er frekar há, þannig að þegar mikil spenna er á milli svæða í mekkinum þá verða eldingar. Eftir því sem að gosmökkurinn er stærri því fleiri eldingar eru. Eldingarnar sjást best í ljósaskiptunum og þegar það er myrkur.
*stöðurafmagn er orka sem byggist á rafeindum sem hafa flust úr stað. það myndast .egar rafhleðslur safnast fyrir í hlut en hluturinn afragmagnast ekki nema til komi utanapkomandi áhrif.
Flúor(F) er frumefni sem er nauðsynlegt ,í hæfilegu magni, bæði fyrir menn og dýr. ef það er skortur á Flúor í fæðu, leiðir það til takamrkaðs vaxtar, blóðleysis og ófrjósemi.Flúor er notað í tannkrem. Flúorgas er mjög eitrað, 0,1 % styrkur þess í andrúmslofti á nokkrum mínútum veldur dauða.
Mikið öskufall hefur verið úr gosinu en í öskunni er talsvert af Flúor og því er haft áhyggjur af langtímaáhrifum á heilsu dýra sem eru í nágreni við Eyjafjallajökul þar sem öskufallið er mest. menn og dýr fá flúoreitrun þegar flúorupptaka er meiri en hæfilegt er í lengri eða skemmri tíma og kemur fyrst fram í bein- og tannvef. Í mönnum kemur þetta fyrst fram í blettum á glerungi(sem er á tönnunum) og í kjölfarið fylgja skemmdir á tönnum. Í kindum getur komið fram svokallaður gaddur, sem er ofvöxtur í vissum tönnum. Önnur áhrif í mönnum eru liðverkir og aukin beinmyndun og áhrif áhjarta og æðakerfi.
(upplýsingar fékk ég af www.mbl.is , úr fréttunum á rúv, minnisbanka mínum & www.doktor.is)
ég læt þetta vera nóg í bili og vona að þið hafði fræðst einhvað meira um þetta:) en hér koma tvær frettir tengdar gosinu plús 2 myndbönd
gosmökkurinn í 6 km hæð
gassprengingar í gígnum
myndbönd
myndir af eldingum í gosmekkinum frá eyjafjallajökli
steikt myndband , þegar íslenskur karl er að reyna að útskýra hvernig á að segja: Eyjafjallajökull