4. nóv ;]

Núna erum við byrjuð aðeins á blóðflokkunum. Erum að velta því soldið fyrir okkur.

. blodfjolskyldan

3. nóv ;]

Núna er 4. nóv miðvikudagur.
Við erum búin að vera að vinna með þessa erfðafræði mjög mikið.
Ég er farin að skilja hana miklu betur en ég gerið allra fyrst.
Við fórum í einn leik sem var á mánudaginn held ég og bara í þessum
leik fór ég að skila rosalega mikið í þessu!
Núna gengur mér mjög vel með hana, ég held að við erum að fara að halda
svolítið áfram með hana þangað til við færum okkur í næsta hlekk.<3

.. þeinkjú! (;!

frítími

halló.
Núna er stærðfræðitími og Bára er sögð vera veik. Við erum bara ennþá að vinna við þessa efnafræði.
Í seinustu viku vorum við að kryfja rottur!!
Ég fór mjög fljótlega fram útaf því að ég fékk hausverk og svima. Ég er mjög viðkvæm fyrir dauðum dýrum og það fór alveg með mig að sjá bara rottuna dauða. Ég heyrði einhvern vera að kúgast þegar ég var frammi og mér var sagt að það væri Jóhannes;)! Ég er að fara í náttúrufræðitíma á eftir held ég og þá er örugglega tölvutími þannig að ég blogga örugglega aftur á eftir ;].

22.10.09!

Rottukrufning.

Bekkurinn er núna skiptur í 2 hópa. Annar helmingurinn er í Samfélagsfræði og hinn er í Náttúrufræði að kryfja rottur.
Ég er í náttúrufræðihópnum og við erum að kryfja rottur. Það kemur mjög vond lykt af rottunum og það er mjög ógeðslegt þegar það er verið að skera þær og kíkja inní þær.
Það var verið að líða yfir mig þannig að ég fór fram að gera inngang og ritun og Brúnrottur. Og núna er ég að fara að setja það inn í tölvuna.

21.10.09

Sælirnúúúna!
- Í þessari viku erum við bara búin að vera að tala um erfðafræði og í þessum tíma erum við inná þessari síðu.
Erum líka að hlusta á tónlist á youtube.
Á morgun erum við að fara að krifja rottur og ég hlakka ekkert smá mikið til. 9.bekkur er búinn að segja mér frá því hvernig þau eru að krifja r0tturnar og þau voru að segja að það er verið að flaka húðina af þeim. Ég hlakka samt ekki til þess, mér finst mjög illa gert að þegar það er verið að flaka rottur eða skera þær upp. Það er samt ekki mjög víst að við séum að fara að krifja rottunar útaf því að á morgun eru þrír bekkir m.a okkar bekkur að fara að vinna eitthvað verkefni saman útaf það er verið að fara að halda afmælisveislu útaf því að skólinn er að verða 80 ára.

8. – 13. okt (:

Þann 8. október byrjuðum við á hlekk 3.
Þar erum við að tala um erfðafræði. Í timanum þá, gerðum við plaggöt
og allskonar tilraunir síðan var líka skoðað tímarit um erfðafræði og ýmislegt dót. Við erum síðan bara búin að vera í tölvutímum og að gera verkefni í word frá náttúrufræðisíðunni og senda síðan Gyðu í pósti.
Þessi tími var að byrja og Gyða gaf okkur 10 mínútur til þess að blogga og skoða blogg hjá öðrum.
endilega skoða þetta myndband:
Very Cool 3D Medical Animation

23’september!

jæææææææææææææææææææææja!
Í dag vorum við að gera verkefni á netinu. Fyrst gerðum við verkefni um efnajöfnur.
Síðan seinna verkefnið áttum að gera satt og ósatt spurningar og svara þeim og síðan senda Gyðu það í pósti.

Lotukerfið!

vika 3 :)

Í viku 3 byrjuðum við á efnafræðinni. Semsagt hlekkur 2.
Við erum búin að vera í upprifjum frá 8.bekk
Við erum samt ekkert búin að vera mikið í tímum útaf samræmdu prófunum. Þannig að við erum búin að missa alveg slatta úr tíma. En áðan vorum við að gera ýmislegt á netinu, allskonar æfingar. Mér gekk ágætlega í því.
Við fengum alveg fullt af glósum eins og alltaf og fórum yfir þær.

Vika 2

Í viku 2 lærðum við um fylkingar plantna. Út frá því töluðum við um Æðplöntur og Háplöntur. Og nokkrar plöntur sem við töluðum um eru byrkingar og fjölga með sér gróum.
í Viku 3 tölum við um efnafræði.

; dagurinn í dag 09.09.09 (: