Jæja þetta er nú síðasta færslan í Náttúrufræðiblogginu.
Lokaprófin fara að skella á í næstu viku svo að það þarf nú að fara að læra og læra.
Kveðjustund Flúðaskóla verður líka fljótlega.
Þessi tími er búinn að vera rosalega skemmtilegur, þetta er besti skólinn af öllum skólunum sem ég hef verið í.
Hér hef ég náð góðum tengslum og eignast mjög góðar vinkonur.
Náttúrufræðin hefur hjálpað mér mjög mikið, ég lærði rosalega mikið á þessum tíma hjá þér, Gyða.
Þú ert mjög skemmtilegur kennari og getur KENNT. Því hef ég tekið eftir og ég er ánægð að hafa haft þig sem kennara
.
Ég ætla að reyna að taka lokasprettinn með stæl og ná náttúrufræðinni, því er best að byrja að undirbúa sig.
Þessi kennsla var skemmtileg, stundum lendir maður í því að kennslan sem maður er í, er mjög leiðinleg og nennir ekki að hlusta.
Þú bara gerir næstum allt svo skemmtilegt, t.d. tilraunirnar, útikennslan og ýmislegt bara.
Það sem við erum búin að vera að gera í náttúrufræði seinustu tvær vikur er að fara yfir gamlar glósur og upprifjun f. lokaprófið.
Ég veit ekki alveg hvað ég á að skrifa hérna meira svo að ég ætla bara að kveðja þetta náttúrufræði blogg
.
Takk fyrir.
Þjórsá.


