Tíðni og bylgjur Föstudaginn 29 jan

Posted by gudjonutd on jan. 29, 2010 with No Comments
in Uncategorized

Í dag vorum við að læra um tíðni og bylgjur. Við byrjuðum á því að bæta upp á hugtakakortið okkar svo fengum við glærur og fórum yfir þær. við gerðum líka tilraunir með koníak glös með því að bleita puttan á okkur og reyna að færa nálina ofan á hinu glasinu með tíðninni. Mér fannst merkilegast og asnalegast að hljóð berst besst í gegnum föst efni líkt og veggir.En á eftir föstu efni kemur vatn og svo loft. En ég veit svo sem ekki mikið um Tíðni en þessi síða sýnir hvað það er betur hér

Á þessari mynd má sjá allskyns tíðni.

Nýr hlekkur bylgjur/hljóð.

Posted by gudjonutd on jan. 22, 2010 with No Comments
in Uncategorized

Í dag byrjuðum við á nýjum hlekk sem kallast bylgjur eða hljóð. Við byrjuðum á því að skoða hvernig bylgjunar hreifast með sameindunum. Í  því fanst mér mest áhugaverðast að hljóðið berst best með föstum efnum líkt og stáli og nikel. Og mér fannst líka áhugavert að hljóð berst betur með vatni en andrúmslofti. Mér fanst líka fyndið að í öllum geimhasar myndunum koma fullt að sprengum og árekstrum en það er bara rugl. Því það heirist ekki hljóð á tunglinu því þar er ekki lofthjúpur. Og því engar sameindir til að bera hljóðbylgjunuar betri upplýsingar hér=http://is.wikipedia.org/wiki/Hlj%C3%B3%C3%B0

nátturufræði 8 jan.

Posted by gudjonutd on jan. 8, 2010 with No Comments
in Uncategorized

Í dag vorum við með kynningu á plakkatinu sem við gerðum um daginn. Ég og nikki vorum með kyningu um Vinnu, afl og kraft. Hann var með kraft meðan ég kynnti vinnu og afl. Vinna þýðir einfaldlega afl en ekki það sem fólk gerir hverdagslega.Vísindalega hugtakið vinna er ekki að vinna sem smiður eða fréttaþulur heldur afl sem þýðir að þú notar þinn kraft til að hreyfa tiltækin hlut. T.d. ef þú hendir stein ert þú að vinna eða ef þú ýtir honum ert þú að vinna. Svo vinna er bara ef þú beytir þínum kraft til að gera eithvað eins og ef þú ýtir,kastar, hendir eða bara lyftir.   

hvað eru hestöfl?

Tunglið

Posted by gudjonutd on des. 11, 2009 with No Comments
in Uncategorized

saguaroMoon_seip

 

Mér fannst langáhugaverðast hvað hitastigs munurinn á tunglinu á miðbaug er mikill. Það er mest +120°C og minnst -170°C og líka hvað hann er mikill nærri norðurpólnum. Hann er þar mest -40° og minnst -200°. Mér finnst líka mjög sérstakt að það var haldið að dökku blettinir væru höf en í rauninni hraunsléttur. En samt enn í dag köllum við þetta höf. Mér finnst einnig mjög skítið að tunglið í gamla daga hafi snúist í kringum sjálfan sig. en það hefur allt af verið að hæga á sér og á endanum stoppaði það. En samt en í dag vaggar það svolítið. Við höfum líka verið læra mikið um sólmyrkva og tunglmyrka . Það virkar þannig að í sólmyrkva skykkir tunglið á jörðinna. En samt sést allt af aðeins í sólu. Nema á einum stað sem kallast almyrkvi. En í tunglmyrkva skykkir jörðin á tunglið. Og í því lítur tunglið út fyrir að vera nokkur veginn kobar rautt.

jarðeðlisfræði

Posted by gudjonutd on des. 4, 2009 with No Comments
in Uncategorized

Þessa vikunna vorum við að læra um segulhvolf og möndulhalla jarðarinnar mikið. Mér fannst merkilegast hvað segulhvolf  jarðar er gríðarlega mikilvægt. Og hvernig þessi maður van allen gat komist að því að segulhvolf jarðar væri til staðar og hvernig norður og suður ljósin verða til. Það gerist með því geisla agnir frá sólinni  koma til jarðar en þar stoppar segul sviðið þær en hluti þeiirra kemst inn hjá norður og suður hveli jarðar. Þar rafmagnast geisla agninar og þá verða til norður ljósin. Mér fannst líka merkilegt að að möndul snúningur geti skipt svona miklu máli fyrir dægraskiptin. og það var líka áhugavert hvernig möndul halli virkar. hann virkar þannig að þegar norður hvel jarðar hallar inn þá er sumar á íslandi en þegar norður hvel snýr frá sólu  er vetur á íslandi.

 

föstudagurinn 27 nóv 2009, lofthjúpur

Posted by gudjonutd on nóv. 27, 2009 with No Comments
in Uncategorized

í dag vorum við í stöðvavinnu. í stöðva vinnunni vorum við mest að fjalla um lofthjúpinn og veður jarðar ennig líka norður ljósinn.Mér fannst áhuga vert hvernig norður og suður ljósin verða til. fyrir þennan tíma hélt ég að þetta væri bara einhver endurspeglun af kalda loftinu. En í raun þá eru þetta litlar agnir frá sólu sem komast aðeins í gegnum lofhjúpin við suðus og norðurheimskautin. við gerðum tilraun við þetta með því að strá járn augnum yfir segull, þá sáum við hvernig segulsvið jarðar virkar. Þá komu stór hringur í kringum segulinn líkt og  á jörðinni en á suður og norður svæðinu komu litlar opur líkt eins og á jörðinni þar sem agninar fara í gegn. mér fannst líka flott myndinar af fleka skilonum sem við þurftum að gera stöð um, á þeirri stöð skrifuðum við um hvernif flekar skiljast í sundur og rekast saman.

 

Power of the planet Andrúmsloft

Posted by gudjonutd on nóv. 20, 2009 with No Comments
in Uncategorized

Í dag horfðum við á mynd í fjarveru höllu siggu. Sú mynd hét earth the power of the planet og sú önnur í sýnum myndaflokki. Og hún fjallaði um Andrúmsloft jarðar og einnig gróðurhúsaáhrifin og upphaf andrúmsloftsins og fyrstu strýtuþörunguna. mér fannst allra áhugaverðast þegar kerlingin fór til serbiu held ég. og var að rannsaka metan gasið sem er fast undir ísnum. og svo gerði hún gat á ísinn og hleifti gasinu út úr ísnum og kveikti í því og þá varð bál upp úr ísnum sem var hroðalega cool. Einnig fannst mér mjög áhugavert þegar kallinn fór til argentínu að finna mestu þrumuveður heimsins þegar kald og þurra loftið ag suðurpólnum mætti heita og blauta loftinu frá regnskógunum á amasom svæðinu mættust.

Posted by gudjonutd on nóv. 13, 2009 with No Comments
in Uncategorized

dag horfðum við á myndinna power of the planet. Við horfðum á eldfjalla þáttinn í seriunni. Í þessum þætti var fjallað um eldfjöll heimsins og líka sprungurnar sem eru í jörðinni, upphaf jarðarinnar og hvernig upphaf íslands var og svo var líka aðeins fjallað um surtsey hjá vestmanneyjum. Það var líka fjallað pínu um elstu þurunga og elstu lífverur jarðar. Einnig var farið út í fleka skil jarðar og hæstu fjallgarða heims. Það sem mér fannst allra merkilegast í myndinni var hvað fjallgarðar geta hækkað á örfáum mínútum við jarðskjálta og hver krafturinn þegar st helen sprakk í alaska. Það var líka merkilegt hvað það er rosalega stutt frá yfirborði íslands til hrauns, því það eru 20 km í hraun.

Hallóóóóó.

Posted by gudjonutd on nóv. 5, 2009 with No Comments
in Uncategorized

Núna erum við að læra um lotukerfið og gera verkefni um lotukerfið.við erum líka að læra um sætistölu, massatölu og nöfn frumeinda.

Náttúrufræði blogg 2:nóvember

Posted by gudjonutd on nóv. 5, 2009 with No Comments
in Uncategorized
as

Halla sigga hélt fyrirlestur fyrir okkur um krafta og svo lét hún okkur hafa glærur. Svo þurftum við að svara örfáum spurningum upp úr glærunum.