Ferðaþjónustan í allri sinni dýrð

Góðan daginn,

Við erum hópurinn Granni og við heitum, Bjarki Steinþórsson, Ingvar Jóhannsson, Guðrún Edda Bjarnadóttir og Hróðný Jónsdóttir.

Við byrjuðum á verkefninu 26.febrúar, við byrjuðum á hugstormun, í hugstormuninni skrifuðum við allt sem okkur datt í hug þegar við heyrðum orðið Þjórsárdalur. Út frá hugstormuninni ákváðum við að taka ferðaþjónustu fyrir, en þegar við höfðum byrjað á verkefninu heilluðumst við svo af öllum þeim náttúrufegurðum sem í Þjórsárdal eru að finna svo að við ákváðum að einblína ekki bara á ferðaþjónustu heldur fjalla svolítið um náttúruperlur líka. Hópavinnan gekk mjög vel og okkur miðaði vel áfram. Við sömdum spurningar sem tengdust ferðaþjónustu og við vildum fá svör við. Nokkrar af þeim spurningum skrifuðum við niður og tókum með í vettvangsferðina inn í Þjórsárdalinn og gat Gunnar Marteinsson svarað öllu því sem við vildum vita. Við flokkuðum spurningarnar í flokka, þ.e.a.s. staðreyndir, álitamál og útskýringar. Þegar þessu var lokið fórum við að vinna í þessari bloggsíðu hérna. Okkur finnst við hafa staðið okkur nokkuð vel og hafa náð að koma fullt af upplýsingum á framfæri sem allir geta skoðað og nýtt sér. Hróðný var hópstjóri og hélt því dagbók yfir vinnu hópsins. Í dagbókina skrifuðum við hvort að vinnan hefði staðist áætlun, hvort að einhver vandamál hafi komið upp, hversu virkur hópurinn var, hvernig tíminn nýttist í prósentum og hver áætlun næstu vinnulotu væri.

Hér að neðan eru svör við þeim spurningum sem við skrifuðum niður.

Í Þjórsárdal er margt í boði fyrir ferðamenn, svo sem: skálaferðir, gönguferðir, hestaferðir og fjórhjólaferðir. Þar getur þú skoðað margar af fallegustu náttúruperlum Íslands, sumt þarf að fara gangandi en aðrar leiðir er hægt að fara bæði ríðandi og á bíl. Hólaskógur er vinsæll ferðamannastaður, þar getur þú farið  í fjórhjólaferðir og í skálanum stoppa allar tegundir af mannfólki, gangandi, hjólandi, ríðandi eða bara til að slappa af. Í Hólaskógi er boðið upp á heysölu fyrir fólk sem á leið þar hjá á hestum. Steinsholt er einnig vinsæll ferðamannastaður, þar er bæði gistiheimili og hestaleiga.

Staðirnir eru hinsvegar ekki nógu vel merktir segir Gunnar Marteinsson sveitastjóri í Skeiða- og Gnúpverjahreppi en það er verið að vinna í málunum. Markmiðið er að merkja allar náttúruperlur, gönguleiðir, reiðleiðir og fornminjagripi. Gunnar sagði okkur einnig að oft væru ferðamenn fastir á Selfossi að leita að Steinsholti, ástæðan fyrir því er að Skeiða- og Gnúpverjahreppur er með póstnúmerið 801 Selfoss og halda því allir að staðurinn sé á Selfossi. 

Klósettaðstaða er ekki heldur nógu góð og hafa erlendir ferðamenn kvartað svolítið yfir því.  

Þjórsárver er friðað og er stærsta votlendissvæði á hálendi Íslands og með mikinn plöntufjölda og skordýrafjölda.

Vinnan í þessu verkefni hefur verið mjög skemmtileg og fræðandi og var þetta skemmtilegur út úr dúr frá öllum bókum og fyrirlestrum.

Takk fyrir okkur :D

Granni

Þessi bloggsíða er bloggsíða hópsins Granna. Hópurinn samanstendur af fjórum kátum krökkum sem heita Hróðný Jónsdóttir (hópstjóri), Guðrún Edda Bjarnadóttir, Ingvar Jóhannsson og Bjarki Steinþórsson. Hópurinn valdi að fjalla aðallega um ferðaþjónustu, en þegar við vorum að vinna að verkefninu heilluðumst við svo af náttúruperlunum að við segjum svolítið mikið um það líka :)