Um Heklu gosið 1104
1. gos, stórgosið 1104
Annálar telja að fyrsta gos í Heklu hafi orðið árið 1104. Fjórir hinna fornu annála nefna það með svipuðu orðalagi „Elds uppkváma in fyrsta í Heklufelli“ og tveir annálar nefna veturinn 1105 Sandfallsvetur. Það liggur beint við að álíta að sandfallsveturinn 1105 hafi fengið nafn sitt af ljósri öskunni sem dreifðist yfir landið í þessu gosi. Sé það rétt er líklegast að gosið hafi hafist síðla árs 1104. Þetta fyrsta Heklugos er jafnframt mesta gjóskugos hennar á sögulegum tíma og raunar með mestu gjóskugosum sem orðið hafa á landinu frá landnámi. Kvikan sem upp kom var súr, rhýódasít, og gjóskan sem féll var gráhvít að lit. Ekki er vitað til að hraun hafi runnið í gosinu. Gjóskan barst til norðurs. Þykktarásinn liggur um Kjöl og norður á Skaga.
Þótt hinir fornu annálar minnist ekki einu orði á tjón í þessu fyrsta Heklugosi má öruggt heita að það hefur orðið mikið. Þorvaldur Thoroddsen varð fyrstur manna til að benda á að eyðing byggðarinnar í Þjórsárdals væri að öllum líkindum verk Heklu.

Þessar heimildir eru frá http://www.isor.is/~ah/hekla/gossaga.html#1104