Byggð í Þjórsárdal eftir Heklugos
Byggð í Þjórsárdal eftir Heklugos
Biskupaannálar segja að í Þjórsárdal hafi 11 bæir eyðst í Rauðukambagosi. Brynjúlfur Jónsson frá Minnanúpi getur um 16 bæjarrústir í dalnum en í þeim hópi er Sandártunga sem fór ekki í auðn fyrr en í Heklugosinu 1693. Að auki er nú vitað um nokkrar rústir sem Brynjúlfur nefnir ekki. Sagnirnar um að 11 bæir hafi eyðst endanlega er „Þjórsárdalur brann“ eru e.t.v. ekki svo fjarri sanni. Það má hugsa sér að mestur hluti byggðar í Þjórsárdal hafi lagst af 1104. Síðar hafi menn reynt að byggja einhverjar af jörðunum á ný en uppblástur og Heklugosin 1158 og 1206 hafi reynst Þjórsdælum hinum fornu ofraun.
Hekla veitti ekki Þjórsdælum einum þungar búsifjar í gosinu 1104. Byggðin í Þjórsárdal var í 10-15 km frá háfjallinu. Á Hrunamannaafrétti, í 50 km fjarlægð, var lítil heiðabyggð. Vitað er fyrir víst um rústir fjögurra bæja en líklega hefa þeir verið fimm. Fornleifarannsóknir hafa sýnt að einn þeirra, Þórarinsstaðir, hefur örugglega lagst af í þessu gosi og líkur eru á að a.m.k. tveir til, Laug og Rógshólar, hafa eyðst um sama leyti. Á bökkum Tjarnarár inn undir Hvítárvatni á Kili, í 70 km fjarlægð frá Heklu, eru rústir lítils bæjar sem Sigurður Þórarinsson hefur sýnt fram á að hafi farið í auðn 1104. Þetta gos hefur því eytt allri byggð sem lá nærri mesta þykktarás öskugeirans allt upp í 70 km fjarlægð frá eldstöðvunum. Hefði vindur staðið af austri eða norðri í meginhrinu gossins hefði eyðileggingin orðið miklu meiri.
Í Skagafjarðar- og Húnavatnssýslum er öskulagið frá 1104 víða 1-2 cm að þykkt. Falli slík aska á óslegin tún að sumarlagi er ljóst að mikill skaði verður af. Hafi gosið hins vegar orðið að hausti eða vetri, eins og líkur benda til um gosið 1104, hefur tjón orðið mun minna. Þessar heimildir eru frá http://www.isor.is/~ah/hekla/gossaga.html#1104