Orka og Rafmagn

Hvað er orka?

Orka er notuð meðal annars til þess að framleiða rafmagn í virkjunum.

Orka er skilgreind sem magn vinnu sem þarf til að breyta ástandi eðlisfræðilegs kerfis. Önnur dæmi eru raforkan sem geymd er í rafhlöðu, efnaorkan sem er í matarbita, varmaorka vatnshitara, og stöðuorka upphækkaðs vatns á bak við stíflu. Hægt er auðveldlega að breyta orku úr einni mynd yfir í aðra. Sem dæmi, ef rafhlaða er notuð til að knýja rafmagnshitara, breytist efnaorka í raforku, sem svo aftur breytist í varmaorku. Eða, með því að láta upphækkað vatn renna niður á við, breytist stöðuorka þess í hreyfiorku hreyfils, sem svo breytist í raforku með hjálp rafals. Orkuvarðveislulögmálið segir að í lokuðu kerfi haldist heildarorka kerfisins, sem samsvarar samanlögðum hlutorkugildum þess, föst. Þetta lögmál stafar af tímahliðrunarsamhverfu eðlisfræðilegra ferla, sem merkir að þeir eru óháðir byrjunartíma.

rafmagn

Hlutir sem eru í kyrrstöðu eru sagðir hafa stöðuorku en þeir hlutir sem eru á hreyfingu hafa hreyfiorku. Rafmagnið verður til með því að nýta sér hreyfiorkuna í vatninu. Þegar vatnið er geymt í lónum býr það hins vegar yfir stöðuorku.

hydropower-plant-usbr-hoover