Námsferð
11. mars fór okkar bekkur (10.bekkur) í námsferð að skoða virkjanir og fleira. Við skoðuðum Búrfellsvirkjun, hún er stærsta virkjunin af öllum virkjunum í Þjórsá. Við fengum að sjá öxulinn snúast, Daði fræddi okkur mikið um starfsemi hans og Landsvirkjun og hvernig virkjanir virka.

Hverfill í Búrfellsvirkjun gengur 300 snúninga mínútu og getur gengið í 24 tíma á dag, þannig frammleiðir Búrfellsvirkjun rafmagn allan sólarhringinn en það eru 6 hverflar í Búrfellsvirkjun. Búrfellsvirkjun er stærsta virkjun í Þjórsa og er höfuðstöð Landsvirkjun á suðurlandi.

Sultartangavirkjun er með tvo hverfla og framleiðir minna rafmagn en Búrfellsvirkjun. Í Sultartangavirkjun eru tveir karna sem geta tekið allt að u.m.þ.b. 115 tonn hver og 230 tonn ef báðir eru notaðir.