/* This code retrieves all our admin options. */
global $options;
foreach ($options as $value) {
if (get_settings( $value['id'] ) === FALSE) { $$value['id'] = $value['std']; } else { $$value['id'] = get_settings( $value['id'] ); }
}
?>
/* If the picture ISN'T disabled */
if ($blossom_picture_disable == "false") { ?>
janúar 6th, 2010
Á mánudaginn 4.janúar tókum við því rólega og skoðuðum myndir national geographic best pictures.
þetta eru myndirnar sem mér fannst flottastar..

Sebrahestamyndin af því að það er svo erfitt að sjá út úr henni, allavega í þegar maður sér hana fyrst.

Mér fannst þessi lang flottust af því að hún er svo vel tekin.

þessi mynd finnst mér líka mjög vel tekin og svolítið fyndin.
Posted in Uncategorized
desember 16th, 2009
Jæja, í seinustu viku og þessari fengum við tvo fyrirlestra. Sá fyrri var með Elsu og hún talaði við okkur um vatn og vatnsból, sem var mjög fróðlegt, núna veit ég til dæmis að vatnið á Íslandi er „mjúkt“ vegna þess að það er ekki mikið kalt í því. Seinni fyrirlesturinn var með Hannibal og hann talaði líka við okkur um vatn og vatnsból. Þá lærði ég til dæmis að þegar hitastig hækkar í vatni þá myndast fleiri gerlar. Annars höfum við bara verið áfram í jarðfræðinni.
Posted in Uncategorized
desember 6th, 2009
Í þessari viku vorum við ennþá í jarðfræðinni. Á mánudaginn horfðum við á mjög fræðandi myndband um jörðina af því að Gyða var ekki í skólanum. Á miðvikudaginn vorum við í tölvutíma og þar héldum við áfram í ritgerðarvinnu sem við eigum að skila 10.des. Í fimmtudagstímanum fengum við skyndikönnun úr myndinni sem við horfðum á mánudaginn áður, skoðuðum bloggsíður og horfðum á mynd um ís.
Posted in Uncategorized
nóvember 26th, 2009
Við erum ný byrjuð á nýjum hlekk sem er um jarðfræði. Gerðum hugtaka kort í síðustu viku og ég náði að setja alveg helling inná það, vegna þess að það er svo margt sem hægt er að segja um jörðina.

Á mánudaginn var ég því miður veik og gat ekki komið í náttúrufræðitímann. Ég bjóst nú við því að það mundi vera fyrirlestrartími eins og flest alla mánudagstíma, sem var rétt, ég sá það á náttúrufræðivefnum að allir hefðu fengið glósur.
Á miðvikudaginn var tölvutími en þá áttum við að halda áfram í ritgerðinni og beinagrindinni. En já við áttum að velja okkur viðfangsefni úr erfðafræði hlekknum og ég ætla að gera ritgerð um þróun mannsins.
Í fimmtudagstímanum byrjuðum við að sjá langt myndband frá eitthverri bloggsíðu hjá nemanda um 10 sem ég fattaði ekki alveg. Eftir það fórum við í stöðvavinnu og vorum þar aðalega að rannsaka og greina steina. Við skoðuðum steina og bárum þá saman, prófuðum að rispa þá til þess að finna út hörku þeirra. Sumir voru með mjög mikla hörku og engin leið að rispa þá, á meðan aðrir molnuðu bara við það að ýta fast á þá. Á einni stöð áttum við að fara á netið og finna virkar eldstöðvar á Íslandi og það kom mér mjög á óvart hvað þær voru í raun margar.
Ég held eftir þessa tíma sem við vorum í jarðfræði, að þetta eigi eftir að verða spennandi og skemmtilegt viðfangsefni.
Stutt myndband um jarðefni http://www.youtube.com/watch?v=opRu12KRjsY
Posted in Uncategorized
nóvember 4th, 2009
19.október krufðum við rottu í raungreinatímanum á fimmtudegi.
Ég, Lovísa, Guðrún Edda og Guðrún Lilja vorum saman í hóp. Fyrst fengum við eina tilraunarottu sem við byrjuðum á að hamfletta. Síðan skárum við allt innan í henni og skoðuðum. Nú þurfum við bara að skrifa skýrslu um þetta allt. Mér fannst þetta klárlega skemmtilegasti raungreinatími sem ég hef verið í
Posted in Uncategorized
október 21st, 2009
Í síðustu viku blogguðum við semsagt ekki neitt af því að það voru svo margar bloggsíður sem eyðilögðust en það er sem betur fer búið að laga þær núna. Í síðustu viku vorum við ennþá í erfðafræði. Vorum í fyrirlestratíma á mánudaginn eins og alltaf á mánudögum. Á fimmtudaginn gerðum við ýmis verkefni um erfðafræði, mér fannst þetta mjög góður tími vegna þess að ég lærði mjög mikið í honum.
Posted in Uncategorized
október 12th, 2009
Jæja í þessari viku byrjuðum við á hlekk númer 3 sem er um erfðafræði. Á mánudaginn gerðum við hugtakakort um erfðafræði og hugtökin þar voru meðal annars: fruma, frumuskipting, gen og fleira. Í þessum sama tíma fengum við líka glósur um frumur sem voru til upprifjunnar frá því í 8.bekk og fórum yfir þær. Á miðvikudaginn vorum við í tölvum og þar skoðuðum við myndbönd um Mítósu og Meiósu á youtube og fórum inná vef sem heitir erfdir.is (held ég) og gerðum verkefni um erfðafræði. Á fimmtudaginn var stöðvavinna og þar var m.a. plakatgerð, blogg, skoða skrýtnar myndir og fleira. Ég gerði plakat um mítósu og ég held að ég hafi lært mjög mikið á því
Posted in Uncategorized
október 4th, 2009
Í þessari viku fjölluðum við aðalega um sýrustig. Fengum glósur um það og fórum yfir þær. Á fimmtudaginn fórum við í gegnum hugtakakortið og bættum inn á það, gerðum síðan tvær tilraunir, önnur tilraunin var að skoða heimagerðan litvísi og í hinni áttum við að mæla sýrustig mismunandi efna með litvísi.

Sýrustig sítrónusafans sem við mældum var: pH 2 – sýra.
Sýrustig matarsódans sem við mældum var: pH 8 – basi.
Posted in Uncategorized
september 29th, 2009
Í þessari viku vorum við aðalega að æfa okkur að stilla efnajöfnur. Fengum glósur um hvernig ætti að gera það. Æfðum okkur líka að stilla efnajöfnur í tölvutímanum, og held að mér hafi gengið ágætlega. Gerðum stutta könnun. Á fimmtudaginn var bara einn tími vegna þess að það var bara hálfur dagur í skólanum, horfðum þá á myndband um lotukerfið og svöruðum spurningum út frá því.
Lotukerfi sem Gyða benti okkur á, sem er snilld
http://www.ptable.com/
Posted in Uncategorized
september 16th, 2009
Í þessari viku byrjuðum við á öðrum hlekk sem er um efnafræði, fengum glósur og fórum yfir þær. Á miðvikudaginn vorum við í tölvum og gerðum verkefni í efnafræði. Á fimmtudaginn vorum við í stöðvavinnu og ég gerði plakat.
ég setti myndband þar sem krakkar eru að gera efnafræðitilraun með mentosi og gosi.
http://www.youtube.com/watch?v=wnbqmj6RX74
Posted in Uncategorized