Þjórsárdalur

Þjórsárdalur er í Gnúpverjahreppi en dalurinn er hvað frægastur fyrir það að hafa nánast eyðst í miklu Heklugosi árið 1104. Gosið var kröftugt öskugos og spúði eldfjallið gráhvítum vikri sem barst til norðurs og norðvesturs. Fundist hafa leifar af 20 bæjartóttum í dalnum.
Þjórsárdalurinn klofnar í tvennt um Reykholt og Rauðukamba og áin Þjórsá sem dalurinn er kenndur við rennur fyrir mynni hans. Áin Fossá rennur um dalinn austanverðan en hún kemur úr samnefndum Fossárdal, sem er afdalur austan Rauðukamba. Sandá rennur svo um Þjórsárdalinn vestanverðan.
Rauðukambar er litskrúðugt líparítfjall og við suðurenda þess er um 70°C heitur hver. Landslag Þjórsárdalsins er fagurt en þó hvergi stórbrotnara en í Fossárdalnum. Fyrir botninum steypast niður fossarnir Háifoss og Granni hlið við hlið. Háifoss sem er 121 m hár er næst hæsti foss landsins á eftir Glym í Botnsá í Hvalfirði. Talið var forðum að í fossinum byggi tröllkona og að hún hafi tekið menn fyrir kærulausa umgengni þar um slóðir.
Þjóðveldisbærinn í Þjórsárdal er byggður eftir upprunalega bænum að Stöng þar sem Gaukur Trandilsson bjó. Nálægt fornbýlinu sjálfu er Gjáin með öllum sínum lindum, en niður í hana fellur áin Rauðá í tvískiptum fossi sem heitir Gjáfoss. Þjórsá hefur ekki alltaf verið brúuð og hér áður fyrr lék hún lausum hala í vatnavöxtum og hluti hennar féll í Rauðá. Talið er að hlaupavatn úr Þjórsá hafi í raun grafið gljúfrið. Fyrir um 3000 árum hefur orðið mikið eldgos á Veiðivatnasvæðinu og hraunflóðið steypst ofan í farveg Tungnaár. Þetta hraun kallast Þjórsárhraun og er eitt af stærri hraunum landsins. Mest af Þjórsárhrauninu rann á milli Búrfells og Sauðafells allt niður í Landssveit. Hluti af því fór einnig niður í Gjána og fyllti hana ásamt því sem það þakti botn Þjórsárdalsins. Eftir þetta mikla gos fell Þjórsá í farveg frá Sultartanga og niður fyrir Þjórsárdalinn, en aðeins í vatnavöxtum hljóp hún í Gjána.
Hjálparfoss er einn af fossum Þjórsárdalsins en hann er í Fossá og stendur nokkru vestan við Búrfell.

Ef eitthver vill vita meira um þennan fallega dal þá bara endilega kíkja inná http://www.nat.is/travelguide/ahugav_st_thjorsardalur.htm

eða www.skeidgnup.is


Want to Leave a Reply?