Þjórsárdalslaug
Þjórsárdalslaug er vestan Fossár, austur undir Rauðukömbum. Hún var búin til árið 1967. Þar er heitur hver, og gnótt af heitu- og köldu vatni sem er sjálfrennandi að lauginni. Þessi magnaða laug og staðsetning hennar stendur alltaf fyrir sínu.
Í Þjórsárdal er útisundlaug, sem starfsmenn Landsvirkjunar byggðu meðan á byggingu Búrfellsvirkjunar stóð. Sundlaug þessi er opin almenningi á sumrin og er vinsæll viðkomustaður. Innst í dalnum er síðan Háifoss, og fellur hann í Fossá. Annar foss, Granni, fellur fram af sömu bjargbrún, nánast við hliðina á honum. Gaman að segja frá því að Þjórsárdalslaug var gerð úr afgangssteypu úr Búrfellsvirkjun.
Vááá þetta er geeðveiiik laug shii langar mig í hana vááá svo tær ohh geggjaa!!
kv. Hafdís