Stóri dagurinn.

Posted in Óflokkað on mars 22nd, 2010 by Dynkur — Be the first to comment!

Jæja, þá er komið að því að kynna stóra verkefnið okkar. Við erum búin að vinna mjög hart að þessu verkefni og eyða óratíma í þetta bæði í skóla og heima. Við vonum að þetta sé mjög fróðlegt hérna hjá okkur, allavega lærðum við alveg heilan hellinga af þessu verkefni :)

Takk kærlega fyrir okkur og við vonum að sem flestir fari inná síðuna nýti sér upplýsingar sem þar er að finna :)

Námsferð

Posted in Óflokkað on mars 18th, 2010 by Dynkur — Be the first to comment!

Stutt um námsferðina ;)

Við 10.bekkur fórum í námsferð í Þjórsárdal að skoða náttúruperlur og virkjanir. Við byrjuðum á því að hitt Gunnar Örn Marteinsson og spurðum hann nokkra spurninga svo keyrðum við í Skaftholt og þar var sagt okkur um lífræna ræktun. Svo fórum við heim til Sigga í Stóra- Núp og borðuðum pulsur að bestu lyst. Svo keyrðum við í Þjórsárdalsskóg. Svo keyrðum við í Búrfellsvirkjun og þar hittum við Daða, pabba Lovísu. Hann sagði okkur ýmislegt um hvernig svona virkjanir starfa og hvaða tilgangi þær gegna. Svo kíktum við á Stöng og þar var Evelyn að segja okkur fullt um það og svo fórum við að skoða Sultartanga virkjun með Daða aftur. Svo fórum við í Hólaskóg og höfðum gaman!:D

þjórsárdalur 10.bekkur 084

Frá bloggi Ómars Ragnarssonar.

Posted in Óflokkað on mars 10th, 2010 by Dynkur — Be the first to comment!

Ég hitti þýskt sjónvarpsfólk á dögunum sem var að taka efni í þátt í þýska sjónvarpinu um íslensk virkjanamál.

Það stóð í þeirri trú að fallið hefði verið frá því að virkja Þjórsá við Norðlingaöldu og þurfti ég að hafa talsvert fyrir því að greina þeim frá því að þeim áformum hefði aðeins verið frestað en ekki hætt við þau.

Að lokum fór svo að þau tóku myndir af fossunum Dynk og Gljúfurleitarfossi sem munu hverfa ef áin verður virkjuð fyrir ofan þá, en annars hefðu þau engar myndir tekið af þessum fossum og Þjóðverjum verið greint frá því í sjónvarpsþætti í haust að virkjanaáform þarna væru úr sögunni.

Nú sér maður í fréttum að Landsvirkjun er aftur komin á fulla ferð við þá fyrirætlan sína að drepa endanlega flottasta stórfoss Íslands, Dynk og taka tvo aðra stóra fossa fyrir ofan og neðan hann með í leiðinni.

Fyrsta Bloggið

Posted in Óflokkað on mars 4th, 2010 by Dynkur — Be the first to comment!

Erum komin með síðuna og vorum að reyna að lagfæra hana aðeins, svo ætlum við alltaf að vera að svara spurningum og koma með upplýsingar hingað ..