:)

janúar 19th, 2010 by disuskrast

londonJæja , nú er fekar langt síðan maður hefur bloggað síðast og þá á að reyna að bæta það upp. :) í seinustu viku fóru nokkrir kennarar til London að skemmta sér við mikinn fögnuð nemenda ;) Eeen raungreinakenslan lagðist heldur betur ekki niður! Við fengum verkefnablöð sem reyndurst fjandi erfið fyrir suma !
En í byrjun seinustu viku horfðum við á myndband sem að Sigmar kom með! Það var helvíti flott bara og fróðlegt, þakkir til hans! ;)
En annars erum við ekki búin að gera mikið í þessari viku þar sem að við erum bún að fara í einn tíma þar sem að við skoðuðum einmitt myndir frá djamm ferð kennaranna til London ;)
En þessi vika er bara hálfnuð svo að maður bíður og sér hvað hún ber í skauti sér. :)

Jææjja, árið 2010 runnið upp =)

janúar 6th, 2010 by disuskrast

letilíf...

letilíf...

Á mánudaginn var bara rólegheitatími … Þar sem að við vorum að koma beint úr jólafríi, það tekur alveg minstalagi viku að kveikja á heilanum! En við skoðuðum alveg svakalega fallegar myndir af síðu sem heitir nationalgegraphic.com og þetta blogg er eginlega tileinkað henni að þessu sinni. Þar er að finna bestu myndir yfir hvert ár fyrir sig! Þetta eru alveg glæsilegar myndir!! :)

Hannibal í heimsókn.

desember 16th, 2009 by disuskrast

Án vatns getum við ekki lifað.. :)

Án vatns getum við ekki lifað.. :)

Í dag , miðvikudaginn 16.desember kom hann Hannibal í heimsókn og hélt fyrir okkur smá fyirirlestur um Vatnsveituna í Hrunamannahreppi.
Það sem einkennir jarðveituna í Hrunamannahreppi er að hún er mjög grunn, hún getur alveg verið frá 50m dýpi niður í 200m en það telst mjög grunnt T.d. er veitan í Berghyli mjög grunn, ekki nema 2 metra niður á við. Árið 1950 var veitað í Galtafelli, svo í Hruna eða rétt fyrir neðan Hrunaréttir. Þar greindist nú vatnið frekar skýtugt eða mikið af gerlum í því þar sem að á þeim tíma sem réttað er í Hrunaréttum þá auðvitað pissa kúka kindurnar og þá fer það beint niður í jarðveginn ! Eftirlit vatnsins okkar er mjög gott, Hannibal og félagar fara einusinni í mánuði að mæla vatnið, PH gildi þess og og fleira.

Hrunamenn nota 15 lítra á sólarhing af vatni, mest í heiminum. T.d. Reykvíkingar nota ekkki nema 1,5 l á haus !! En það er sjálfsagt út af öllum gróðurhúsunum! Ef ég nefni t.d. sem dæmi þá er gúrka 90% vatn. :)
Árið 1989 var tankurinn uppi á Ási steyptur og tekinn til notkunar. Allt það vatn sem kemst inn í hann átti að duga okkur Hrunamönnum á sólarhring, reyndar gerði það það fyst en núna þarf að fylla hann 12-15 sinnum til að vökva okkur ! Enda erum við með besta vant í heimi! Það er sannað :) En frekar erfitt er að finna kalt vatna hér á þessum slóðum, nóg er af heitur vatni hérna en lítið af því kalda. Alls hafa verið boraðar 13 holur hér í sveitinni en ekkert fundist!

Það gerðist nú einusinni fyrir u.þ.b 5 árum að það varð vatnslaust, þá þurftu menn að taka til góðra ráða, þá talaði Hannibal við bændurnar á Berghyl um það hvort að þeir mættu veita kalda vatninu í Hrunamennina. Þeir fengu leyfi fyrir því og gerðu það. En það tók aðeins meiri tíma en ætlað var og það var byrjað að veita vantinu frá Berghyl og í tankinn á Ásnum. En það tókst að lokum.

Þetta var mjög fróðlegt :)
Takk fyrir mig :D

Afmælisdagur :)

desember 9th, 2009 by disuskrast

drekkum vatndrekkum vatnÞá er kominn miðvikudagur enn og aftur. En ekki neinn venjulegur miðvikudagur því ða ég á afmæli í dag :D jeeeiii !
Á mánudaginn vorum við í vatnskynningu hjá henni Elsu Ingjaldsdóttur. Hún fræddi okkur um vatn, eftirlit vatns og vatnsbóla. Þetta var mjög fróðlegt og skemmtilegt til tilbreytingar. En mér fant mjög merkilegt þegar hún sagði okkur frá því þegar að þau fundu kattarbein ofnaí einu vatnsbólinu! En reyndar er það þannig að maður er bara að drekka piss og alskonar óþvera sem er nú bara gott :) En allavega fanst mér þetta mjög fróðlegt og skemmtilegt !!

Ritgerðarvinna.

desember 2nd, 2009 by disuskrast

Þarn er Darwin þar sem kenning hans kemur fram í myndinni

Þarn er Darwin þar sem kenning hans kemur fram í myndinni

Jæjja !!
Á mánudaginn horfðum við á mynd , The eath á kafla í henni sem fjallaði um ósonlagið. Þetta var mjög fræðandi mynd , þarna kom mikið fram sem maður vissi ekki ! En allavega þá skilst mér á öllu að við séum að fara í létta könnun úr þessari mynd en maður veit ekki hvernig það fer !
En núna þá erum við á fullu í ritgerðarvinnu fyrir jólin. En ég er að skrifa um Charles Robert Darwin :) Hann er alveg svakalegur náungi ;)
En allavega það eru alveg að koma jól svo að allt er þetta að klárast á þessu ári..

Fimmti hlekkur !

nóvember 23rd, 2009 by disuskrast

Bósi ljósár ;)

Bósi ljósár ;)

Ég er nú ekki alveg búin að vera að standa mig í þessu bloggi !
Eeen núna ætla ég að reyna að bæta það :) Í síðustu viku á mánudaginn var dagur Íslenskrar tungu og þá fórum við út í skóg í staðin fyrir að fara í rauungreinar. En allavega svo á miðvikudaginn fórum við í tölvur og þar var okkur sagt að við eigum að gera ritgerð um alskonar hluti sem við máttum velja okkur sjálf bara .. ég valdi það að skrifa um Charles Darwin. Svo á fimmtudaginn vorum við allur bekkurinn saman í raungreinum í 4 tíma ! Við Horfðum á mjög skemmtilega mynd sem fjallaði um eldvirkni á jörðinni og þessháttar, flekaskilin og alskonar eitruð vötn. Þetta var ótrúlega skemmtieg mynd :D Svo í seinni tímanum þann daginn þá byrjuðum við á nýju hugtakakorti sem fjallaði einmitt um eldvirkni jarðarinnar og þá kom sér vel að vera búin að horfa á myndina :)
En í þessari viku eða mánudaginn 23.nóvember var fyrirlestrartími þars sem við fjölluðum um alskonar hluti og t.d. ljósár.

60×60x24×265x300.000 svona finnur maður hvað km er langt í ljósári. Ljósár er ss. lengd :)

Litningar.

nóvember 4th, 2009 by disuskrast

rottukrufningÍ dag er miðvikudagur og það þýðir að það er ekki mikið búið af vikunni. En á mánudaginn var glósutími , við fjölluðum um kvenlitninga og karllitninga. Við fjölluðum líka um erfðir manna. En á morgun , semsagt fimmtudaginn verðum við ekki í raungreinatíma vegna þess að við erum að fara á Laugarvatn eða réttarasag t í ML.
En við höldum að allt þetta um erfirnar sé að síast inn í heilann á okkur ;) En við erum að fara að skila mikilvægri skírslu á morgun, það er skírsla um rottukrufninguna. Við kryfjuðum rottu á fimmtudaginn í síðustu viku og núna eigum við semsagt að skila skírslu um þetta allt saman, hvenig þetta fór fram , tilgangur og þessháttar.

Takk fyrir mig :)

jæjja þá !

október 21st, 2009 by disuskrast

gregor mendel

Bloggið mitt eyddist allt út þannig að ég ætlaði að reyna að bogga eitthvað pínu !

Í síðustu viku vorum við í erfðafræði , 2. vikan í röð og mér sýninst þessi vika ætla að vera eins. :) Á fimmtudaginn vorum við að gera frekar erfið verkefni í stöðvavinnu. Við vorum að reikna út hversu miklar líkur væru á því að maður fengi t.d. svartann naggrís ef að maður væri með hvíta kerlingu og svartann kall. Það er gott að notast við þetta þegar maður vill t.d. fá eitthvern sérstakann lit í hrossarækt, eða hyrnta nautgripi eða ekki. En sumum finst mjög gaman bara að prufa sig áfram og sjá hvernig litir koma ! :)