Halló og gleðilegt sumar. Seinasta miðvikudag kom Ingvar lögga í heimsókn til okkar í náttrúrufræðitíma og fræddi okkur um fíkniefni og áhrif þeirra svo Gyða varð að fresta prófinu um varma og eldgos til föstudags því ekki var tími á fimmtudaginn.Þá var sumardagurinn fyrsti. Mér gekk bara ágætlega prófinu held ég. Núna er síðasti hlekkurinn byrjaður sem er bara upprifjun fyrir lokapróf sem er eftir þrjár vikur eða svo. Við eru að rifja upp allt námsefni frá því í 8.bekk. Í mánudagstímanum vorum við að rifja upp líffræði og fórum yfir eina bók sem heitir Einkenni lífvera. Við rifjuðum meðal annars vísindalegar aðferðir sem eru :
og ef marg endurteknar tilraunir standast er hægt að leggja framm kenningu og seinna verður kenningin að lögmáli ef allir vídindamenn samþykkja kenninguna eftir miklar ransóknir. Við rifjuðum upp einkenni lífvera sem er hreyfing, efnaskipti ( næringarnám, melting, öndun, þeviti), vöxtur og þroski, æviskeið, viðbrögð og æxlun. Þetta eru svona helstu einkenni lífvera. Eignum skoðuðum við frumuna og líffæri þeirra aðeins eins og hver er munurinn á plöntufrumu og dýrafrumu og dreifkjörnungum og heilkjörnungum. Munurinn sem er á milli dýrafrumu og plöntufrumu er sá að plöntufruman hefur frumuvegg, safabólur og grænukorn. Grænukornin valda ljóstillifuninni sem er lífinu nauðsinleg. Svo rifjuðum við aðeins upp hvað vistkerfi er. Það er tiltekið svæði þar sem lífverur tengjast hvor annari og umhverfinu.
Hérna er ljóstillifunarsöngurinn
og hér er svo annað myndband um ljóstillifun (soldið ítarlegra)
Þetta er bara orðið nokkuð gott. Bless, bless Daði Geir
Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.