Jæja, þá er þemaverkefnið búið og afraksturinn varð þessi svaka flotta bloggsíða um virkjanir í Þjórsá. Hér er linkurinn að henni. Við enduðum á kinningu sem gekk bara bærilega eftir að hafa setið upp fyrir haus á síðustudögunum að gera bloggsíðuna tilbúnna og á kinningunni var svo bara spilað af fingrum framm:) Það er voða gott að verkefnið sé búið en þetta var samt mjög skemmtilegt og mikil tilbreiting frá hefðbundnu námi. Nú er svo bara að fara að koma páskafrí
á morgunn er árshátíð svo er bara fríið komið. Núna er eldgos í gangi á Íslandi á Fimmvörðuhálsi sem er hliðina á Eyjafjallajökli og landslagið er orðið allt öðruvísi en það var. Set hérna inn flott myndband frá eldgosinu.
Hér er líka allmennur fróðleikur um eldgos
Þá hef ég ekkert meira að segja nema gleðilega páska
Bless Daði Geir
Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.