Innskráning
10
mars

Þessi vika

Written by dadigeir. No comments Posted in: Uncategorized

Halló, í þessari viku erum við búinn að halda áfram að fjalla um rafmagn hjá Hildi. Á mánudaginn fórum við yfir glósur um rafmagn. Þar lærðum við um rafsegulsvið, úr hverju er hægt að fá raforku úr t.d. er hægt að framleiða rafmagn ú kolum, olíu, kjarnorku vatnsorku og fleiru. Hún sagði okkur afhverju við á Íslandi notum mest vatnsaflsvirkjanir til að fá rafmagn, það stafar helst af því að sú orka er vistvæn og endurnýjanleg útaf hringrás vatns. Þetta var það helsta sem við gerðum í þeim tíma. Í dag vorum við í tölvum og vorum við að klára verkefnið í foritinu  Virtual Lab Electricity frá því seinasta miðvikudag og þegar það var búið fórum við í orkuleik frá Landsvirkjun. Í honum áttum við framleiða orku fyrir eitt land. Hérna er leikurinn sem við fórum í. Á morgunn er svo vetvangsferð í Þjórsárdal, þá fræðumst við um Þjórsá og Þjórsárdal. Förum í virkjanir og á bæi á svæðinu og í lokinn fórum við í Hólaskó og gistum þar, þar verðu öruglega svaka stuð.

Hérna er smá fróðleikur um rafmagn

Hér er fróðleikur um stöðuorku og hreyfiorku

Þá er þetta orðið gott, bless bless Daði Geir

0 Responses

Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.

Some HTML is OK

or, reply to this post via trackback.