Halló
Síðasta föstudag byrjuðum við á þemaverkefninu í náttúrufræði og samfélgasfræði og í gær héldum við áfram í því. Ég er hópstjóri í mínum hóp og í honum er Jón Aron, Siggi og Jóhannes. Hópurinn okkar heitir Stöng og við ætlum fjalla um virkjanir og umhverfi Þjórsár. Við erum búnnir að vera hamast við að gera bloggsíðuna klára, safna heimildum og myndum til að geta svarað spurningum sem við settum framm sem ransóknar spurningar. Svo 11. mars förum við í vetvangsferð í Þjórsárdal. Hérna er linkurinn að bloggsíðunni okkar.

Hérna er ein mynd af Búrfellsvirkjun
Á mánudaginn og miðvikudaginn vorum við í tímun hjá Hildi og héldum við áframm að fræðast um rafmagn. Við vorum að læra hugtök eins og rafhrif, afhleðsla, spenna og fleiri hugtök. Svo gerðum við segul hjá henni með batteríi, einagruðum rafmagnsvír og nagla. Við festum líka glerklukku á steinvegg ánþess að nota neitt annað en bara krukku. Það var mjög kúl hvernig hún hékk bara á vegnum, án þess að við höfðum límt hana eða neitt svoleiðis. Við fórum líka í forrit í tölvum þar sem við áttum að leggja rafrásir og tengja við þær bjöllur, ljósaperur og látta þetta allt virka.
Hérna er myndband um það hvernig vatnsaflsvirkjanir virka
Jæja, þetta er þá orið nokkuð gott. Bless, bless Daði Geir
Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.